Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Page 22
I
22 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004
Fókus DV
c.
t
» * p| «•;
Dóri DNA „Það eru mjög
litlir rapppeningar til á Is-
landi, ég er ekki Birgitta
Haukdalog maðurerlík-
| lega ekki að fara að meika
það í útlöndum en ég vil
samt verða íslenska rapp-
I stjarnan," segir Dóri DNA,
1 rímnameistari Islands.
... framhald
fráfyrri síðu
Með kvæðakverið á
náttborðinu
Halldór er sonarsonur Nóbel-
skáldsins og sver sig í ættina því hann
er mjög bókhneigður og yrkir, auk
rappsins, ljóð eftir hefðbundnum
bragarháttum. „Mér finnst gaman að
lesa. Bækur geta snert mig svo ótrú-
lega djúpt. Ég ætti að lesa miklu
meira, maður bara á það til að gleyma
bókunum í amstri dagsins."
Halldór segist ekld hafa lesið aliar
Laxnessbækumar en þó hafi hann Ies-
ið þær allflestar. „Ég er líka alltaf með
kvæðakverið hans á náttborðinu. Ég
get alltaf fundið ljóð þar sem ég get
tengt við hvemig mér líður hverju
sinni.“
Halldór segir að afi hans hafi haft
mikil áhrif á sig og hafi enn. „Hann
veitir mér mikinn innblástur enda var
hann stórmerkilegur snifiingur. Ég
kynntist honum svoh'tið þótt ég hafi
verið ungur þegar hann dó. Hann bjó
í næsta húsi þangað til hann fór á
Reykjalund og ég var mjög mikið inni
á heimilinu þegar ég var bam. Ég
heimsótti hann oft á síðustu ámnum
þegar hann var á Reykjalundi."
HaUdór segir að það geri ekkert til
að fólk sé alltaf að spyrja hann um afa
sinn. „Það fór svolítíð f taugamar á
mér einu sinni en ekki lengur. Hann
var svo merkilegur að ég skil fólk alveg
að vera forvitíð."
„Amma hefur sagt mér að hann
væri stoltur af mér ef hann væri hér
enn og það mundi ylja honum um
hjartarætur að vita að ég er að skrifa
og yrkja eins og hann."
Alltaf verið fyndni kallinn
Halldór segist hafa mikla og
brennandi þörf til að skrifa. Hann
langaði til að gefa út ljóðabók og eigi
mikið af ljóðum sem hann hefur verið
að yrkja síðustu misseri. „Ég get ekki
hlustað á rapp nema textarnir séu
góðir. Það verður að snerta mig. Það
er kannski hægt að dansa við 50 Cent
og svoleiðis rapp en maður verður að
kafa dýpra ef maður vill geta hlustað."
Halldór segist ekki æfa sig með
rímnaorðabók og hárbursta áður en
hann kemur ffarn. „Það æfir sig eng-
inn, þannig séð, held ég. Vikuna fyrir
keppnina rappaði ég ffjálst með félög-
um mínum í tíma og ótíma, þetta
kemur bara hægt og rólega hjá manni.
Fyrst eru menn alltaf að tönnlast á
sömu orðunum en flæðið kemur fljótt
með æfingunni."
Halldór viðurkennir að hann sé
góður í rímnaflæðinu enda altalað að
hann sé með afbrigðum hnyttinn og
gáfulegur í „battlinu" og sjaldan komi
maður að tómum kofanum hjá hon-
um. „Ég er bestur í battli, en það eru
aðrir sem eru betri en ég í að
fréestæla. Ég hef alltaf verið fyndni
kallinn, alveg ff á því ég man eftir mér.
Ég held það liggi bara í uppeldinu,
mamma og pabbi eru svo fyndin. í
battlinu vinnur fyndni gæinn. Menn
vinna ekki með einhverjum árásum
og hótunum. Eða með því að vera
svartur með „sixpack" og ör eftír
byssukúlur. Það er ekki málið. Sá sem
er bestur í heiminum í dag er h'till,
hvítur strákur sem heitir Eyedea.
Hann hefur komið til íslands og við
héngum svolítíð með honum. Fínn
náungi."
Hnoðast kófsveittur á
Rottweilerhundi
Halldór segist vera ósköp rólegur
og venjulegur maður þótt hann sé
rappari en hann hefur meðal annars
orðið bikarmeistari í handbolta. „Ég
er ekki glæparappari. Ég hef alla tíð
búið í mjög vemduðu umhverfi, í húsi
í Mosfellsdal við hliðina á Gljúffa-
steini. Ég hef aldrei ffamið glæp eða
notað dóp. Ég reyki ekki einu sinni. En
drekk þó áfengi endrum og sinnum.
Ég æfði handbolta nokkur ár með Aft-
ureldingu. Ég var línumaður enda var
ég mjög stór og mikill eftir aldri."
Núna er Halldór á kafi í brasih'sku
jiu-jitsu sem hann stundar eins oft og
hann getur. Hann glímir aðallega við
félaga sinn og kollega lir rappinu,
Bent úr XXX Rottweilerhundum og
Bent&Sjöberg, sem líka stundar
íþróttina af miklu kappi enda mikill
garpur. Hann segir að þeir Bent séu
með svipað vinningshlutfall í viður-
eignunum sínum, sem em allmargar.
„Bent er fáránlega sterkur og massað-
ur en við erum samt svipaðir þegar við
glímum. Hinum strákmum finnst
þetta mjög hommaleg iðja hjá okkur,
að vera að hnoðast kófsveittir hvor á
öðrum á gólfinu. Mér finnst þetta ekk-
ert hommalegt. Þetta er alvöru íþrótt.
Og ég ætla ekki að
hætta þrátt fyrir for-
dómana. Jiu-jitsu er
mín íþrótt."
Rappari í lúðrasveit og spuna-
spili!
Á sínum yngri árum var Halldór í
tónlistarskóla og lauk þremur stígum
á saxafón og einu á klarinett. Hann var
í lúðrasveit Mosfellsbæjar þar sem
hann spilaði annan sax. Með sveitinni
vann hann alþjóðlegt lúðrasveitarmót
í Gautaborg.
„Ég stefni alltaf á að taka upp klar-
inettíð aftur, það er svo faliegt og
skemmtilegt hljóðfæri, en maður er
bara alltaf svo upptekinn við að gera
ekki neitt."
Halldór segist alltaf hafa verið
töffari þrátt fyrir lúðrasveitina, hand-
boltann og stöku spunaspil með fé-
lögum. „Þótt ég væri í lúðrasveit og
svoleiðis var ég aldrei nörd. Mér tókst
alltaf að forðast að lenda £ því, mér
fannst rosalega gaman í lúðrasveit og
spunaspih en ég hættí þessu samt. Þú
getur verið nörd í öllu, ég er rappnörd
og bardagalistanörd núna. Það er
kannski töffaralegri nördismi hver er
að dæma?"
Þrátt fyrir tónlistamámið segist
Halldór ekki kunna á samplera eða
tölvuforritin sem notuð eru við gerð
rapptónlistarinnar. „Ég kann ekkert á
þetta en ég veit samt nákvæmlega
hvað ég vil. Það eru mjög góðir vinir
mínir sem semja lögin fyrir Bæjarins
bestu og NBC og við náum vel sam-
an.“
NBC samanstendur af Dóra DNA
og Stjána úr Afkvæmum guðanna.
Þeir eru búnir að taka upp plötu sem
mun koma út með haustinu. Bæjarins
bestu hafa verið saman í nokkur ár og
fékk platan sem þeir gáfu út mjög
góða dóma hjá gagnrýnendum. HaU-
dór segist ekki vera með á hreinu hvaö
platan seldist mikið þar sem vesen
hafi verið í bókhaldinu.
Leitar að góðri stúlku
„Það eru mjög litlir rapppeningar
til á íslandi, ég er ekki Birgitta Hauk-
dal og maður er líklega ekki að
fara að meika það í útlöndum
en ég vil samt verða ís-
lenska rappstjaman."
segir Halldór grafal-
varlegur. „Ég hef
þó ekki
áhuga á að vera í einhverri Freyjuaug-
lýsingu eða svoleiðis á einhverjum
skiltum og strætísvögnum. Mig langar
heldur ekki til að ferðast um landið
með Bylgjulestinni á sumrin. Það get-
ur líka verið sumarvinna að þrífa kló-
settin á Litla-Hrauni og ég mundi
frekar kjósa það.“
Halldór segist eingöngu rappa á ís-
lensku. „Ég er með svo mikinn hreim
að það er ekkert flott þegar ég rappa á
ensku. Ég ber samt fuila virðingu fyrir
þeim sem rappa á ensku, það er oft
mjög flott. Mér finnst bara svo stór-
kostlegt að geta rappað á íslensku og
það er ekkert að fara að breytast. Ég er
líka góður í því."
Halldór ætíar að læra meira eftir að
hann útskrifast úr MH. „Ef ég fer í Há-
skóla íslands fer ég örugglega í bók-
menntafræði eða heimspeki. Annars
er ég vel til í að fara til útlanda."
Halldór vonar að hann getí fet-
að í fótspor afa síns, þó ekki væri
nema að litlu leytí. „Ég ætla mér
að vinna við ritstörf þegar ég
verð eldri. Hvað sem það svo
verður. Vonandi verður það
bara eins fjölbreytt og hægt
er. Ég er ungur enn og
það kemur bara í ljós.
Núna hugsa ég bara til
skamms tíma. það
liggur fyrir að massa
NBC-diskinn, massa
skólann og svo
langar mig í kær-
ustu. Mig langar
að finna góða
stelpu, góða og
fallega ís-
lenska
stúlku."
mp@dv.is