Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2004, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004
Helgarblað DV
b
1
& Ár &
■
DV-mynd E.ól
„Örlagastaðurinn minn er á milli fyrstu og annarr-
ar stofunnar á jarðhæð Austurbæjarskólans. En það
var einmitt þar sem ég hljóp yfir bekk, frá sjö og upp
í átta ára bekk. Þannig var að ég var búinn að læra allt
námsefni fyrsta ársins hjá honum afa mínum og var
þess vegna ákveðið að færa mig milli bekkja. Ég man
þennan atburð eins og þetta hefði gerst í gær. Lognið
á yfirgefnum ganginum, bara eins og heimurinn væri
hættur að anda. Og dropahljóðið í vaski beint á móti
. ■ stofunni, yfirhafnir á
| snögunum og á gólf-
inu skór og stígvél svo
langt sem augað eygir. Ég náði bara að fara í vinstra
stígvélið því ósýnilega manneskjan, núna er hún
nefnilega á bakvið minnið, hún vísaði mér strax yfir í
næstu stofu. Þessi atburður varð til þess að samferð-
arfólk mitt í gegnum lífið hefur aldrei verið á sama
aldri. Líkamlega er það alltaf annað hvort yngra eða
eldra mér sjálfum. Það hefur haft ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar, mjög gæfuríkar og oft á tíðum óvæntar."
Haraldur Jónsscm myndhstarmaður
■
Stórkostleg helgi í frábærum bæ
Ég vaknaði við sólargeislana sem vakti mikla
ánægju því það hafði verið spáð rigningu. Eðli
málsins samkvæmt skiptir miklu máli að hafa
gott veður á svona dögum. Eftir að hafa
búið til morgunmat handa
dætrum mínum fór ég að
gera mig tilbúinn fyrir
slaginn. Konan mín var
erlendis en ég bjó til
vöfflur og ávaxtasafa
enda var ég í góðu
stuði vegna sólar-
innar. Upp úr 9
keyrði ég niður í
bæ og fylgdist með
þeim sem voru að
setja sitt prógramm í
gang. Sjórinn var
alveg spegilsléttur og
veðrið frábært. Ég fór
upp að golfvellinum í
Leiru en þar hefur maður
gott útsýni yfir Faxaflóann.
sá ég rigningarský yfir
Reykjavík og var uggandi yfir
Steinþór Jónsson hótelstjóri og
formaður Ljósanæturnefndar lýslr
Ljósanótt I Keflavfk.
Þar
Ljósanótt Samkvæmt Steinþóri mættu um 30 þúsund gestir
á hátlðina sem gekk vel I alla staði enda veðrið gott.
því hvort þau ætluðu sér nokkuð að koma til
okkar.
Um hádegið sótti ég stelpurnar og systkina-
börn mín og sýndi þeim hvað væri í boði yfir
daginn. Ég leyfði þeim að prufa einhver tæki því
ég vissi að ég hefði takmarkaðan tíma fýrir þau
um daginn. Eftir það fylgdumst við með flugsýn-
ingunni. Hún var afar íjölbreytt og skemmtfleg
og þar sem hún var nýtt atriði á hátíðinni var
spennandi að sjá hvernig hún myndi takast tfl.
Næst lá leiðin á opnanir listasýninga en ég var
meðal annars viðstaddur afhjúpun listaverks við
Sparisjóðinn í Keflavík. Um klukkan 4 fór ég
ásamt bæjarstjóranum að heiðra gullaldarlið
Keflavíkur í fótbolta með svokölluðu stjörnu-
skori Reykjanesbæjar. Þetta er koparskjöldur
sem við setjum í götuna og svipar til þess sem
gert er í Hollywood. Þarna voru 40 einstaklingar
sem voru þessa heiðurs aðnjótandi á þessari
ánægjulegu athöfn.
Ég rétt náði í lokin á landsleiknum í fótbolta á
nýja sportbarnum okkar. Þar sá ég að það ringdi
enn í Reykjavík en veðrið var enn gott hjá okkur.
Það er alveg með ólíkindum hvað veðrið verður
hluti af stemmingunni. Það lá þungur bakki allt í
kringum okkur en einhvern veginn myndaðist
gat yfir okkur. Maður fann að fólk var stolt af
bænum sínum og í góðu skapi og var að
skemmta sér vel.
Eftir leikinn var ég orðinn þreyttur og fór
heim, fékk mér snarl og slakaði á. Um klukkan
átta skellti ég mér svo aftur í miðbæinn þar sem
fjöldasöngur og skemmtiatriði voru í gangi.
Hápunktur hátíðarinnar var tendrun ljósanna á
berginu og svo fylgdist ég með flugeldasýning-
unni sem var alveg stórglæsileg og fékk algjöra
gæsahúð þegar Gamli bærinn minn með Hljóm-
um var spilaður undir. Þegar flugeldasýningunni
lauk kom Ljósanæturnefnd saman þar sem við
klöppuðum hverju öðru á öxlina eftir velheppn-
aðan dag. Eftir það rölti ég á milli skemmtistaða
og skreið upp í rúm klukkan 3 ánægður með dag-
inn þótt ég saknaði konunnar minnar. Þetta var
stórkostleg helgi í frábærum bæ.
Steinþór Jónsson
hótelstjóri „Ég tók
þáttl hápunkti hátlð-
arinnarsem var
tendrun Ijósanna á
berginni og svo fylgd-
ist ég með flugelda-
sýningunni sem varal-
veg stórglæsileg og fékk
algjöra gæsahúð þegar
Gamli bærinn minn
með Hljómum var
spilaður undir."