Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 Sport TÍV Styðja við landsliðið Landsliðsfyrirliðarnir fyrrverandi Guðni Bergsson og Eyjólfur Sverrisson munu á morgun haida stofnfund Félags fyrrverandi A-landsliðsmanna í knattspyrnu en féiags- menn munu einnig verða einhvers konarstuðningshópur fyrir landslið Islendinga og KSlog setja þannig aukinn svip á landsleiki. Hér er Guðni með Ásgeiri á góðri stundu. DV-mynd Hilmar Þór Sveppi verð- ur notaður í dvergakasti Hálandaleikarnir fara fram viö skógræktina á Akranesi um helg- ina. Smá forskot verður tekáð á sæluna með hinni sívinsælu grein, dvergakasti, fyrir framan World Class í Laugardal. Kastiö verðui' óvenjulegt að þessu sinni því kraftajötnamir munu notast við alvörudverg, sjálfan Sveppa úr sjónvarpsþættinum 70 mötútur á Popptíví. Hjalti Úrsus Árnason, einn af okkar öflugustu kraftajötnum í gegnum árin, sagðist lengi hafa dreymt um að notast við alvöru- dverg í greininni en aldrei fengið neinn nógu hugmikinn sem þorði í íjörið. „Nú er hann kominn, sjálf- ur Sveppi, og ædar að leyfa okkur að fleygja sér í háioftin. Hann þorði að vísu ekki að koma nema hann mætti lenda á dýnu eins og einhver auli,“ segir Hjalti Úrsus, meira í gríni en alvöru. „Á morgun byrja svo sjálfir Há- landaleikamir við , | skógræktina á Akranesi og verður , fríður hópur fólks sem tekur þátt, m.a. Skotinn Colin Breyce" segir Hjalti. Mourning með á ný? Góðar líkur eru á að Alonzo Mourning, miðherji New Jersey Nets, muni leika í NBA-deildinni í körfubolta í vetur. Mouming hefur átt við nýrnaveiki að stríða um árabii og lék aðeins 12 leiki meö Nets á síðasta tímabili. Nýiega gekkst hann undir nýmaaðgerð og er óðum að ná sér. „Mér líður frá- bæriega og er mjög spenntur fyrir æfingabúðum Nets sem em ftamundan og vonandi næ ég mér aftur á strik" sagði Mourning. Zo, eins og Mourning er ofast kallað- ur, hóf feriiinn með Charlotte Ilomets en lék Iengst af með Miami Heat. Hann var keyptur af Nets í júlí á síðasta ári. Zo var einn öflugasti miðherji heims þegar hann var upp á sitt besta en hefur lengi þurft að lúta í lægra haldi fyrir veikindum sín- um. Bryant laus allra mála Dómstóll í Bandarfkjunum fellcii niður mál Kobe Bryant í gær. Bryant, sem leikur með Los Angel- es Lakers í NBA-deildinni f körfu- bolta, hafði verið ákærður fyrir nauðgun í Coloradofylki á síðasta ári. Konan, sem kærði Bryant, treysti sér ekki til að bera vitni og sagði ástæðuna vera hina miklu athygli sem málið hefur fengið. Þá hefur hún ákveðið að höfða einka- mál gegn Biy'ant en að því er fjöi- miðlum meinaður aðgangur. Bryant sendi frá sér skriflega yfir- lýsingu eftir að konan samþykkti að nota upplýsingarnar ekki f mál- inu gegn honum. í yfirlýsingu jr-j biðst Kobe alia að- ila afsökunnar og segist m.a. gera sér grein fyrir að málið hafi verið erfitt fyrir fbúa Coiorado- fyikis, bæði fjár- hags- og tilfinn- ingalega. íslensku knattspyrnugoðin Guðni Bergsson og Eyjólfur Sverrisson munu á morgun halda stofnfund Félags fyrrverandi A-landsliðsmanna í knattspyrnu og eru ýmsar skemmtilegar hugmyndir í deiglunni varðandi félagið. Landsliðsfyrirliðamir fyrrverandi Guðni Bergsson og Eyjólfur Sverrisson munu á morgun halda stofnfund Félags fyrrverandi A-landsliðsmanna í knattspymu fyrir leik fslands og Búlgaríu. Starfsemi félagsins verður af ýmsum toga og em fjölmargar hug- myndir í burðarliðnum. Má búast við að félagið muni tengja starfsemi sína við landsleiki og KSÍ. „Það eru nokkur ár síðan þessi hugmynd kviknaði og er hún búin að vera á borðinu síðan" sagði Guðni Bergsson í samtali við íþróttadeild DV. „Hugmyndin var að fyrrum landsliðsmenn myndu eiga aðgang að félagsskap eða samtökum og gætu þannig hist og átt saman góða tíma. Margir okkar hafa átt mjög góða tíma með landsliðinu og eignast góða félaga í gegnum veru sína þar.“ Guðni segir að félagsmenn muni einnig vera einhvers konar stuðn- ingshópur fyrir landslið fslendinga og KSÍ og setja þannig aukinn svip á landsleiki. „Svo eru uppi áform um það að leika jafnvel einhverja sýn- ingarleiki og gætu þeir verið til styrktar einhverjum góðum mál- stað. Myndum við þannig geta lagt einhverri góðgerðarstarfsemi lið og jafnframt gera fólki glaðan dag. Við verðum náttúrulega að spila við lið sem hæfa okkar getu og það gæti orðið mjög skemmtilegt ef við fengj- um að spila einhverja leiki." Þrælskemmtilegt Með gamla landsiiðsmenn í farteskinu verður þrælskemmtilegt fyrir fólk að sjá þessa þá etja kappi við innlend félagslið. Blaðamaður DV setti í góðu tómi þau orð í munn Guðna að lið félags- ins myndi fara létt með núverandi landslið. Hann vildi nú ekki taka undir það í fyrstu en sagði svo með léttum tón: „Erum við ekki orðnir gamlir og grobbnir karlar? Verðum við að ekki að fuilyrða að við mynd- um vinna þá ef til viðureignar kæmi? Það er reyndar háð því að leikurinn yrði aldrei að veruleika“ sagði Guðni og hló. Stofnað á morgun Stofnfundurinn fer fram í Háteigssal á efstu hæð Grand Hótels á morgun kl. 14 og vonast Guðni til að sjá sem flesta. „Þar verður farið yfir hvernig starfsemi félagsins verð- ur háttað og verður vonandi margt „Erum við ekki orðnir gamlir og grobbnir karlar? Verðum við að ekki að fullyrða að við myndum vinna þá ef til viðureignar kæmi? Það er reyndar háð því að leikurinn yrði aldrei að veruleika." um manninn á Grand Hótel. Síðan munum við að sjálfsögðu ijölmenna á leikinn gegn Búlgörum á Laugar- dalsvelli." sXe@dv.is íslenska U-21 árs landsliðið mætir þvi búlgarska á Víkingsvelli í dag klukkan 17 Mætum fullir sjálfstrausts í fyrsta leikinn Eyjólfur segir stefnuna að sjálf- sögðu setta á sigur á heimavelli. „Það þýðir ekkert annað, mikil ósköp,“ segir Eyjólfur og heldur áfram: „Það er ekki á dagskránni að búa til eitthvað múrverk, en við spil- um þó að sjálfsögðu varnarleik þeg- ar við erum ekki með boltann og reynum að sækja þegar við erum með boltann, höfum þetta bara ein- falt.“ Eyjólfur segist ekki hafa undir höndum miklar upplýsingar um búlgarska liðið. „Við rennum nokk- uð blint í sjóinn með styrkleika þeirra, vitum í sjálfu sér ekid mikið um þetta lið en það er samt alveg ljóst að þeir kunna ýmislegt fyrir sér. Búlgarar eru þekkt knattspyrnuþjóð og hafa í gegnum tíðina átt mjög marga góð knattspyrnumenn, fljóta og tekníska. Okkar lið er einnig sterkt og við mætum fullir sjálfs- trausts til leiks." Hvernig líkar Eyjólfi lífið í Þessu starfi? Þetta er spennandi og krefj- andi verkefni sem virkilega gaman er að taka þátt í. Svona landsleikir eru frábært tækifæri fyrir strákana til þess að láta taka eftir sér útlöndum, til að mynda steig ég mín stærstu skref í átt að atvinnumennsku með þessu liði,“ sagði Eyjólfur Sverris- SOn. sms@dv.is Bjartsýnn Eyjólfur Sverrisson stjórnarís- lenska U-21 árs lands- liðinu gegn Búigariu í kvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.