Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Síða 15
X3V Fréttir FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 75 ið í sinn hlut. Þá geta viðskiptavinir átt von á vinningi frá Flugleiðum. Það dugir að setja kassakvittun í þar til gerða lukkukassa. • Hagkaup halda nú íslenska daga og þar er hægt að kaupa ferskt lamba- læri af nýslátruðu á aðeins 879 kr. kílóið og lambahrygg á aðeins 949 kr. kíló- ið. Þeir sem vilja drekka appelsín með sunnudagssteikinni fá tveggja h'tra flösku frá Egils á aðeins 119 krónur. • Ókeypis næringar- ráðgjöf er í boði í Lyfju í Lágmúla á miíli klukkan 16 og 20 í dag. Næringarfræð- ingur verður á staðnum og aðstoðar fólk við val á næringarefnum. 20% afsláttur er af öllum vítamínum, fæðubótareftium og bætiefnum meðan birgðir endast. Afslátturinn er veittur í öllum verslunum Lyiju. Matargatið Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri Hver er fyrsta matarminningin? ,Þaö er skyrið sem ég fékk hjá mömmu í æsku. Uka flatkökur með hangikjöti sem ég fékk gjarna í há- deginu." Hvað borðarðu f morgunmat? „Cheerios er fastur liður hjá mérá morgnana." Hvaða matar gætirðu ekki verið án? „Ætii ég segi ekki bara Cheerios og mjólk. Þetta er morgunverðurinn og þaðer erfitt að vera án hans. “ Hvaða mat þolirðu ekki? „Ég hefaldrei verið matvönd og þoli bókstaflega allan mat. Maturinn er auðvitað misgóður en það er ekkert sem ég þoli alls ekki." Hvaða mat myndirðu taka með þérá eyðieyju? „Efég fengi að taka með mér ísskáp- inn þáyrði pakki afCheerios og mjólk meö i farteskinu." Hvað finst þér skemmtilegast að elda? Fiskrétti, það er engin spurning. Það er hægt að gera svo margt úr fiski. Ég elda aldrei ýsu enda þorskur I mestu Leitað að stærstu trjánum Haustgöngur skógræktarfélag- anna og KB banka hefjast á morg- un. Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir göngu í Heiðmörk þar sem Bjami D. Sigurðsson, skógar- vistfræðingur hjá Rannsóknarstöð- inni á Mógilsá, leiðir gönguhópinn í náttúruskoðun og leit að sveppum. Safnast verður saman í Furulundi við Heiðarveg. Skógræktarfélag Hafnarijarðar stendur fyrir göngu um Kirkjugarð Iiafnarfjarðar. M.a. verður reynt að finna stærstu og markverðustu trén. Mæting er við aðalinngang garðsins að norðan- verðu. AUir eru velkomnir í göng- urnar, sem heijast klukkan 10 og það kostar ekki krónu. Viðar Friðfinnsson er allt annað en ánægður með þjónustu íslandsbanka. Hann segir umsókn hennar um greiðslukort hafa verið hafnað vegna þess að hann er sjálfur á vanskilaskrá. Útibússtjóri bankans segir þetta rangt - allt aðrir hlutir séu lagðir til grundvallar þegar umsóknir eru afgreiddar. Segir eiginkonuna ekki fé Vísekort vegna eigin vanskila „Konan mín hefur alltaf haft sitt á hreinu og það er beinlínis rangt að láta hana gjalda fyrir mínar skuldir." „Ég hef bara aldrei orðið vitni að þjónustu eða öllu heldur þjónustu- leysi á borð við þetta. Eiginkona mín dvelur þessa mánuðina erlendis og þarf sárlega á greiðslukorti að halda. Hún hefur aldrei verið í vanskilum, er íbúðareigandi og á dágóða summu inni á reikningi sínum. Þrátt fyrir það er henni hafnað og mér tjáð að það sé vegna þess að ég er á van- skilalista. Bankinn virðist sem sagt refsa eiginkonu minni vegna skulda sem ég stofnaði til löngu áður en við kynntumst," segir Viðar Friðfinns- son. Eiginkona Viðars er af erlendu bergi brotin og hann vill ekki blanda nafni hennar inn í þessa umjöllun þar sem hún dvelur erlendis um þessar mundir. Viðar segir vandræðin hafa hafist fyrir nokkrum árum þegar þau hjón- in sóttu um debetkort. Þá var þeim sagt að konan gæti ekki fengið slíkt kort þar sem hún væri ekki íslenskur ríkisborgari. „Þetta þótti mér skrýtið þar sem ég þekki til fjölmargra út- lendinga hér á landi sem nota debetkort. Bankinn tapar ekki á slík- um kortum þar sem fólk eyðir bara því sem það á. Þess vegna skildi ég þetta ekki þá og skil ekki enn." Eigin- kona Viðars fékk íslenskan ríkis- borgararétt ekki alls fyrir löngu og þá loks fékk hún debetkort en greiðslukort virðist ekki inni í mynd- inni. Segir bankann skipta um skoðun „Það er engu líkara en bankinn vilji ekki okkar viðskipti. Við höfum hvort sinn reikninginn og erum bara meðalfólk í íslensku samfélagi. Ég viðurkenni að ég hef skuldað með- lög og það er ástæða þess að ég lenti á vanskilalista." Viðar segist hafa orðið hvumsa þegar beiðni hans um greiðslukort fýrir hönd eiginkonunnar var hafn- að af þjónustufulltrúa - ekki einu sinni heldur tvisvar. Þá kveðst hann hafa tjáð yfirmanni þjónustufulltrú- ans að hann hygðist fara með málið í íjölmiðla. „Þá breyttu þeir svarinu og sögðu konuna ekki hafa nægilega veltu á reikningi sínurn. Hún hefur alltaf verið með innistæðu á sínum reikningi og núna á hún nokkur hundruð þúsund krónur. Ég skil það að fólk sem er með h'til viðskipti fái enga fýrirgreiðslu hjá þessum banka." Málin standa þannig nú að Viðar sér sér ekki annað fært en kaupa sér flugfar og fara með peninga til konu sinnar. „Það er það eina í stöðunni en ástæða þess að hún vildi fá greiðslukortið er einmitt sú að henni er iila við að vera með reiðufé er- lendis - eins og svo mörgum öðr- um.“ Spurður af hverju hann skipti ekki um bankastofnun segir Viðar það vel koma til greina. „Mælirinn er fullur og mér finnst ansi hart þegar bankastofnun kemur svona fram. Konan mín hefur alltaf haft sitt á hreinu og það er beinlínis rangt að láta hana gjalda fyrir mínar skuldir," segir Viðar Hreinsson. Ákveðnarreglur Björn Sveinsson, útibússtjóri ís- landsbanka við Kirkjusand, segir rangt að fólki sé refsað vegna van- skila maka. Hann kveðst ekki geta rætt tiltekið mál enda sé shkt óheim- ilt. „Við viljum fá til okkar góða við- skiptavini. Við reynum að þjóna hverjum og einum eftir bestu getu. Við horfum á viðskipti hvers og eins án tillits til hugsanlegra skulda eða vanskiia maka. Hvað greiðslukortin varðar þá eru umsóknir um slik kort afgreiddar eftir ákveðnum reglum. Fólk þarf að uppfyha ákveðin skil- yrði eftir því til dæmis hvaða tegund korts er sótt um. Það er líka gerð krafa um ákveðna veltu og á endan- um er heUdarmynd umsækjandans skoðuð og tekin ákvörðun um hvort viðkomandi fær kort eða ekki," segir Björn Sveinsson. Fólk vUl að vinir minni sig á fjöl- skyldumeðlimi og/eða sjálfa sig. Þannig velur fólk gjarna vini sem eru likir þeim sjálfum í sjón. Þetta kemur fram í nýrri kanadískri rann- sókn og tók fjöldi sjálfboðaliða þátt. Sjálfboðaliðarnir skoðuðu fjöldann allan af andlitum á tölvuskjá. Ann- ars vegar var um aUs konar fólk að ræða og hins vegar andlit sem höfðu verið búin tU með því að líkja eftir systkinum og foreldrum við- komandi. Niðurstaðan var einföld; sjálfboðaliðarnir tóku án undan- tekninga fólk, sem li'ktist einhverj- um þeim nákomnum, fram yfir aðra. Vinir Matthildarmennirnir Davið Oddsson, Ingólfur Eldjárn og Hrafn Gunnlaugsson eiga það sammerkt að vera I afskaplega hárprúðir. Dr. DeBruine, sem stýrði rann- sókninni, segir líklegt að við treyst- um þeim betur sem eru okkur kunnuglegir í sjón og gætu þess vegna verið tengdir okkur. Að sama skapi kemur í ljós að fólk virðist ekki nota þessa reglu þegar það leitar sér að maka - heldur þvert á móti. Dr. DeBruine telur að það sé okkur meðfætt að vilja vingast við þá sem eru líkir okkur og kunni að hafa sömu gen. Þegar kemur að makavalinu sé eins og mannskepn- an vilji gæta þess að blandast ekki sömu erfðaefnum og velji sér því maka sem er ólíkur í útliti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.