Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2004, Qupperneq 21
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 21
„Ég hef leikið í yfir fjörutíu leikritum,
í áramótaskaupum og bídmynd en
það virðist ekki skipta neinu máli
þegar sjónvarp er annars vegar. Fólk
tekur miklu meira eftir þeim sem
koma fram í sjónvarpi og margir
standa í þeirri trú að ég sé bara að
byrja í bransanum," segir hún.
Hún segist hafa orðið þess vör að
fólk hafi tekið meira eftir henni og
þekkt hana eftir að fyrri serían var
sýnd. „Mér þótti það óþægilegt fyrst
og var dálítið paranojuð og spé-
hrædd. Svo vandist það en ég get ekki
sagt að það hafi stigið mér til höfuðs.
Alls ekki og ég held að ég verði þess
ekki vör lengur," segir hún. „í hópn-
um er skemmtilegt fólk og þetta er
stanslaust grín. Ég býst við að við
höfum ekki skemmt okkur síður en
áhorfendur við að vinna þessa þætti.
Bæði er leikarahópurinn skemmti-
legur og mikið af frábæru fólki allt í
kringum gerð þáttanna."
í Svínasúpunni er Gulla oftast í
dálítið móðurlegum hlutverkum og
er í góðu jafhvægi við ungu mennina
Sveppa og Audda. „Ég hef líka fengið
ofsalega skemmtilega sketsa sem ég
er mjög sátt við,“ segir hún. Aðspurð
hvort þau séu samhent og alltaf sam-
an segir hún svo ekki vera en hins
vegar séu strákarnir saman út i eitt
enda vinni þeir allir við sama sjón-
varpsþáttinn.
„Það er svo skrýtið að ég hef aldrei
fyrr en í 5stelpur.com umgengist
mikið kollega mína utan vinnutíma.
Auðvitað er talsvert samband milh
okkar stelpnanna sem vorum saman
í bekk en ég hef alltaf átt minn trygga
vinahóp fýrir utan leiklistina. Ein-
hverra hluta vegna hef ég ekki eign-
ast vinkonur í faginu fyrr en í vor,"
segir hún hugsandi.
Veit að ég er dálítil fitubolla
Gamanið í þáttunum gengur dá-
lítið út á það að gera grín að vaxtar-
lagi Gullu en hún er nokkuð þyngri
en konur vilja vera. Hún segist ekki
hafa fundið fyrir neinum pirringi
þess vegna og það hafi alls ekki geng-
ið of langt. „Mér finnst miklu betra
að gert sé grín að því að ég er yfir
kjörþyngd en því að ég sé heimsk. Ég
hef alveg húmor fyrir vaxtarlaginu en
hins vegar er alls ekki sama hvemig
grínið er gert.
Það em til ofsalega ósmekklegir
feitubollubrandarar en í Svínasúp-
unni em þeir fyndnir. Aldrei meðan
ég tók þátt í því gríni fann ég fýrir
óþægindum," segir Gulla en játar að
það komi fyrir að hún vildi vera öðm-
vísi í vextinum. Þegar hún kaupir föt
þá langar hana eðlilega eins og allar
konur þekkja að vera grindhoruð.
„Ég veit að ég er dálítil fitubolla en
mér þykir það nú ekki leiðinlegra en
svo að ég hef ekki gert neitt í því. Ef
það færi að bögga mig verulega þá
myndi ég vafalaust fara í róttækar að-
gerðir. En því er ekki að neita að ég er
ekkert öðmvísi en aðrar konur sem
em yfir kjörþyngd, ég er meðvituð
um það og ég býst við að þeir sem
þannig em £ vextinum séu í stöðugri
baráttu við aukakílóin."
Hún bendir á að margar góðar
gamanleikkonur séu dálftið þykkar
og ffábærar þrátt fyrir vaxtarlagið.
„Það er enginn mælikvarði á hvað þú
getur gert, hvort þú ert feit eða mjó.
Nei, nei, þetta pirrar mig ekki," segir
hún hlæjandi og þykist ekkert kann-
ast við að fólk tah um þessa sætu
feitu í Svínasúpunni. „Það er ekki
verra og kemur á óvart en ég man
ekki eftir að ég hafi verið ávörpuð:
Hæ, sæta!“ segir hún og hlær enn
meira.
Enda kannski sem blaðamaður
eða sendiherra
Eftir að Gulla kom heim frá írlandi
hljóp hún ekki inn í hlutverk í leik-
húsunum. Hún þurfti að lifa eins og
aðrir og fór að vinna á skrifstofu. Það
hvarflaði að henni þá að gott gæti
verið að hafa aðra menntun en leik-
listina og þess vegna skráði hún sig í
mastersnám. „Já, ég vildi tryggja mig
betur og skráði mig til náms á Bifröst.
Meðal annars er þar nám sem kallast
Menningar- og menntastjómun og
það er meira og minna öll menning-
areh'tan í því. Eg ætla hins vegar að
halda mig við Evrópufræðin sem ég
byrjaði á í fyrra en ég hef ahtaf haft
áhuga á þeim. Ég ætlaði ahtaf að
verða blaðamaður, agressívur
stjórnmálaskríbent sem léti að sér
kveða í þjóðfélaginu. Ég tók stóra u-
beygju með því að fara í leiklistina
en þessi löngun hefur ahtaf blundað
í mér. Láta að mér kveða þar sem
rödd mín heyrist og það er aldrei að
vita nema fari að koma tími á stjórn-
málin," segir hún loks og neitar ekki
að það gæti allt eins verið að það fari
að heyrast í henni á þeim vettvangi.
„Ég var orðin leið á að hafa sterk-
ar skoðanir heima í eldhúsi og
þruma þeim endalaust yfir þolin-
móða kaffigesti. Eins og kvenna er
háttur fannst mér eðlilegt að ég færi
að læra til þess sem mig langaði að
tjá mig um," segir Guha en hún neit-
ar ekki að oft skorti hana tíma.
Mastersnám sé mjög krefjandi og
alls ekki gert með annarri hendi.
„Þetta verður soldið púsluspil í
vetur, æfingar og sýningar á Litlu
stúlkunni með eldspýturnar, sýn-
ingar á 5stelpum og svo að reyna að
byrja á mastersritgerðinni."
Liggur mikið á hjarta
Hún er eigi að síður bjartsýn og
námið gengur vel. „Maður veit held-
ur aldrei hvað framtíðin ber í skauti
sér. Samningurinn við leiklistina er
tvíhliða, hún getur aht eins snúið
baki við mér eins og ég henni. Þó að
aht gangi ljómandi vel núna er ekki á
vísan að róa og það er ekkert gar-
antí. Ég fékk að kynnast því. Maður
verður hreinlega að hafa aðra
menntun því leiklistarmenntun er
einskis verð ef maður vinnur ekki í
greininni."
Guha segist hafa vahð námið þar
sem hún hafi áhuga á þessum mála-
flokki og er sannfærð um að við ís-
lendingar eigum eftir að ganga í Evr-
ópusambandið.
„Hvað sem yfirlýsingum Hahdórs
Ásgrímssonar líður komumst við ekki
hjá því. Við samsömum okkur Evr-
ópuþjóðum og vhjum vera þátttak-
endur í því sem þar fer fram," segir
hún.
Guha segist aht eins geta endað
sem blaðamaður eins og hún ætlaði
sér á yngri árum en hún tekur ffam
að það sé svo margt annað sem komi
th greina. „Ég gæti endað sem sendi-
herra, gæti verið menningarfuhtrúi.
Ég get aht, það er sama hvar drepur
niður, ég treysti mér í það. Kannski
langar mig lflca að fara á framboðs-
lista og setjast á Alþingi," segir hún
brosandi og hlær þegar hún svarar
að Davíð hafi ekki enn hringt í hana.
Enda telur hún að seint myndi hún
Efað einhverntíma
kemur að því að ég
festi varanlega ráð
mitt þá hefég áhyggj-
ur afþví að verði
hunderfitt því ég er
kominn inn í svo
þægilega rútínu.
hlíta hans kahi. Líklega sé hún hin-
um megin við línuna.
„Hvað er það sem mig langar að
breyta?" spyr hún og hugsar stund-
arkorn. Síðan skehir hún upp úr og
verður feimnisleg á svipinn. „Við
búum í 250 þúsund manna
mikrósamfélagi með auðlindir um-
fram það sem margar aðrar þjóðir
búa við. Mér finnst bara allur þessi
rekstur á okkar litía heimhi með slflc-
um ólfldndum að ég hugsa oft, hvers
vegna þessir 64 eða hvað margir þeir
eru, fara ekki í bara smá frí og fá
röska og góða húsmóður sem er
búin að reka heimili í 15-20 ár, tíl að
græja þetta," segir hún, andvarpar
og bætir við að einfaldir hlutir séu
oft gerðir alltof flóknir.
Gullu er greinhega alvara. Það er
því næsta víst að einhverjir mega
fara að hugsa sinn gang því hún er
lfldeg tíl að standa við það sem hún
segir.
En hvenær lýkur náminu? Hún
hikar aðeins og hugsar sig um og
segir síðan: „Bara það þegar það er
búið." Síðan skehihlær þessi laglega
kona og víst er að hún hefur ekki
sagt sitt síðasta orð.
bergljot&dv.is
FRAMLENGING!
Vegna gríðariegrar aðsóknar og fjölda áskorana sýnum
víð vinsœlustu myndimar áfram í nokkra daga.
KEN PARK SLÆRIGEGN!
★★★
„GRÍPANDI!"
-H.UMBL
3000 manns hafa séð Ken Park á einni viku
og þrisvar sinnum hefur verið uppselt.
★★★ „Sterk og óvœgin." - Ó.Ö.H., DV.
COFFEE & CIGARETTES
★★★★
-MBL
„Nálgast það besta sem komið hefur frá þessum mergjaða
furðufugli, sem jafnan fer ótroðnar slóðir sem kollegar hans
eru að reyna að feta út um allar jarðir."
- Sœbjörn Valdimarsson, MBL.
★★★★ Ojphtring
fhe Fnedmans
Allra síðastu sýningar á sunnudaginn!
„Vœgast sagt elnstök helmlldarmynd og því
glœpurað löta hanaframh|á sérfara'
- Einar Árnason, Fréttablaðið
Myndin með mestu aðsóknina!
„Kostuleg bleksvört gamanmynd... frábœrlega vel
gerð í alla staði..." - Snœbjörn Valdlmarsson, MBL.
-fiim
unouR
visir
Landsbankinn Alsherjarpassinn gildir áfram á allar aukasýningar.