Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Qupperneq 12
72 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 Fréttir DV Draugabani ídulargerfi Lögreglan á Ind- landi hefiir handtek- ið mann fyrir að dul- búa sig sem draug og bjóða síðan upp á þjónustu sína sem draugabani við að koma draugnum fyrir kattamef. Ambika Rai klæddist svörtu og olli skelfingu með íbúa þorpsins Siliguri í Bengal á kvöldin. Daginn eftir heim- sótti hann svo íbúana og bauðst til þess að særa drauginn í burtu. Brelfan uppgvötvaðist þegar lögregl- an fékk ábendingu um hvað væri í gangi og greip hún Rai í miðjum klíðum eitt kvöldið. Hann játaði og sagðist hafa þénað vel á þessu uppátæki. Gúmmídúkka giljuðíbúð Lögreglan í Þýskalandi þurfti nýlega að láta hendur standa fram úr ermum við að skilja í sundur 38 ára gamlan mann og uppblásinn kynlífsfélaga hans. Mað- urinn var töluvert ölvaður þegar lögreglan greip hann í miðjum klíðum á gúmmídúldamni í versl- unarmiðstöð í Stuttgart. Sá ölvaði vildi ekki hætta og þurfti lögreglan að neyta aflsmunar til að draga hann af dúkkunni. Að sögn talsmanns lög- reglunnar þurftu þeir lög- reglumenn sem kallaðir voru til að hafa talsvert fyrir því að skilja mann- inn frá „vinkonu" sinni en það tókst að lokum. Drykkjuleyfí frakonunni Karlmenn í einu héraði í Indlandi gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi ef þeir eru gripnir við drykkju án þess að hafa til þess leyfi fr á eigin- konu sinni. Tillaga þess efrús hefur verið sett fram af kvennahreyfingu í Bihar að sögn Mid-day blaðsins. Kvennahreyfingin í Bihar segir að þetta muni frelsa konumar frá því and- lega álagi sem fylgir því er eiginmennimir koma dauðadrukknir heim til sfn og em með hávaða og læti. Skýrsla með þessari tillögu er nú til skoðunar hjá hér- aðsstjóranum í Bihar sem kallar tillöguna byltingar- kennda. Margrét Ólafsdóttir i/efstjóri Þokkadísanna á Akureyri „Viö skvlsurnar sem vinnum á skrifstofu Samherja erum mjög samhentur hópur og í vor ákváöum viö aö koma klúbbn- um okkar Þokkadlsir á vefinn. Landsíminn aö gera eitthvaö skemmtilegt saman. Þaö er llka meö ein- dæmum góöur starfsandi hjá okkur á skrifstofunni. Ég get nefnt sem dæmi að á sfðasta Sjómannadegi tókum við þátt I róörarkeppninni hér á Akureyri. Við unnum að vísu ekki en aö mlnu mati vorum viö aö sjálf- sögöu langflottastar.“ Yfirvöld í Bógóta í Kólumbíu óttast nýja ógn í baráttunni viö fíkniefnavandann Fregnir berast úr frumskóginum þess efnis þar sé nú í ræktun nýtt afbirgði af kókaínplöntunni sem sé stærri, hraðvaxnari og gefi af sér mun meira af virku efni en venjulegar kókaínplöntur. Genabætt oíurkókaín á leið ót ó markaðinn Bandarískir fíkniefnalögreglumenn reyna nú að staðfesta fregn- ir um að nýtt genabætt ofurkókaín sé á leiðinni út á markaðinn. Yfirvöld í Bógóta, höfuðborg Kólumbíu, óttast þessa nýju ógn í baráttunni við fíkniefnavandann þar í landi en Kólumbía er stærsti kókaínútflytjandi heims. Fregnir berast úr frumskógun- um þess efnis að þar sé hafin rækt- un á nýju afbrigði af kókaínplönt- unni sem sé stærra, hraðvaxnara og gefi af sér mun meira af hinu virka efni en venjulegar kókaínplöntur. Camilo Uribe vísindamaður sem starfar sem ráðgjafi með fíkniefna- lögreglunni í Kólumbíu segir að hann hafi þegar séð þessar nýju plöntur á svæðum þar sem mikið af kókaíni er ræktað. Hann segir að hinar nýju plöntur gnæfi yfir venju- legar kókaínplöntur sem ná yfirleitt um 1,5 metra hæð. Og fleiri hafa einnig gefið sig fram og sagt að þeir hafi séð þetta nýja afbrigði. „Það sem okkur hafði ekki tekist hingað til var að afla sannana um að þetta nýja afbrigði væri til. Nú höfum við fundið plönturnar," seg- ir Uribe. Risarunnar með stór laufblöð Uribe segir í samtali við AP- fréttastofuna að hann hafi fundið nýjar plöntur sem voru á milli 2 og 3 metra háar í Sierra Nevada-fjöllun- um í norðurhluta Kólumbíu og í La Macarena sem liggur á frumskógar- svæði í miðhluta landsins. „Þetta voru risastórir runnar með stórum laufblöðum," segir Uribe en það er einkum í laufblöðunum sem virka efnið í kókaíni er að finna. Risastórar kókaínplöntur hafa einnig fundist í Putumayo-héraðinu í suðurhluta landsins þar sem mikil Kókafn Lögreglumenn I Kólumbfu gera kókaín upptækt en ekkert dregur úr framboöinu. Ofurkókaín Yfirvöld hafa áhyggjur afþvl aö hafin sé framleiðsla ofurkókaíns sem þolir plöntueitur. framleiðsla á kókaíni fer fram. Stað- arbúar hafa gefið hinu nýja afbrigði nafnið Bólivíuhvítt og Bólivíusvart. Þolir plöntueitur Nýlega kom fram í máli Eders Sanchez bændaleiðtoga í Putumayo að Bólivíusvart þoli plöntueitur mun betur en Tingo Maria sem er það afbrigði kókaínplönttinnar sem bændur rækta mest af í dag. Stjórnvöld hafa hingað til eink- um notað plöntueitur í baráttu sinni við kókaínræktunina svo þetta eru slæmar fréttir þar á bæ. En þetta eru enn verri fréttir fyrir Bandaríkja- menn sem eytt hafa milljörðum dollara í að úða kókaínekrur með plöntueitri til að koma í veg fyrir að þær verði notaðar til framleiðslu á kókaíni fyrir Bandaríkjamarkað. Ekkert dregur úr framboði Uribe segir að spurningin sé hvort glæpamönnunum sem stjórna kókaínframleiðslunni hafi tekist að rækta afbrigði af kókaín- plöntunni sem þolir plöntueitur. Hann hefur séð óopinberar skýrslur um að þeir hafi reynt slíkt árum saman til að bregðast við herferð Bandaríkjamanna. Hvað sem þessu líður er ljóst að götuverð á kókaíni í Bandarfkjun- um hefur ekkert breyst um árabil svo að ljóst er að ekki hefur dregið úr framboði á þessu fíkniefni. Og þetta er þrátt fyrir að yfirvöld í Kólombíu segi að eiturúðanir Bandaríkjamanna hafi valdið því að kókaínekrur landsins þekji nú um 33% minna svæði en árið 2001. Allir óttast Marjam Taburova Svört ekkja gengur laus í Rússlandi Marjam Taburova, ein af svörtu ekkjunum frá Tsjetsjeníu, gengur nú laus í Rússlandi og óttast yfirvöld þar að hún sé að undirbúa sjálfsmorðs- árás sem kosta muni fjölda Rússa lífið. Marjam er ein af fjór- um svokölluðum svört- um ekkjum sem yfirgáfu Dagestan þann 22. ágúst síðastliðinn. Tvær þeirra sprengdu sitt hvora far- þegavélin í loft upp og sú þriðja drap níu manns í sjálfsmorðs- sprenginu í Moskvu. Þær Amnat, Satsita, Rosa og Maijam deildu með sér sundurskot- inni íbúð í Grozny, höfuðborg Tsjetsjemú og voru allar meðlimir í „Svörtu ekkjunum" en nafnið hefur þessi hópur kvenna feng- ið vegna þess að þær ganga til verks íklæddar svörtum kuflum að sið múslima. Hópurinn sam- anstendur af kaldrifjuð- um konum sem eru til- búnar að láta lífið í barátt- unni gegn Rússlandi. Þær Amnat, Satsita og Rosa hafa sem fyrr segir lokið „verkefnum" sín- um. Uppi eru hugmyndir um að Marjam sé meðal manmæningjanna sem tekið hafa 240 manns, aðallega böm, sem gísla í skóla í bænum Beslan í Norður-Ossetíu. Það er þó talið ólík- legt og því stendur mikil leit yfir í Rússlandi að Marjam og vonast yfir- völd til að geta náð henni áður en hún lætur til skarar skríða. Marjam Tiiheyrirhópi kald- rifjaöra kvenna sem tilbún- ar eru til að fórna Iffi slnu I baráttunni við Rússland. Talið að geimverur séu að reyna að ná sambandi Utvarpsbylgja gæti verið símtal frá ET Stjömufræðingar telja að út- varpsbylgja sem þeir hafa fylgst með gæti verið merki frá geimverum. Bylgjan, sem hlotið hefur nafriið SHGbo2+14a, hefur þrisvar borist til jarðar frá 2002 og náðist hún á hinn risastóra Arecibo-útvarpssjónauka í Púertó Ríkó. Vísindamönnum hefur ekki tek- ist að greina bylgjuna en hún er að- eins mínúta að lengd og mjög dauf. Sérfræðingar frá SETI segja ólíklegt að bylgjan sé tmflanir eða gabb. Eric Korpela einn af rannsóknar- mönnum SETI við Kaliforníuháskól- ann segir: „Við erum að horfa á eitt- hvað sem beinlínis öskrar á okkur að búið sé til. En ég veit ekki um neina tækni sem getur framleitt svona merki." Samband komið? Bylgjutlönin er aö sögn sérfræöinga sú sem líklegast er aö geimverur myndu nota efþær ætluöu sér aöná sam- bandi viö jaröarbúa. Bylgjutíðnin er að sögn sérfræð- inga sú sem líklegast er að geimver- ur myndu nota ef þær ætíuðu sér að ná sambandi við jarðarbúa. Hjá SETI er nú verið að keyra merkið frá Arecibo í gegnum milljón tölvur til að rannsaka það betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.