Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2004, Síða 31
DV Síðast en ekki síst FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 31 Súpa og bjór á 500 Oft sat maður á Austurvelli í alveg sæmilegu veðri í júlí og sótti sér volgan bjór í rflcið í Austurstræti. Fátt er jafnvont og volgur bjór nema ef vera skyldi enskan hans Davíðs Oddssonar en þar sem hún er ekki til umræðu hér verður þessi fullyrðing tekin af dagskrá hið snarasta. Við vorum bænheyrðir því skyndilega var því flaggað að ÁTVR ætlaði að koma sér upp kæli og selja kaldan bjór. Frábær nýjung alveg hreint sem okkur varð tíðrætt um. En jæja, kælirinn var settur í ÁTVR í Kópavoginum. Já, ef Kópavog skyldi kalla... Smárann. Svo um leið og búið var að byggja Smáralind var kælirinn horfinn og sennilega hefur hann verið steyptur inn í burðar- veggi Smáralindar. Jafn misheppn- uð markaðssetning er fáséð og það er erfitt að efast um það. En núna veit ég að þessi markaðssetning er viljandi misheppnuð. Hún á að vera misheppnuð. Eg myndi líka óska þess að markaðssetning á arseníki í barnamat myndi mistakast. Vegna þess að áfengi er eitur. Vissulega hressandi eitur oft á tíðum. En mjög ávanabindandi eitur sem gerir „frjálst val“ margra neytenda að sínu. Æi, spurðu bara litla frænda minn En djöfull er maður íhaldssamur og hallærislegur því samkvæmt ár- legum könnunum Samtaka verslun- Erpur Eyvindarson skoðar kosti þess að áfengissala verði áfram í höndum ÁTVR. Kjallari ar og þjónustu vfll meirihluti lands- manna léttvín og bjór í matvöru- verslanir. Samtök verslunar og þjón- ustu eru svo framfarasinnuð að þau pössuðu sig sérstaklega í seinustu könnun að spyrja nú líka litla frænda þinn hvort hann hefði áhuga á að kaupa áfengi úti í búð (úrtakið var á aldrinum 16-75). Aðgengi fólks undir aldri myndi sennilega aukast við einkasölu á áfengi sem og sala almennt. Það myndi leiða af sér að loksins myndu íslendingar geta státað sig af „vín- menningu svipaðri og meðal Dana og Frakka". Bjórfullir iðnaðarmenn og frönsk börn í rauðvínssósu eru æði en á fáum stöðum í Evrópu eru áfengistengdir sjúkdómar jafnskæð- ir. Enda eru Danir búnir að vera að færa áfengislöggjöfina nær norræn- um löndum á seinustu tíu árum, til dæmis með því að setja aldurstak- mark og einnig bann á bjórsölu í sjoppum eftir 20 á kvöldin. Lágt áfengisverð f Þýskalandi hef- ur hinsvegar leitt af sér mikla lækk- un upp tfl Danmerkur, Svíþjóðar og umræður eru í Noregi um það sama. Aðgengi er vissulega minna meðan áfengi er ekki í matvöruverslunum en hvað er vandamálið við það? Það má alveg vera athöfn að kaupa sér vín í ríkinu og það á í rauninni að vera það. Gott vín er ekki bara eitt- hvað remúlaði eða pakkasúpa. Að- gengið er meira að Abibassmekk- buxum í Bónus en að Benettonföt- um úr sérverslun. En maður vfll ekki allt í 10-11 því allt er betra sem er spari. Vín á að vera spari. Maður á að þurfa að gera sér sérferð, það er meira kúl að sækja eitthvað í sér- verslun en í aspashilluna í Bónus. Og svo er það sannað að ríkiseinok- un á áfengi er besta leiðin sem vitað er um í dag til að hafa hemfl á og stýra áfengisneyslu. Aðgengi fólks undir aldri myndi sennilega aukast við einkasölu á áfengi sem og sala almennt. Það myndi leiða afsér að loksins myndu íslending- ar geta státað sig af „vínmenningu svipaðri ogmeðal Dana og Frakka", Bjórfullir iðnaðarmenn og frönsk börn í rauðvínssósu eru æði en á fáum stöðum í Evrópu eru áfengistengdir sjúkdómar jafnskæðir. Tvær krónur af hverjum poka Ég er alveg til í að ræða ýmislegt í rekstri ÁTVR, aukið úrval, lækkað verð og svo framvegis. En allur skaði á fólki og kostnaður sem hlýst af fyllerísofbeldi, drukknum bíl- stjórum, drykkjutengdum sjúk- dómum sem og eignaskemmdum endar á reikningi almennings svo allur gróði af sölu áfengis á að renna óskertur í sama sjóð. Þótt Baugur eigi víst þetta blað get ég al- veg sagt sem mér finnst að Hag- kaup myndu kannski gefa tvær krónur af hverjum poka til þess að bæta upp skaðann sem hlýst af áfengisneyslu, en þeir myndu hirða ágóðann. Ég frétti að hið rómaða menningarmusteri Blásteinn, bar- inn í Árbæ, væri með frábært há- degistilboð, „súpa og bjór á 500 kall“. Ég myndi hiklaust nýta mér tilboð á þessum kalíber í vínbúðum ÁTVR vitandi að ég í væri að fjár- magna meðferðarúrræði en ekki skútukaup. Ég held að mikill meiri- hluti sé sammála þessu, líka litli sextán vetra frændi þinn. Hvareru þaunú Margrát flugrán Gústafsdóttir Kasólétt og tekur fjví rólega „Síðasliðin fimm árnef ég verið blaðamaður hjá Fróða en líka í lausamennsku hjá hinum og þess- um. Svo tók ég mig tfl og lærði ljós- myndun í Iðnskólanum. En nú er ég kasólétt og tek lífinu frekar rólega þangað til í lok nóvember en þá segja mér sérfróðir að ég verði létt- ari,“ segir Margrét Hugrún Gústavs- dóttir, blaðamaður og ljósmyndari. Kvikmynd Óskais Jónassonar Sódóma Reykjavík varfrumsýnd 11. október 1992 og var henni a far vel tekið. Með aðalhlutverk fóru Helgi Björnsson, Sóley Elísdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Þröstur Guðbjarts- son, Stefán St. Sigur- k jónsson, Eggert Þor- l leifsson ogMargrét ' Hugrún Gústavs- ' dóttir sem þótti sýna snilldar- takta á hvíta tjaldinu. Frábær bíll - frá bsert verð Mazda3 T Sedan 1,6 I kostar aðeins 1.805.000 kr. Rukahlutir á n Mazda3 bfll ársins íDanmörku, Finnlandi og Tékklandi. finnað sætið fvali á bfl ársins f Evrópu ásamtVWGolf. SIR HF Opið frá kl. 12-16 laugardaga . ’K... - jjjp| SkúUgötu 59, siml 540 5400 www.ri*slr.ll Söluumboð: Bílássf., Rkranesi - BSfi, flkureyri Betri bílasalan, Selfossi - SG Bflar, Reykjanesbæ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.