Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2004, Page 6
6 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004
Helgarblaö DV
Álögunum aflétt Guðnl Albertssan,
til vinstri á myndinni, ofhenti Franko
Matosevió geisladisk Papanna og upp
skar mikiö pakkiæti. Húfulagið var
skömmu siðor tekið af og Frelsorons
FRÉTT VIKUNNAR
Blóðbaðið í Beslan
„Frétt vikunnar hlýtur tvimælalaust aö
vera það sem gerðist I Beslan / Norður-
Ossetiu.Annarserég
ekki búin að fylgj-
ast vel með
hvað var að
gerast hér
innanlands
en ég komst
ekki hjá því
að heyra af
þessum harm-
leik. Þetta sló mig
alveg grlðalega og
það hlýtur að eiga við allan heiminn
enda erþetta gríðalegur harmleikur.
Þetta eru bara börn'
Þóra Sigurðardóttlr umsjónarmaður
Stundarinnar okkar
Húsnæðislán bankanna
„Ég hefnú ekki mikið
vera að horfa á
fréttirí vikunni
þarsem þaö
er búiö að
■vera brjálað
að gera I
kringum ný-
nemadaginn
hérí háskól-
anum.En erþað
samt ekki þetta
með húsnæöislán bankanna? Ég fór á
einn fund um það og sá svo fimm mínút-
ur I kastljósinu þar sem fjallað var um
þetta. Þetta er frétt vikunnar aö mlnu
mati afþvl litla sem ég hefgetaö fylgst
með.“
Sigriður Dögg Cuðmundsdóttir for-
maður stjórnmálafræðinema við Hl
Tveir tapleikir landsliðsins
„Það hlýtur að vera hvað Islendingar fá
alltafslæma dóm-
araá landsleiki
slna. Og hvað
Árni Oautur
er að standa
sig illa f
markinu, ég
varekki
ánægðurmeð
hans frammi-
stöðu.Það er llka
fáránlegt að Oylfí sé ekki
I byrjunarliðinu frekar en Arnar Orétars-
son en auðvitaö ráöa þjálfararnir sem ég
styð heilshugar. Það er auðvitað eðlilegt
að landsliðið sé gagnrýnt þegar þeir spila
illa en ég heftrú á þeim.“
Björn Bragi Arnarsson ræðumaður Is-
lands
Hryllingur í Beslan
„Frétt vikunnar er að
mínu mati eftir-
málaratburð-
anna I Baslan
I Norður-
Ossetiu.Allt
sem á eftir
hefurkomiö
affréttum
þaðan ersvo
óhugnanlegt að
það væri hreinlega hjá-
kátlegt að nefna ekkiþennan hrylling."
Þorfinnur Ómarsson, verkefnisstjóri
MA-náms i blaðamennsku við Hl
Enn ein frestun
vætuna af regnhlífinni fyrir utan en
ekki eftir að inn er komið.
Það skaut því eilítið skökku við
þegar ein fræga fígúran frá útlandinu
sagði í viðtali á dögunum að honum
fyndist íslenska þjóðin vera sú sið-
menntaðasta sem hann hefði komist
í kynni við. „Um hvað er maðurinn
að tala," fussaði ég með sjálfum mér
og fletti yfir á næstu síðu, stór-
hneykslaður á þessu gríðarlega of-
mati. Siðmenntuð? Við? Hvenær?
En svo rann það upp fyrir mér,
sem þó var ljóst fyrir, að umræddur
maður væri ekki einungis heims-
frægur djókari, heldur einnig per-
sónulegur vinur allsherjagoðans ís-
lenska og svaramaður.
Og ég gat tekið gleði mína aftur.
Höskuldui Ólafsson
Á réttláta jafnt sem rangláta
„Framkvæmdum við
gatnamót
Miklubrautar
og Kringlu-
mýrarbraut-
ar hefur ver-
iö frestað
einu sinni
énn. Það vek-
ur undrun þar Xt
sem R-listinn ætti
að vera búinn að átta
sig á mikilvægi þess að grlpa þarna til
framkvæmda til að fækka slysum og
auövelda samgöngur í Reykjavík."
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgar-
fulitrúi Sjálfstæðisflokks
Þá eru haustrigningamar loksins
komnar. í mínum huga er þetta eini
veðurhamurinn sem hægt er að
treysta á þegar það kemur að ís-
lenskri veðráttu. Sjaldnast getur
maður treyst á snjóinn á jólunum
þegar veturinn á að vera í garð
genginn og ekki getur maður treyst á
sólina á sumardaginn fyrsta. Það hef-
ur margsannað sig. Og á vorin, ja,
hvað gerist eiginiega á vorin? Núna á
ég allt í einu erfitt með að muna eftir
einu einasta vori. En haustrigning-
amar láta ekki bíða eftir sér. Ónei,
þær em traustsins verðar.
Útlensk kona
sem varð á vegi
mínum um dag-
inn sagðist hafa tekið eftir því að í
rigningu höguðu allir íslendingar sér
eins. í stað þess að skjóta regnhlíf yfir
höfuð sér, lyftu þeir öxlunum upp að
eyrum, kýldu höndunum í úlpu-
vasana og settu upp stóra grettu. Ég
sagði henni að ástæðan hlyti að vera
rokið sem gerði það ómögulegt fyrir
okkur að burðast með regnhlífar, að
þær breyttust í einni vindhviðu í and-
hverfu sína og svo féllu rigningar-
dropamir aldrei lóðrétt, heldur
þeyttust þeir lárétt með rokinu sem
ylli því, sem mér finnst enn þann dag
í dag svo merkilegt, að við værum
alltaf bara blaut öðm megin.
Þessi sjaldgæfu kynni okkar fs-
lendinga af regnhh'fum er hins vegar
rótin að einum stærsta menningar-
árekstri sem við lendum í á megin-
löndunum í kring. Það er nefiiilega
svo áð þegar það rignir í útlöndum
flykkjast íslendingar alltaf að næsta
sölumanni og
kaupa sér regn-
hlífar. Skiljan-
lega. Sú upplifun að standa þurr
undir regnhh'f er jafh heillandi í okk-
ar huga og heitar nætur eða ódýr
bjór. En sem sagt, þegar við íslend-
ingar kaupum okkur regnhlífar og
örkum síðan af stað út í samfélag
sem er vant lóðréttu falli rigningar-
dropanna, kemur sveitamennskan
ætíð upp um okkur. Því allar þær
sjálfsögðu umferðareglur sem út-
lendingar fara eftir í rigningarveðri
virðast vera okkur sveitafólkinu
ókunnar, eins og lyfta regnhlífinni
upp eða toga hana niður, eftir þri
sem við á þegar maður mætir öðrum
vegfaranda. Að halla hlífinni á þann
veg að sá sem stendur við hlið okkar,
eigi ekki bununa vísa ofan í hálsmál-
ið. Og síðast en ekki síst, að hrista
Það er dýrmætt fyrir unglinga að eiga val
BORGARALEG FERMING 2005
- Skráning er í fullum gangi.
- Upplýsingar á heimasíðu félagsins:
www.sidmennt.is og í símum 567-7752,
557-3734, 553-0877.
- Skráning í sömu símum eða á eyðublaði á
heimasíðunni.
- Boðið verður upp á helgarnámskeið,
ætlað landsbyggðarfólki.
Pissað upp í vindinn
Islendingur í pílagrímsferð
með Papadisk Hufulagiö w
að æra Króata
íslenskur ferðamaður, Guðni Albertsson, hélt upp í pflagríms-
ferð til ferðamannabæjarins Porec í Króatíu í lok ágúst. Guðni
hafði fregnað það hjá samstarfsmanni sínum hjá Fóðurblönd-
unni að eigandi fslendingabarsins Bistro Antonia hafi verið orð-
inn úttaugaður eftir samfellda spilun á laginu Hvar er, hvar er
húfan mín sem Guðjón Rúdolf Guðmundsson gerði ofurvinsælt
á síðasta ári.
Á íslendingabamum í Porec var
svo komið að lagið var orðið veit-
ingamanninnum og starfsfólki
hans talsverð þjáning eftir að það
hafði verið í stöðugri spilun mán-
uðum saman. Guðni ferðalangur
segist hafa fundið til samúðar þeg-
ar hann heyrði af einsleitri tónlist
Króatans á kránni. Guðni hafði
áformað sólarferð til Króatíu með
dóttur sinni og vinnufélögum
hennar en sá ekki glöggt tilganginn
fyrr en hann fékk þá hugljómun að
hann gæti bjargað Króatanum úr
tónlistarnauðinni. Ferðin fékk því
tilgang.
„Ég ákvað að koma við í Frí-
höfninni og kaupa geisladisk með
Pöpunum og færa Króatanum,"
segir hann.
Guðni stóð við áform sín og
fjárfesti í diskinum. Hápunktur
Skálað fyrir pilagrimf
Franko veitingamaður bauð
igleði sinni Ouðna og sam-
ferðafólki hans fria drykki.
slóð ómaði um barinn.
ferðarinnar var svo þegar hann
hélt í lokaáfanga pílagrímsferðar
sinnar ásamt 10 ferðafélögum á
Bistro Antoniabarinn í seinustu
viku.
„Ég er ekkert fyrir að liggja í sól-
baði svo þetta var kærkomin til-
breyting. Það gladdi mig hve
ánægður veitingamaðurinn varð
við gjöfina," segir Guðni.
Það var stór stund á Bistrobam-
umþegarveitingamaðurinn, Franko
Matosevió tók við hinum nýja diski
Papanna þar sem þeir flytja lög og
texta Bubba Morthens. Merkja mátti
að Franko veitingamaður viknaði
við góðmennskuna og hann bauð í
létti sínum Guðna pílagrími og öllu
samferðafólki hans fh'a drykki. Um
það leyti sem skálað var slökkti hann
á Húfulaginu og Frelsarans slóð
ómaði um barinn.
„Ég var orðinn dálítið þreyttur á
þessu lagi, Hvar er, hvar er húfan
mín,“ sagði Franko við DV eftir at-
höfnina á íslendingabarnum.
Hann kvaðst myndu spila Papana
á næstunni en það væri kærkomið
að fá fleiri diska í safnið. Guðni Al-
bertsson var einnig himinsæll eftir
athöfhina og sagðist nú snúa glað-
ur aftur til íslands. „Það er gaman
að láta gott af sér leiða," segir
Guðni sem nú íhugar hvert hann
eigi að fara í pílagrímsferð næst.
rt@dv.is