Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Page 27
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 27
REGnBOGinn
SÝND kl. 4
iirnn
M/ISLTALI SÝNDkl. 10
!|5ÝND kl. 5.30, 8 og 10.30 B.1.12 SÝND kl. 10
www.sambioin.is □UDotby /DD/ SÍMI: 551 9000 www.regnbogirm.is | il. www.laugarasbio.is
Kvikmyndin Dís verður frumsýnd í kvöld. Myndarinnar hef-
ur verið beðið með talsverðri eftirvæntingu en hún er byggð
á samnefndri bók sem kom út árið 2000.
Loksins íslensk mynd
Kvikmyndin Dís verður frum-
sýnd í Smárabíói í kvöld. Það er Álf-
rún Helga Örnólfsdóttir sem leikur
Dís en í öðrum hlutverkum eru Ilm-
ur Kristjánsdóttir, Árni Tryggvason,
Þórunn Ema Clausen, Gunnar
Hansson, ívar Örn Sverrisson og
Elma Lísa Gunnarsdóttir.
101 rotta
Dís fjallar um hina 23 ára Dfs
sem býr á Laugaveginum ásamt
bestu vinkonu sinni. Að eigin sögn
er hún „meðalmanneskja í tilvistar-
kreppu" sem veit fátt ömurlegra en
þá kröfu að þurfa að meika það á
öllum sviðum. Dís getur nefnilega
ekki gert upp við sig hvað hana
langar að verða og leiðist einfalt líf
sitt. Inn í söguna blandast sambönd
hennar við Jón Ágúst og Lalla LA.
Annar þeirra er of góður að hennar
mati en hinn of mikill töffari.
Framtak sem ber að fagna
Myndin er gerð eftir samnefndri
bók sem vakti talsverða athygli á
sfnum tíma og þess vegna hefur
myndarinnar verið beðið með tals-
verðri eftirvæntingu. Bókin var
skrifuð af Birnu Önnu Björnsdóttur,
Oddnýju Sturludóttur og Silju
Hauksdóttur sem einmitt leikstýrir
myndinni en bókin kom fyrst út árið
2000. Talsvert er síðan íslensk bíó-
mynd kom í kvikmyndahús, svo
ekki verði talað um mynd eftir unga
og efnilega listamenn. Dís er þess
vegna framtak sem ber að fagna því
það er ekki á hverjum degi sem ís-
lenskar bíómyndir eru frumsýndar.
Lífið eftir vinnu
Tónleikar* * Bangsi, Buzby
og Einar Þórhallsson leika á Yidaki,
hljóðfæri ástralskra frumbyggja, í
versluninni 12 tónum við Skóla-
vörðustíg kl. 17 í dag.
• Ámi Heiðar Karlsson, Snorri Sig-
urðarson og Tómas R. Einarsson
djassa á Póstbamum, Pósthússtræti
13 kl. 22 í kvöld.
• Singapore Sling spilar á Grand
Rokk.
Opnanir. SýningÁsuÓlafs-
dóttur verður opnuð í sýningarsal
Listasa&s Reykjanesbæjar, Duus-
húsum.
• Viðamikil yfirlitssýning á verk-
um Rögnu Róbertsdóttur verður
opnuð í Listasafni Reykjavíkur, Kjar-
valsstöðum kl. 20. Þar getur að h'ta
ný og eldri verk, að-
allega unnin í ís-
lenskt grjót, hraun, vikur,
skeljamulning og jarðveg.
HBm
r——1
Morgunmatur
„Þegarég borða morgun-
mat í Reykjavík er það oft-
ast á morgunfundi með
Mínus á Kaffi Viktor. Við
fáum okkur oftast egg og
beikon, svona alvöru „english breakfast".
Ojammið.
„Maður getur alltaf haft
gaman af djamminu í góðum BP-'1
vinahópi. Það er fínt að byrja á Dillon og fá
sér öl og ræða málin, þaðan kannski á Sirkus,
svo kíki ég á Starra vin minn og hlusta á
þungarokk á Ellefunni.
„Efég þá fæ mér hádegis-
mat er það til dæmis pulsa
á Bæjarins bestu."
Kvöldmatur
„Ef ég fer út fæ ég mér
helst ítalskan á Horninu.
Það ersvodjöfulli góður
matur þarog klikkar aldrei.
Annars er líka fín stemning
og góðir, litlir réttir á Tapas. Annars er ég
mest fyrir að fá mér að borða hjá pabba.
Hann er meistarakokkur. Alltaf eitthvað rosa-
legt fúsíon í gangi hjá honum."
Uppáhaldsverslun
„Þegar ég rölti um og kíki í
búðir kíki ég á vin minn
Nonna i Dead. Svo er nýja
Spútnik helvíti töff. Dogma er
fín, töff bolir þar. Svo kíkiég
reglulega í Kós leðurvörur. Svo
fer ég til Fjölnis á tattústofuna og sé hvaða
krakka hann er að tattúa og finn mér tíma til
að klára hin ýmsu tattú á mínum líkama."
Keiisan
„Að spila live á tónleikum er ágætis líkams-
rækt fyrir mig. Það er fínt líka að taka arm-
beygjur og svoleiðis fyrir svefn og eftirtil að
halda i við Jónsa í Svörtum fötum. Annars er
það andlega heilsan sem skiptir
mig mestu máli. Mérfinnst
mikilvægt að vera um-
kringdur vinum mínum og
fjölskyldu. Maður má ekki
vera alltaf á móti öllu
eða tala illa um fólk.
Svo verðurmaðurað
elta draumana sina og
vera þakklátur fyrir
það sem maður hef-
• Steingrímur Eyfjörö opnar sýn-
inguna „Fýkur yfir hæðir" i 101 gall-
eryi.
Skemmtanir. Páll Óskar
skemmtir á Traffic í Keflavík í kvöld.
Diskóstemning eins og hún gerist
best í bland við margt fleira.
• Dúettinn Halli og KaUi skemmtir
í Ara í Ögri.
• Geirmundur Valtýsson og hljóm-
sveit skemmta á Kringlukránni.
• Matti X verður á Laugavegi 22
fram á rauða.
• Paparnir skemmta á Players í
Kópavogi.
• Atíi skemmtanalögga og DJ Áki
skemmta á Pravda.
• Hljómsveitin Dúr-X spilar á
neðri hæðinni á Celtic Cross.
• Hermann Ingi jr. skemmtir í
Búálfinum, Hólagarði.
• Hlj ómsveitin Sex volt skemmtir á
CaféAmsterdam.
• Hljómsveitin Spútnik spflar í
Pakkhúsinu, Selfossi.
DJ Palli í Maus á Kaffi List.