Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 Fréttir DV Varað við hundaæði Hundur hefur greinst með hundaæði í Suðvest- ur-Frakklandi. Hundinum var smyglað írá Norður- Afríku um Spán. Hundur- inn hefur mest dvalist í Bordeaux en einnig á ná- lægum stöðum. Hann er talinn hafa bitið minnst fimm manns. Hundaæði er banvænn veirusjúkdómur sem getur borist í menn með hundsbiti, -klóri eða þegar trrnga hundsins sleik- ir slímhúð eða sár. Afar ólíklegt er talið að nokkur íslendingur hafl komist í snertingu við hundinn. Ef svo ólíklega vildi til hvetur Landlæknir viðkomandi til að snúa sér strax til Land- spítalans. Skuldirvaxa um 250 millj- ónirádag Erlendar skuldn þjóð- arinnar námu 596,6 milljörðum króna um- fram erlendar eignir í lok júní 2004. Hrein skulda- staða við útlönd hækk- aði um 46,5 milljarða króna á fyrri árshelmingi vegna fjármögnunar við- skiptahallans en einnig vegna verð- og gengis- breytinga. Þetta þýðir að skuldir þjóðarinnar hafi aukist um rúmlega 250 milljónir króna á hverj- um degi ársins frá ára- mótum. Að sögn Seðla- bankans var viðskipta- hallinn einn og sér tæp- lega 28 milljarðar kr. á fyrri helmingi ársins eða meir en tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra. Sveitungi Vaidasar Kókaínið sem 23 ára gamall Lit- hái flutti til lands- ins í vikunni var mjög hreint. Væri allt að því hægt að fjórfalda þau 300 grömm áður en efnið yrði selt á götunni. Hann var með efnið í um 80 kúlum sem hann hafði gleypt. Magnið er töluvert meira en var í Vaidasi Jucevicius sem fannst lát- inn í höfninni í Neskaup- stað. Pilturinn kemur frá bænum Telsai í Litháen, heimabæ þeirra Vaidasar og Tomasar Malakauskas, sem ákærður er fyrir að taka þátt í fíkniefhasmygli með Vaidasi og koma líki hans fyrir. Deila Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Latabæjar var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þegar Latibær var enn á teikniborðinu og engin leið að vita hvort hugmyndin myndi slá í gegn lánaði Nýsköpunarsjóður Latabæ rúmlega 20 milljónir. Ákvæði í lánasamningnum gerir sjóðnum kleift að kreQast þess að fá peningana til baka í formi hlutabréfa. Það sættir risafyrirtækið Latibær sig ekki við í dag. Latibær neitar hlutabréfa kröfum Nýsköpunarsjóös Nýsköpunarsjóður lánaði Latabæ 21 milljón á þeim tíma sem fyrirtækið var að slíta barnsskónum. Nú er Latibær orðinn risa- fyrirtæki. Nýsköpunarsjóður vill peninginn margfaldan til baka í formi hlutafjár. Latibær vill ekki leyfa Nýsköpunarsjóði að njóta ávaxta velgengninnar og er málið nú komið fyrir dómstóla. „Við hefðum helst vilj- að að málið færi ekki fyrir dóm,“ segir Gunnar örn Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Nýsköpun- arsjóðs atvinnulífsins, en ekki hefur tekist að leysa ágreining milli sjóðsins og Latabæjar. „Þetta snýst um ágreining um lánasamn- ing," segir Gunnar. „Við reyndum að leysa málið en ef það tekst ekki leita menn annarra leiða. Við erum í góðri trú um að Latibær, sem við höfum stutt hingað til, muni koma til móts við okkur. Það er miður að þetta hafi farið fyr- ir dóm." Einn af hverjum tíu Mál Nýsköpunarsjóðs gegn Latabæ ehf. var tekið fyrir í Héraðs- dómi Reykjavíkur snemma í gær- morgun. Nýsköpunarsjóður er áhættu- fjárfestir sem leitast við að fjárfesta í fyrirtækjum sem eru vænleg til ár- angurs. Óft verður ekkert úr fyrir- tækjunum en stundum slá þau í gegn - eins og Latibær. Það eru þær fjárfestingar sem halda sjóðnum gangandi og gerir honum kleift að styrkja önnur fyrirtæki til góðra verka. „Við veðjum á tíu fyrirtæki og uppskerum kannski af einu," segir Gunnar Örn. „Það fyrirtæki þarf því að greiða fyrir hin níu og með því teljum við okkur hafa varið pening- unum vel." Latibær vill frávísun Fyrir Héraðsdómi í morgun krafðist Tómas Þorvaldsson, lög- Gunnar Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Nýsköp- unarsjóðs atvinnulffsins Segir þaö miöur aö málið sé komið i þennan farveg. maður Latabæjar, þess að málinu yrði vísað frá. Hvorki lögmanni Nýsköp- unarsjóðs né dóm- aranum leist vel á þá leið. Ef frávísunar- krafa verður lögð fram mun málið tefjast í nokkra mánuði. Dómarinn tók því þá ákvörðun að fresta málinu í viku svo lögmað- ur Latabæjar gæti farið aftur yfir það hvort frávís- unarkrafan verði lögð fram eður ei. Upphæðin sem Nýsköpunar- sjóður lánaði Latabæ þegar fyrir- tækið var enn að slíta barnskónum nemur um 21 milljón. Þetta var áhættuíjárfesting því engin leið var að vita hvort Latibær myndi slá í gegn. í lánssamningnum var því kveðið á um svokallaðan breytirétt sem gerir Nýsköpunarsjóði kleift að fá peningana til baka í formi hluta- fjár í fyrirtækinu. Bauð margfalt minni hlut f dag er Latibær orðinn að risa- Um lán með breytirétti hjá Nýsköp- unarsjóði: „Meö lánum meö breytirétti hefur Ný- sköþunarsjóður einhiiða heimild til aö breyta þeim I hiutafé i viðkomandi fyr- irtæki á fyrirfram ákveðnu gengi. Gerð- ur er sérstakur iánssamningur þar sem skiiyrði sjóðsins eru tiltekin og gerð er krafa um að heimiid tii breytiréttar sé færð inn I samþykktir félags- ins.’ Af heimasíðu Nýsköpunar- sjóös. „Það er miður að þetta hafi faríðfyrír dóm." fyrirtæki og Nýsköpunarsjóður vildi uppfylla breytiréttarákvæðið. Latibær hélt því hins vegar fram að breytirétturinn hefði fallið nið- ur. Þrátt fyrir þessa túlkun Latabæj- armanna bauð fyrirtækið Nýsköp- unarsjóði að fá hlutabréf á gengi sem tæki mið af verðmæti bréfanna á markaði í dag. Þannig fengi sjóð- urinn mun minni hlut í Latabæ en sjóðurinn vill fá og hefði fengið ef 21 milljónar króna fram lagið á sínum tíma hefði verið lagt fram sem hlutafé. Þetta boð átti að skapa sátt. íþróttaálfurinn latur til svars Nýsköpunarsjóður hafnaði boð- inu og vildi fá hlutabréfin á „réttu" gengi, það er að segja því gengi sem hlutabréfinu voru metin á þegar lánið var veitt. Þannig eignist þeir margfalt stærri hlut í Latabæ en for- svarsmenn fyrirtækisins vilja sætta sig við. Nýsköpunarsjóður telur að með því að Latibær hafi boðið þeim að nýta breytiréttinn á öðru gengi séu þeir að viðurkenna að breyti- rétturinn sé virkur. Deilan snýst því um breytiréttinn og túlkun beggja aðila á lánssamningnum. Kjartan Már Kjartansson, upplýsingafulltrúa Latabæj- ar, vildi ekkert tjá sig um málið. Sagði einfald- lega: „No comment" og benti á eigin- konu Magnúsar Scheving - Ragn- heiði Melsted. Ekki náðist hins vegar í hana. Sjálfur er Magnús Scheving nýfloginn til Bandaríkjanna. simon@dv.is Magnús Scheving íþrótta- álfur Fékk hjálp frá Nýsköpun- arsjóði til að koma Latabæ af stað en stendurnú I málaferl- um um hvernig greiða eigi styrkinn tilbaka. Svarthöfði Meiri mútur! í gærmorgun staulaðist Svart- höfði ffam úr rúminu um áttaleytið og byrjaði á filterslausu kamelsígar- ettunni áður en hann svolgraði í sig tvo potta af svörtu kaffi. Eftir það fór heimurinn að verða kunnuglegur. Og Svarthöfði gat borið höfuðið hátt þegar hann gekk rösklega tU úti- dyra, tU að sækja sér blöðin að lesa. Og það var sama hvaða hörmungar lífsins blöðin báru á borð, Svarthöfða var ekki brugðið. Hann hugsaði ein- faldlega með sér, svona er lífið og við því er ekkert að gera. Fyrr en hann kom að áttundu síð- unni í Fréttablaðinu. Þá verður Svart- höfði nefnUega að viðurkenna að hann fékk hland fyrir hjartað. „íslendingar reynslulausir varð- andi spUlingarmál" var aðalfréttin á síðunni. Og sagði frá úttekt einhvers sem kaUaðist „Ríkjahópur Evrópu- ráðsins um spUlingarmál". „Hjálpi mér!" hrópaði Svarthöfði upp yfir sig, svo hátt að kona Svart- höfða, Svarthöfða, hrökk í kút. „Hvað hefur komið fyrir?" spurði hún um leið og hún stakk síðustu rúUunni í hárið. En Svarthöfði mátti vart mæla af áhyggjum. Hér varð að grípa skjótt tíl aðgerða. Landsmenn reynslulausir af spillingarmálum?! Merkti það að Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað mjög gott. Gaman í vinnunni og mikið að gera," segir Sigurjón Kjartansson, út- varpsmaður og Tvíhöfði.„Svo setti ég saman kojur fyrir strákana mfna tvo sem eru fjögurra og sex ára. Það tók tvær vikur. “ f íslendingar stæðu ekki í fremstu röð í spUlingarmál- um? Ættu ekki heimsmetið, samkvæmt höfðatölu? Titrandi röddu út- skýrði Svarthöfði þetta fyrir konu sinni. „Við verðum að grípa tU vopna," fimbul- fambaði svo Svarthöfði. „Þetta má ekki vera svo. Okkur skortir reynslu á þessu sviði og við verð- um þegar í stað að öðl- ast hana. Við verðum þegar í stað að auka spUlinguna! Okkur vantar meiri fjárdrátt! Meiri svik! Meiri mútur!" En Svarthöfða hafði áhyggjur. Bíddu bara, góði," sagði hún ró- lega. „Þegar „nýja hagkerfið" okkar verður gert upp, þá mun ekkert engar skorta á spUling- armálin." Og Svarthöfði leyfði sér að vona að það væri rétt. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.