Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2004, Blaðsíða 16
J 6 MÁNUDACUR 26. JÚLÍ2004
Fréttir DV
Borgarastyrjöld hefur geisað í Súdan um áratuga skeið. í Darfur hafa íbúar verið ofsóttir árum saman. Nú
ofsækja arabískir múslimar i norðurhlutanum kristna blökkumenn í suðurhluta landsins. Kallað er á al-
þjóðlegt friðargæslulið og aðstoð hjálparsamtaka. Neyðin er gífurleg. íslendingar bregðast misjafnlega við.
Ranöi krossinn hjálpar í Súdan
en friðnrgæslan bíðnr átekta
Móðir með barn Loksins hefur umheimurinn beint augum aö ástandinu íSúdan.
Stjómvöld í Súdan segjast hafa aukið öryggi og neyðaraðstoð í
Darfur að undanförnu. Þau hafa undanfarið verið beitt þrýstingi
af Bandaríkjastjórn og stjómvöldum í Evrópuríkjum vegna
ástandsins í landinu. Bandaríkjaþing hefur samþykkt ályktun
þar sem ásandinu í Darfur er lýst sem þjóðarmorði. Alþjóða
Rauði krossinn er með einhverjar umfangsmestu aðgerðir í einu
landi í Súdan.
Khalil Ibrahim, leiðtogi Réttlætis-
og jafnréttishreyfingarinnar JEM í
Súdan segir að hreyfingin taki ekki
þátt í friðarviðræðum við súdönsk
stjórnvöld fyrr en þau hafi afvopnað
Janjaweed, vígahóp araba. Þeir hafa
á undanförnum mánuðum drepið
um þrjátíu þúsund manns og hrakið
allt að eina og hálfa milljón manna
frá heimilum sínum, að mati Sam-
einuðu þjóðanna. JEM og Súdanska
frelsishreyfingin, SLM, hófu upp-
reisn í fyrra og sökuðu stjórnvöld í
Kartún meðal annars um að styðja
arabíska vígahópinn með vopnum.
Um helgina átti Mustafa Osman Is-
mail, utanríkisráðherra Súdan, fund
með Ben Bot, utanríkisráðherra
Hollands, og sagði meðal annars að
stjórnvöld hafi þegar handtekið
hundrað háttsetta liðsmenn Janja-
weed og þeir bíði nú dóms.
Mustafa Osman Is- Þórir Guðmunds-
mail, utanrfkisráð- son, upplýsinga-
herra Segirstjórn- fulltrúi Rauða
völd hafa handtekið krosslslands „Þeg-
hundraö háttsetta ar rigningarnar bæt-
tiösmenn Janjaweed. ast ofan á það verður
ástandiö skelfiiegt.
Haft er eftír háttsettum breskum
hershöfðingja að Bretar getí sent allt
að fimm þúsund manna herlið til
Súdan og Alexander Downer, utan-
ríkisráðherra Ástralíu, sagði að Ástr-
alar væru tilbúnir til að leggja til
mannskap í alþjóðlega ffiðargæslu-
sveit á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Athygli umheimsins á ástandinu
vaknaði eftir að fjölmiðlar fóru æ oft-
ar að birta myndir af sárþjáðum kon-
um og bömum í flóttamannabúðum
í nágrannaríkinu Chad þar sem tugir
þúsunda manna búa við ömurlegar
aðstæður. í síðustu viku urðu breskir
hjálparstarfsmenn að yfirgefa búð-
irnar í Farchana og Bredjing eftir að
átök brutust út í búðunum. Þeir hafa
nú snúið til baka.
Þrír íslenskir sendifulltrúar
„í Súdan á sér nú stað einhver
stærsti mannúðarvandi í heiminum
í dag" segir Þórir Guðmundsson,
upplýsingafulltrúi Rauða kross ís-
lands. „Þar er alþjóða Rauði kross-
inn með einhverjar umfangsmestu
aðgerðir í einu landi. Rauði kross ís-
lands er með þrjá sendifulltrúa í
Súdan og eru þeir að vinna í heil-
brigðismálum og við að útvega
hreint vatn. Þarna hefur orðið
manntjón af völdum styrjaldar-
ástands og þúsundir manna eru á
vergangi. Það þarf að aðstoða fólkið,
sérstaklega núna því rigningartím-
inn er nýhafinn. Hann hefur gífur-
lega slæm áhrif á allan aðbúnað
fólksins sem hefur verið í flótta-
mannabúðum við illan kost mánuð-
um saman. Þegar rigningarnar bæt-
ast ofan á það verður ástandið
skelfilegt. Það er mikilvægt að koma
hreinu vatni til fólksins og vera við-
búin vegna farsótta sem geta bloss-
að upp með engum fyrirvara. Það er
áhersla Rauða krossins í Súdan
þessa dagana" segir Þórir.
Að sögn Arnórs Sigurjónssonar,
sem fer með málefni íslensku ffiðar-
gæslunnar hefur engin beiðni um
aðstoð komið inn á borð utanríkis-
ráðuneytísins.
Alþjóða Rauði krossinn „iSúdan á sér nú
staö einhver stærsti mannúðarvandi í heim-
inum í dag."
Móðir og barn í flóttamannabúðum í
Chad Sameinuðu þjóðirnar segja allt að
eina og hálfa milljón manna á vergangi.