Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 3
The Fall á leiðinni Gamlir
rokkhundar gleöjast
„Já," segir Grímur Atiason treglega. „The
Fall. Þeir koma 18. október og verða með tón-
leika í Austurbæ. Þetta eru algjörir snillingar
sem eru að koma nú í þriðja sinn til íslands. Síð-
ast voru þeir með tónleika árið 1983 og þeir sem
muna þá tónleika fá í hnén við tilhugsunina."
Grímur segir Matthew Smith forsprakka
sveitarinnar athyglisverðan og skemmtilegan ná-
unga. „Hrokagikkur, Manchester-pest. Gestur
sem gaman er að fá. The Fall hefur verið starfandi allt
frá árinu 1979 og er því hljómsveit á aldur við
Fræbbblana. Þetta verður retró-konsert og þó ekki því
The Fall eru með mikið nýtt efni."
Grímur er enn einn sem skipar sér í vaxandi stétt
tónleikahaldara. Grímur vill reyndar ekki meina að
hann sé nýgræðingur á því sviði. Hann hafi hins vegar
verið rólegri í tíðinni en þeir flestir hverjir, verið
kannski með eina og eina uppákomu með löngu milli-
bili.
„Jájá, það er langt síðan ég byrjaði. Ég flutti til
dæmis inn Happy Mondays árið 1990 og hlaut bágt
fyrir. Blaðamál í tengslum við hass fylgdu því framtaki
og ég var rekinn úr MH fyrir vikið. Þeir voru þá á barmi
heimsfrægðar og komu ffam í hátíðarsal menntaskól-
ans.“ Þetta var mikið gigg og þjóðsögur urðu til í
tengslum við það. Grímur viðurkennir reyndar að
Happy Mondays-menn hafi verið mjög happy. „Þeir
voru algjörlega steiktir. Gengu út úr Leifsstöð og fi'ruðu
strax þá í fyrstu jónunni. Reyktu og drukku út í eitt.“
Grímur er með nokkur járn í eldinum. Frá einu,
sem má teljast spennandi, vill hann ekki greina að svo
stöddu máli en upplýsir að sænski söngfuglinn Lisa
Egdal sé á leiðinni. Hún verður með tónleika 30. októ-
ber í Austurbæ. „Margir sem hafa gaman af henni.
Hún syngur á ensku og sænsku jöfnum höndum og
höfðar til fólks sem er á jaðrinum, fólk úr leikhús-
bransanum og svo framvegis. Gamall rokkhundur eins
og ég hlusta svo reyndar á hana og hef gaman af.“
jakob@dv.is
The Fall Verða með tónleika IAusturbæ
18. september. Þeirsem muna hljómsveit
ina i Reykjavík 1983 fá í hnén við tilhugs-
unina. Stórtlöindi fyrir rokkunnendur.
Hin
llf 1"JTI
Þórey Edda Elísdóttir
Fullt nafn: Þórey Edda Elísdóttir.
Fæöingardagur og án 30. júni 1977.
Maki: Enginn.
Böm: Engin.
Biffeið: Engin.
Starf: Stangarstökvari og nemi.
Laun: Er á styrkjum frá íþrótta- og ólympíu-
sambandinu. Veit ekki hvað ég fæ á næsta
ári.
Áhugamál: íþróttir, lestur og að hitta vini
mína.
Hvað hefur þú fengið margar réttar tðlur f
Lottóinu? Held að þrjár sé metið.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Bæta persónulegt met í stangarstökki.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Ætli
það sé ekki bara að taka upp úr töskum.
Uppáhaldsmatun Allskonar íslensk villibráð
og íslenskur frskur.
Uppáhaldsdrykkur. Vatn, ekki spurning.
Hvaða (þróttamaður finnst þér standa
fremstur (dag? Carolina Kluft.
Uppáhaldstfmarit: Vikan og Lifandi vísindi.
Hver er fallegasti maður sem þú hefur séð?
Zidane er hrikalega flottur.
Ertu hlynnt eða andvfg rikisstjóminni? And-
víg.
Hvaða persónu langar þig mest að hitta?
Nelson Mandela er áhugaverður.
Uppáhaldsleikari: Tom Hanks.
Uppáhaldsleikkona: Nicole Kidman.
Uppáhaldssöngvarí/söngkona: Bono og
Björk.
UppáhaldsstjómmálamaðunSteingrfmur
J. Sigfússon.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Andrés
önd.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttirog Sex
and the City.
Ertu hlynnt eða andvfg veru vamariiðsins
hérálandi? Andvíg.
Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Mér
finnst Rás tvö.
Uppáhaldsútvarpsmaðun Enginn sérstakur.
Stöð 2, Sjónvarpið eða Skjár einn? Sjónvarp-
ið.
Uppáhaldssjónvarpsmaðun Enginn sérstak-
ur.
Uppáhaldsskemmtistaður: Kaffi París.
Uppáhaldsfélag f Iþróttum: Fimleikafélagið
Björk og fimleikafélag Hafnarfjarðar. Svo
held ég með Leverkusen hér í Þýskalandi.
Stefnirðu aðeinhverju
sérstöku f framtíð-
inni: Ég ætla að
klára ferillinn
með góðum
árangri og
klára námið
mitt.
Hvaöætlar
þúaðgeraf
sumarfrfinu?
Égferheimtil
Islands í
sept-
Þórey Edda Elísdóttir
stangastökkvari Þórey
stefnir að þviað klára feril-
inn með góðum árangri og
klára verkfræðinámið.
_
Frikki Karls í föruneyti
hinna ríku og frægu
Þær fréttir berast nú frá Stóra-
Bretiandi að vegur gítarleikarans
Friðriks Karlssonar í Mezzoforte
fari mjög vaxandi. Mun hann vera
meðal þriggja eftirsóttustu undir-
leikara þegar verið er að taka upp
plötur í London. Og í kvöld mun
Friðrik koma fram í mjög vinsæl-
um viðtalsþætti Gísla Marteins
þeirra Englendinga, (bara eldri
týpan), Michael Park-
inson. Þar leikur
Friðrik undir hjá
\ sjálfum Ronan
' Keating, írska
hjartaknúsaranum
sem áður söng
með drengjaband-
inu Boyzone, sem
Friðrik Karlsson og Keating Þeir
félagarnir munu koma fram saman i
kvöld I vinsælum sjónvarpsspjallþætti
Parkinson IBBC.
mun frumflytja nýtt lag. Það hefst
á um hálfrar mínútu gítarspili
Friðriks. Hann er því ekki í neinu
aukahlutverki í þættinum. Sem
Gísli Marteinn þeirra Breta nýtur
Parkinson gríðarlegrar athygli.
Velunnarar Friðriks í London full-
yrða að allt UK verði að horfa,
drottningin og allur pakkinn.
Aðrar stórstjörnur sem munu
koma til
spjalls hjá
Parkinson
eru
Denzel
Wash-
ington og
Naomi
Campell.
iP .47
fv''
1 • j
Ég er ekki eini
höfundur Dísar
„Bókin okkar Silju Hauksdóttur og Odd-
nýjar Sturludóttur um Dís kom út hjá þessu
þýska fyrirtæki I fyrra, “ byrjar Birna Anna
Björnsdóttir á að útskýra.„Og hún gekk mjög
vel þar. Svo þegar þeir fréttu afnýju bókinni
minni, Klisjukenndir, vildu þeir endilega fá
hana lika, leituðu til réttindaskrifstofu Eddu-
útgáfu og þetta gekk allt upp.“
Birna Anna segist vera að fínpússa hand-
ritið þessa dagana.„Ég hefunnið i bókinni
sl. ár og er eiginlega ekkert farin að tjá mig
um hana, ég get eiginlega varla talað um
hana ennþá. En iörstuttu máli fjallar hún
um fyrstu fullorðinsár konu i Reykjavík á
okkar dögum. Hún heitir Bára og lifir ansi
kröftugu innra lífi. Ég nefni bókina Klisju-
kenndir þvl barátta ungra kvenna er oftar
en ekki við klisjurnar allt I kringum þær um
leið og þær eru að átta sig á sjálfri sér. Þetta
er hvorki dæmisaga né samfélagsboðskap-
ur, ég vona bara að lesendum þyki hún
skondin og skemmtileg."
En gruna Þjóðverjar
Birnu Önnu um að
vera aðalhöfund
Dísar úr því
þeirflýttu
sérsvona
að kaupa
nýju bók-
ina?
„Nei,nei,nei,"
svarar Birna Anna
hlæjandi.„Þeir hefðu
keypt bækur afSilju
og Oddnýju líka,
alveg pottþétt.
Mín varbara til-
búin og þess vegna
er þetta svona," segir
Birna AnnaBjörns-
dóttir.
Birna Anna
Björnsdóttir
„Þjóðverjar
hefðu lika keypt
bækurafSilju
og Oddnýju."
Ótrúleg verö
VERÐDÆMI
Stóll
Verð áður kr. 54.900
Verð kr. 37.900
Microfiber áklœði
3 sœto sófi
Verð áður kr. 98.900
Verð kr. 75.800
Microfiber áklœði
2 sœto sófi
Verð áður kr. 87.900
Verð kr. 59.900
Microfiber ákJœði
VISA OG EURO
RAÐGREIÐSLUR
Opnunartími:
Mán og fös..14 -18
Laug og sun.11-16
SETTEHF • HLIÐASMARA 14 • 201 KOPAVOGUR • SIMI 824 1010 » 8241011