Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2004, Blaðsíða 33
I
32 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004
Helgarblað DV PV Helgarblað
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2004 33 ~
Þremur árum eftir 11
september
Þrjú ár eru í dag liöin frá hryðjuverkaárásunum á New
York og Washington. Um 3.000 manns létu lífið í árás-
unum og Bandaríkin áttu samúð heimsbyggðarinnar.
Það varði þó ekki lengi því utanríkisstefna Bandaríkj-
anna hefur tekið stakkaskiptum og síðan 11. september
hafa tvö stríð verið háð í nafni baráttunar gegn hryðju-
verkum. Þá hefur mannréttindum víða verið fórnað í
nafni þjóðaröryggis.
„Ég trúi því að helsta og mesta
skylda forseta Bandaríkjanna sé að
tryggja öryggi almennings. Ef
Bandaríkin sýna veikleika á næsta
áratug mun veraldarinnar bíða
mikill harmleikur. Þetta mun ekki
gerast á minni vakt. Við höldum
áfram að mæta hryðjuverkamönn-
um með árásum erlendis svo við
þurfum ekki að mæta þeim heima,"
sagði George W. Bush í ræðu á
flokksþingi repúblikana fyrir
skemmstu. Þetta er annað en Bush
sagði í síðustu kosningabaráttu.
„Ef við erum hrokafull þjóð verð-
um við þannig í augum annarra en
ef við erum auðmjúk þjóð virða þeir
okkur," var haft eftir Bush árið 2000.
í millitíðinni átti sér reyndar stað at-
burður sem fáir áttu von á. Ráðist
var á Bandaríkin með óvæntum en
árangursríkum hætti og hafði sá at-
burður áhrif á alla heimsbyggðina.
Minni mannréttindi
Þrjú ár eru í dag liðin frá hryðju-
verkaárásunum á New York og
Washington. Þegar atburðirnir áttu
sér stað voru þjóðmálaspekingar
um allan heim fljótir að láta það frá
sér fara að heimsmyndin yrði aldrei
sú sama og allt alþjóðakerfið myndi
breytast í kjölfar þessara hroðalegu
atbuðra. Nú þremur árum síðar
hefur margt vissulega breyst en
breytingarnar urðu þó ekki eins og
margir töldu í fyrstu.
Breytingarnar sem flestir hafa
orðið varir við eru aukinn ótti,
óvissa, biðraðir á flugvöllum og
auðvitað skerðing á mannréttind-
um. Eftir 11. september hefur ný
hrina af mannréttindabrotum í
raun farið af stað og yfirvöld víða
virðast tilbúin að víkja til hliðar
grundvallarréttindum fólks í nafni
öryggis. Bandaríkjaþing samþykkti
t.d. athugasemdalaust svokaUað
Patriot Act sem gerir ríkinu kleift að
Ráðist var inn í
Afganistan til að
koma stjórnvöldum
sem skutu skálka-
skjóli yfir hryðju-
verkamenn frá en
þrátt fyrir að það hafí
verið gert lifír al Kaída
góðu lífí íum 50 mis-
munandi löndum.
fangelsa fólk án dóms og laga, beita
það harðræði og jafnvel pyntingum.
Víða annars staðar hafa lög sem
færa ríkinu auknar heimildir til að
kanna hvað borgararnir eru að fást
við verið samþykkt og það sama má
segja um alls kyns lög sem varða er-
lenda ríkisborgara. Nýju íslensku
útlendingalögin eru dæmi um
þetta, þótt þau tengist hryðjuverk-
unum í Bandaríkjunum ef til vill
ekki með beinum hætti.
Andúð eykst
Þegar hafa Bandaríkjamenn háð
tvö stríð í nafni baráttunnar gegn
hryðjuverkum. Það fyrra í Afganist-
an vannst nokkuð auðveldlega en
ekki gekk jafii vel í írak. En þótt hið
eiginlega hemaðarstríð hafi unnist
nokkuð auðveldlega í Afganistan,
og raunar Irak líka, er varla hægt að
segja að sjálft stríðið hafi unnist.
Ráðist var inn í Afganistan til að
koma stjórnvöldum sem skutu
skálkaskjóli yfir hryðjuverkamenn
frá en þrátt fyrir að það hafi verið
gert lifir al Kaída góðu lífi í um 50
mismunandi löndum. Þá gengur
vondi kallinn, Usama bin Laden,
enn laus þrátt fyrir að hver einasti
hellir í Afganistan hafi verið kann-
aður a.m.k. tíu sinnum.
Stríðið í frak gerði svo baráttuna
gegn hryðjuverkum enn erfiðari.
Eftir 11. september nutu Bandaríkin
samúðar heimsins og mikil sam-
staða ríkti á meðal annarra ríkja um
Bandarfldn. Þessari samstöðu var
eitt með innrásinni í írak og hatrið á
Bandaríkjamönnum, sem var mjög
mikið fyrir, hefur bara magnast.
Þetta á ekki bara við um arabaheim-
inn heldur Evrópu og önnur þróuð
ríki líka.
Ótti og óvissa
Bandaríkin eru það ríki sem hef-
ur gefið sig út fyrir að vera boðberi
frelsis, réttíætis og mannréttinda -
Bandaríkin hafa þannig grafið und-
an þeim gildum sem landið hefur
alla tíð sagst vera duglegt við að
boða því þegar Bandaríkjamenn
virða ekki mannréttindi, eins og
með pyntíngum fanga í írak og
fangelsun fólks án dóms og laga,
gefur það öðrum rfkjum skálkaskjól
til að gera slíkt hið sama.
Margir áttu von á því að með
hruni Berlínarmúrsins og Sovétríkj-
anna færu í hönd öruggari og um-
fram allt friðsamari tímar. Þetta
hefur hins vegar ekki gerst. Ástand-
ið í heiminum í dag einkennis víða
af tortryggni, ótta og sundrungu
eins og sást á nýafstöðnum ólymp-
íuleikum þar sem 20 þúsund her-
menn og rúmlega 40 þúsund lög-
reglumenn sáu til þess að allir væru
„öruggir". Þrátt fyrir tvö stríð í nafni
baráttunnar gegn hryðjuverktun
eru Bandarfldn, og raunar allur
heimurinn, ekkert öruggari fyrir
árásum hryðjuverkamanna en
áður. Hryðjuverk hafa verið framin
í Rússlandi, á ferðamannastað á
Balí, markaði í Bombay, höfuð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna í
írak og víðar.
New York
Rykský lá yfir suðurhluta Manhattan
eftir að turnarnir tveir hrundu tii jarðar.
Um 3.000 manns létu lifið iárásunum
og i raun skelfilegt til þess að hugsa að
þeir hefðu getað verið miklu fleiri.
■
A. Its
Drepum bin Laden nunal Reiðm var að vonum mikil eftir hörmungarnar ems og sja
má á þessum skrifum sem rituð eru á rykuga rúðu á Manhattan daginn eftir árásirnar.
Þremur árum eftir árásirnar hefur ekki enn tekist að hafa hendur ihári bin Laden.
Bush fær fréttirnar Andrew Card, starfsmannastjóri Hvita hussms, segir Bush fréttirnar
en hann var á þessum tima i heimsókn i barnaskóla. Bush var að lesa upp úr bók fyrir
börnin þegar árásirnar voru gerðar.
Örvæntingin alger Fjöldi fólks fleygði sér fram af
World Trade Center í örvæntingu sinni.
Turninn hrynur Þessar myndir sýna hvernig nyrðri turninn hrynur til grunna rúmlega tveimur og hálfum klukkutima eftir að flug 7 7 Seinni vélin hittir I mark Fólk var enn að átta sig á þvihvað hefði gerst þegar siðari flug-
frá American Airlines klessti á hann. Áður hafði syðri turninn hrunið til grunna tæpum klukkutima eftir áreksturinn við flugvélina. véUn kom f/júgandi inn i nyrðri turn World Trade Center að morgni 7 7. september 2001.
Varnarmálaráðuneytið f molum Ráðist var á Öllu lokað Hlutabréfamarkaðir lokuðu fljótlega og Lagt til atlögu Síðari vélin er hér u.þ.b. að klessa á Stund milli strlða Slökkviliðsmaður sést hér dusta
Pentagon tæpum klukkutima eftir fyrstu árásina á NY. götur Manhattan voru yfir fullar afflýjandi fólki. World Trade Center að morgni 1 l.september. rykið úr augunum eftir langa og erfiða baráttu.