Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Blaðsíða 18
í 8 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004
Sport DV
MARKVARSLA GUNNARS
Gunnar Sigurðsson, markvörður
Fram hefur varið 48 af 52 skotum
sem hann hefur reynt við í seinni
umferð Landsbankadeildar karla.
Gunnar Sigurðsson markvörður Fram hefur varið 48 af þeim 52 skotum sem hann
hefur fengið á sig í seinni umferð Landsbankadeildarinnar. Enginn markvörður
hefur haft meira að gera í sumar, enginn hefur varið fleiri skot og enginn hefur
varið hærra hlutfall skota.
Frábær (seinni umferð Gunnar
Sigurösson hefur verið frábær iseinni umferö
en Fylkismaðurinn Björgólfur Takefusa sem
sækir að honum hér til hægri er aðeins einn
affjórum mönnum sem hafa náð að skora
hjá Gunnari í siðustu sjö deildarleikjum.
Gunnar Sigurðsson hefur
leikiö 15 af 16 leikjum
Fram í sumar en hinir
markverðirnir á listanum
hafa allir leikið alla 16
leikina.
Þórður Þórðar-
son markvörður
Skagamanna
hefur oftast
haldið hreinu
eða í sex
leikjum en
Gunnar er
einn fimm
markvarða
sem koma
honum
næstir og
hafa haldið
marki sínu
hreinu í
fimm
leikjum.
um eða marki að meðaltali í leik og
fyrir vikið hafa Framarar náð í 12 stig
út úr þessum átta leikjum en fengu
aðeins fimm stig undir stjórn Rúm-
enans Ions Geolgau.
Gunnar Sigurðsson á að baki
ótrúlega tölfræði úr sjö fyrstu leikj-
um seinni umferðarinnar en hann
hefur í þeim varið 48 skot og aðeins
fjögur skot hafa sloppið framhjá
honum. Gunnar hefur því varið 92%
skotanna sem til hans hafa komið og
sker sig algjörlega út á báðum svið-
um, er með 5% hærri hlutfallsmark-
vörslu í seinni umferðinni en næsti
maður sem er Daði Lárusson í marki
FH og tíu fleiri skot varin en sá sem
kemur honum næstur en það er
Eyjamaðurinn Birkir Kristinsson.
Enginn varið fleiri skot
Enginn markvörður hefur varið
fleiri skot eða hærra hlutfall skota
það sem af er í Landsbankadeildinni
en Gunnar sem er á góðri leið með
að verja flest skot allra markvarða
deildarinnar þriðja árið í röð. Þegar
tvær umferðir eru eftir af mótinu
hefur Gunnar varið fimm fleiri skot
en næsti maður sem er Ungverjinn
Sandor Matus í marki KA.
Gunnar hefur ekki fengið tæki-
færi með íslenska landsliðinu en til
samanburðar þá hefur landsliðs-
markvörðurinn Kristján Finnboga-
son varið 30 skotum færri en Gunn-
ar og 12% lægra hlutfall skota en
markvörðurinn snjalli hjá Fram.
ooj@dv.is
Gunnar er á góðri leið
með að verja flest
skot allra markvarða
deildarinnar þriðja
arið i roð.
■ Leikir Gunnars í seinni umferð:
Víkingur (úti) 8 varin : 0 mörk á sig
fBV (heima) 6:2
(A (úti) 2:0
Grindavík (heima) 9:1
Fylkir (úti) 8:1
KA (úti) 9:0
KR (heima) 6:0
Flest skot varin:
Gunnar Sigurðsson, Fram 80
Sandor matus, KA 75
Birkir Kristinsson, IBV 72
Albert Sævarsson, Grindavík 65
Bjarni Þórður Halldórss., Fylki 63
Daði Lárusson, FH 60
Hæsta hlutfall skota varln:
Gunnar Sigurðsson, Fram 85,1%
Daði Lárusson, FH 81,1%
Birkir Kristinsson, (BV 80,9%
Bjarni Halldórss., Fylki 79,7%
Gunnar Sigurðsson hefur varið mark Fram af stakri snilld að undanförnu og
á mikinn þátt í því að Framliðið hefur aðeins fengið á sig fjögur mörk í þeim
sjö leikjum sem er lokið í seinni umferðinni. Þjálfarinn Ólafur Kristjánsson
sparar ekki stóru orðin þegar kemur að markverði sínum enda hefur hann
manna best getað fylgst með stórbrotinni markvörslu Gunnars, nú síðast
í 1-0 sigri á KR en Gunnar hélt þá hreinu í þriðja sinn í síðustu 5 leikjum.
„Gunnar Sigurðsson sýndi það í
dag að hann er besú markvörðurinn
okkar hérna heima í dag,“ sagði
Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari
Framara, eftir sigurinn á KR og
það hefur ekki spillt fyrir læri-
sveini hans í markinu að Ólafur
hefur teldð vörn Safamýrarliðsins
í gegn og gerbreytt henni til hins
betra. Með tilkomu Ólafs Kristjáns-
sonar hefur Framvörnin eflst til mik-
illa muna, liðið fékk 13 mörk á sig í
fyrstu átta leikjunum en það hafa
aðeins verið skoruð fimm mörk hjá
Framvörninni í þeim átta leikjum
sem liðið hefur spilað undir stjórn
Ólafs.
Þarna munar heilum átta mörk-
92% markvarsla
í sjö leikjum seinni umíeröar
SIÐUSTU SJO UTILEIKIR
Síðustu sjö útileikir FH
Fram (deild) 2-1
Sverrir, Freyr
Haverfordwest (Evrópuk.) 1-0
Borgvardt
Keflavík (delld) 1-0
Borgvardt
KR(bikar) 3-1
Jónas, Emil, sjálfsmark
ÍBV (deild) 3-1
Atli Viðar 2, Emll
Dunfermllne (Evrópuk) 2-1
Ármann Smári, Nielsen , '
Grindavfk (deild) 4-0
Borgvardt 2, Jón, Nielsen
Samantekt
7 útileikir
7 útisigrar
16 mörk skoruð
4 mörkfengin á sig
Markaskorar (leikjunum sjö
Allan Borgvardt 4
Tommy Nielsen 2
Emil Hallfreðsson 2
Atli Viðar Björnsson 2
Freyr Bjarnason 1
Sverrir Garðarsson 1
Jónas Grani Garðarsson 1
Ármann Smári Björnsson 1
Jón Þorgrímur Stefánsson 1
sjálfsmark 1
FH-ingar hafa ekki misstigið sig í sjö síðustu útileikjum sínum í þremur keppnum
Skiptir ekki máli hvar FH-inqar spila
FH-ingar hafa ekki bara farið tap-
lausir í gegnum alla leiki sína í öllum
keppnum síðan 22. maí, þeir hafa
unnið sjö útileiki í röð, fjóra leiki í
deildinni, tvo leiki í Evrópukeppn-
inni og einn í bikarnum á heimavelli
íslandsmeistara KR.
„Þessi úrslit sýna tvímælalaust
enn frekar styrk liðsins og það líka
að það skiptir okkur ekki máli hvar
við spilum, við leikum okkar bolta
hvar sem er," sagði Ólafur Jóhann-
esson, þjálfari FH eftir að liðið hafði
unnið skoska liðið Dunfermline á
útivelli og með því komist inn í 1.
umferð Evrópukeppni félagsliða.
Noklcrum dögum seinna var það
annar góður sigur á útivelli, nú 4-0 í
Grindavík, sem kom liðinu í lykil-
stöðu í Landsbankadeildinni. Þar
hefur það náð í 17 af 24 stigum í boði
á útivelli og þrátt fyrir að eina tap
liðsins hafi komið í Árbænum í 2.
umferð þá hefur liðið unnið níu af
14 sigrum sínum í sumar utan
Kaplakrikans. FH-ingar hafa reynd-
ar ekki tapað á sínum heimaveÚi en
jafnteflin eru orðin sex í níu leikjum.
FH spilar marga af mikilvægri leikj-
um í sögu félagsins á næstu vikum
og margir þeirra fara fram utan
Kaplakrikans og haldi sigurgangan
áfram þarf ekki að spyrja að leikslok-
um í sumar. oojisdv.is
FH hefur náð í 17 af
24 stigum í boði á úti-
velli og þrátt fyrir að
eina tap liðsins hafi
komið í Árbænum í 2.
umferð þá hefur liðið
unnið níu af 14 sigr-
um sínum í sumar
utan Kaplakrikans.
Jafngóðir ef ekki betri á útivelli Úlafur Jóhannesson getur verið ánægður með síðustu sjö
útileiki FH-liðsins en það hefur unnið þá alla, þar á meðal þennan á KR-vellinum. DV-mynd Teitur