Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBEFt 2004 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjóran lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjóran ReynirTraustason Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- ar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: fsafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvað veist þú um Eiffel turninn* 1 Hvar er hann? 2 Hvað er hann hár? 3 Hvenær var hann reistur? 4 Hver teiknaði hann? 5 Úr hverju er hann? Svör neðst á síðunni Dansað við harmræn Ijóð Aðdáendur og iðkendur þessarar andalúsísku dans- listar geta á þessari vefsíðu vitjað goða sinna í sjálfri danslistinni og ekki síður þeirra hljóðfæraleikara og söngvara sem túlka harm- ræn ljóðin og hraðan takt- Vefsíðan www.flamencoworld.com tnn þess á milli. Á síð- ur flam- engó- heiminum, bækur, hljóð- færi, dóma um danssýning- ar, flamengó-kvikmyndir eða -myndbönd ásamt myndasíðum, viðtölum og nýjustu tísku flamengó- dansara. Einnig er hægt að kynna sér einstaka lista- menn á síðum þeirra og kanna alfræðisíðu um allt sem viðkemur flamengó. Fengu fyrir ferðina I þessu orðtaki merkir ferð- in leiðangur eða ferö sem farin var illra erinda. Hefnd- arskyldan var ofariega í hugum manna foröum ekki síst þegar þeir uröu fyrir að- kasti. Sá sem varð fyrir illri aðför varð að hefna, láta and- stæðing eöa ill- virkja fá makleg málagjöld fyrir ferðina. Sá sem fær fyr- ir feröina er að fá yfirsjón eða afbrot launuö og hefur orðtakið núoröið oftast nei- kvæðan blæ, enda sæmir ekki að veitast að öðrum með ofbeldi. Málið 1. París. 2.300 metrar. 3. 1889.4. Gustave Eiffel. 5. Járni. Þrengra umhverfi uðvelt er að meta, hvort tillögur stjórnskipaðrar nefhdar um breytt viðskiptaumhverfi séu góðar eða ekki. Matið fer etór að hve miklu leyti tillögurnar fylgja evrópskum reglum. Þar hefur verið fjallað rældlega um málið frá ýmsum hlið- um, en hér heima óttast menn ofbeldis- hneigð stjómvalda. Að mestu leyti fylgja tillögumar evrópsk- um leikreglum og em að því leyti góðar. Að nokkmleytivíkjaþærfraþeim, einkumtil að þrengja viðskiptaumhverfið á íslandi umfram Evrópu. Að því leyti em þær til þess fallnar að hrekja fyrirtæki úr landi og koma því ekki að tilætluðum notum. Þórdís J. Sigurðardóttir skilaði séráliti í nefndinni, þar sem hún nefnir slík atriði í tillögunum. Skynsamlegt er fyrir Alþingi að taka mark á athugasemdum Þórdísar, þegar það tekur máfið fyrir, og tryggja að ekki sé hér á landi flanað út í breytingar, sem bregða fæti fyrir viðskipti. Hugmynd nefitdarinnar um aukin ríkisaf- skipti af atvinnulíftnu em ekki í takt við tfin- ann, ekki frekar en tiilögur annarrar nefiid- ar um aukin afskipti ríkisins af atvinnu- rekstri í fjölmiðlun. Yfirleitt er ríkjandi sú stefiia á Vesturlöndum að fara varlega í rík- isafskipti. Stalín er löngu dauður. Sérkennileg er hugmyndin um að stjóm- arformenn seu ekki starfandi í fyrirtækinu. Hvað er unnið við að Kári Stefánsson sé ekki stjórnarformaður deCODE, Sigurður Ein- arsson ekki stjórnarformaður KB banka, Ólafur Ólafsson ekki stjómarformaður Sam- skipa? Em þetta ekki homsteinar? Skortur á samkeppni í atvinnulffi íslend- inga kemur helzt niður á almenningi í flutn- ingum og tryggingum, benzfiú og lyfjum. Til að verja almenning gegn hringamyndun og öðm ofríki einkafyrirtækja duga ekki tillög- ur nefndarinnar. Það skiptir engu, hvort stjórnarmenn fáokunar séu launamenn. Miklu mildlvægara er að laga aðstæður hér á landi fyrir útibú eriendra fyrirtækja til að taka upp samkeppni við innlenda fáok- un. Ríkisvaldið þarf að búa í haginn fyrir er- lenda banka, erlendar tryggingar, erlenda flutninga og erlenda lyfjasmásölu til að auka samkeppni í landinu. Morgunblaðinu og fráfarandi forsætisráð- herra hefur lengi verið umhugað um þrengra viðskiptaumhverfi hér á landi, sum- part tíl að hafa meiri hemil á KB banka, sem hefur farið eigin leiðir og núna síðast opnað möguleika almennings á hagstæðari kjörum við að fjármagna þaldð yfir höfði sér. Sem betur fer snemst tillögurnar ekki um þetta, þegar þær litu dagsins ljós. En eigi að síður er nauðsynlegt að sníða af þeim agnúa, sem þrengja viðskiptaumhverfið umfram Evrópu. Jónas Kristjánsson Hvernig ma „Margir hafa ánægju afíslenskum búningi og vilja að honum sé sýndur sómi. Slíkt fólk myndi sennilega fagna því efkonur sæjust opinberlega á upphlut en ókyrrast töluvert efþað yrði rangtgert, jafnvel með vilja. Skotthúf- unni kannski sleppt eða búningurinn bara notaður á einhvern annan hátt... “ hlæða sig? ÞORGERÐUR KATRlN GUNNARSDÓTTIR menntamálaráðherra opnaði Þjóð- minjasafnið í fyrradag eins og al- kunna er. Hún gerði það klædd glæsilegum íslenskum búningi sem hún bar með heiðri og sóma en eins og fram kemur hér aftar í blaðinu (nánar tiltekið á síðu 10) fannst ein- hverjum söguffóðum konum bún- ingurinn þó ekki alveg nógu kórrétt- ur. Ekki vitum við hvort skrifari Vef- Þjóðviljans í gær hafði athugasemdir af því tagi í huga - eða kvartanir um að Dorrit Moussaieff hefði ekki verið í rétta skótauinu við skautbúninginn sem hún bar á dögunum - en skrifar- inn tekur kvartanir vegna íslenska búningsins að minnsta kosti sem dæmi um þá forsjárhyggju sem eins og endranær er eitur í beinum Vef- Þjóðviljans. „HIÐ 0PINBERA ER SlFELLT," skrifar Vef-Þjóðviljinn, „að setja nýjar regl- ur. Leyfirsumten bannar mun fleira, og þá ekki aðeins einhverja grund- vallarglæpi. Ráðleggingar um hegð- un, vafalaust skynsamlegar margar hverjar, eru settarfram í fyrirskipun- arformi og sektir liggja við ef menn fara svo öðruvísi að. Það á að gera =i hlutina svona en ekki hinsegin. Svo - ergert skylt að gera náunganum eitt- hvað til þæginda. Samkeppnisstofn- ^ un sektar fyrirtæki sem er ekki með nægilega marga verðmiða úti í ™ glugga. Og auðvitað er alltaf verið að í banna mönnum að móðga aðra. Sjó- ^ maður nokkur var dæmdur til refs- "3 ingar eftir að hafa sagt þá skoðun Z sína að [Ajfríkunegrar væru latari en íslendingar. Aðra má hins vegar enn- „ þá móðga að vild. Ákæruvaldið V myndi sennilega ekki gera nokkurn ^ skapaðan hlut þó hálf sjómanna- stéttin segði að lslendingar væru aI- ~ m enn tséða umingjar. ÞAÐ MÁ VEL VERA að það væri frá al- >- mennu sjónarmiði betra ef fólk færi c eftir reglum sem þessum. Það breytir ° ekki þeirri skoðun Vefþjóðviljans að a þær ætti að afnema. Það á enginn að ™ eiga rétt á því að verslun lími fleiri £ verðmiða á vörurnar en kaupmaður- ^ inn vUl. Viðskiptavinur sem telur sig - ekki fá nægar upplýsingar um verðið, ^ hann á alltaf þess kost að fara bara leiðar sinnar, og ætti að taka þann ■- kost fremur en að hringja inn á Sam- <u keppnisstofnun og fá hana til að sekta kaupmanninn. Maðursem ekki vill aka í öryggisbelti eða hjóla með hjálm, hann ætti að mega það. Þó að ríkið hafi ákveðið að sinna þeim sem Fyrst og fremst slasast í umferðinni þá ætti það ekki að veita ríkinu neinn rétt til að sekta þá sem ekki eru í belti. Nema náttúr- lega að menn vilji að sú staðreynd að ríkið býðst til þess að reyna að lækna menn af lungnabólgu leiði tilþess að það megi skipa fólki að ganga með húfu og trefil og taka lýsi á morgn- ana. ÞAÐ ER ALLTAF VERIÐ að auka rétt- indi manna á hendur náunganum og langt umfram grundvallaratriði eins og rétt til þess að vera ekki svipturlífi, heilsu eða eigum. Þessari þróun verður að snúa við. Fyrsta skrefíð íþvíer væntanlega að berjast gegn nýjum bönnum eða aukningu „réttinda". Ffættur ánýjum bönnum eru ótalmargar, og þá einkum smá- vægilegum bönnum sem safnast saman og virðist ómögulegt að losna við. Margir hafa ánægju af íslensk- um búningi og vilja að honum sé sýndur sómi. Slíkt fólk myndi senni- lega fagna því ef konur sæjust opin- berlega á upphlut en ókyrrast tölu- vert ef það yrði rangt gert, jafnvel með vilja. Skotthúfunni kannski sleppt eða búningurinn bara notað- ur á einhvern annan hátt, aðeins að hluta. Eða kannski hafður við galla- buxur. Það ætti hins vegar ekki að banna fólki að klæða sig þannig, ekki fremur en það ætti að banna því að fara rangt með málshætti og orðskviði. En það er ekkert við það að athuga að menn segi öðrum til, svo lengi sem engum er skylt að fara að leiðbeiningunum. Það er gott ef menn sýna öðrum mönnum eða menningu þeirra virðingu. Það er sjálfsagt að gera athugasemdir við þá sem gera það ekki. En hið opin- bera ætti að fara varlega í að sekta þásem tala „vitlausf', klæða sig„vit- laust" eða telja að einhverjir séu lat- ir.“ En hvað um það. Mogginn fór mikinn í Staksteinum og talaði um grafalvarlegt mál sem kallaði á skýr- ingar. Hins vegar fer ekkert fyrir skýringunum þegar maður les Moggann. Enginn blaðamaður virðist hafa tekið undir áhyggjur rit- stjórnarinnar um að brýnt væri að fá svör frá Hæstarétti. Kannski kemur það í blaðinu í dag. Við bíð- um spennt, eins og alltaf. Moggafréttir Ahyggjur ritstjórnar - engar fréttir Höfum við einhvem tímann áður skrifað um Morgunblaðið og ritstjóra þess á þessum síðum hér? Jú, örugglega höfum við það, en við getum alltaf gert það aftur. f gær skrifuðum við nefnilega frétt um það að forseti Hæstaréttar hefði ekki, og ætlaði ekki, að svara því sem fram kom í Staksteinum Morg- unblaðsins í fyrradag. Þar skrifaði Staksteinahöfundur að ef hæsta- réttardómarar bæm ekki til baka ffétt á Stöð 2 um umsækjendur um embætti dómara, yrðu þeir allir að segja af sér. Fréttina skildi Mogginn sem svo að hæstaréttardómarar hefðu hafið leit að dómara eftir að Jón Steinar Gunnlaugsson sendi inn umsókn um embætti í Hæstarétti. Það mun þó ekki hafa komið fram í fréttinni að dómarar hefðu hafið leitina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.