Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 Fyrst og fremst |>V Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: GunnarSmári Egilsson Ritstjórar: lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjóran ReynirTraustason Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvað veist þú um rúnasteina 1. Hvar hafa flestir þeirra fundist? 2. Hvað hafa margir fundist á Norðurlöndum? 3. Af hverju voru þeir reist- ir? 4. Hvar eru þeir elstu? 5. Frá hvaða tíma eru þeir? Svör neðstá síðunni Heiji-stríðið 1159-1160 Stríðið Þegar Shirakawa II Jap- anskeisari sté úr hásætinu fyrir son sinn, urðu stuðn- ingsmenn hans við hirðina órólegir. Einkanlega fylltust tvær fjölskyldur öfund, af- brýði og ótta í garð hvorrar annarrar. Minamoto-fjöl- skyldan ákvað að koma sem flestum af Taira-fjölskyld- unniburtúr keisarahöll- inni. En ráðabrugg þeirra komst upp og þá hófust átökin. Karl- mennimir í báðum fjöl- skyldum vom þrautþjálfaðir keisarahermenn og börðust vel og lengi. En árið 1160 tókst Taira-fjölskyldunni að vinna Minamotoum, og taka sér alræðisvald. Höfðingi Minamoto-ættarinnar og allir ættingjar hans við hirð- ina vom drepnir. Aðeins Qórir bamungir synir komust undan. Einn þeirra, Yorimoto, hefndi ósigurs fjölskyldunnar 20 árum síðar. Elísabet Nafnið var vel þekkt hér í lok 17. aldar og gæti verið eldra. Hliðarmyndir þess eru Elsa- bet, Lísbet og Lisibet. Upp- runi nafnins er umdeildur, merking hebreska orðsins elisheba hefur verið talin guð er fullkominn, guð er eiöur minn eða guö hefur svarið. Nafnið kemur fyrir I Bibllunni og bar . móðirJóhannesar IðfiUy skíraraþaðog sennilega er sama nafnið á feröinni með konu Arons í annarri Mósebók, hún hét Elfseba. Erþá giskað áað síðari liður nafnsins -bet eða beth hafí verð lagaður að hebreska oröinu sabbath, sabbatsdagur. Svörvlö spumingum: 1. Svíþjóö. 1 Um 3000. 3. Þeir voru leg- steinar eða minnismerki. 4. I Svíþjóð og Noregi. 5. Á þjóðflutningatlmanum ca. 300-600 að okkartímatali. Gagnslausar þotur Það má hrósa Samfylkingunni fyrir að afgreiða hin svonefndu „varnarmál" íslands heldur stuttaraiega í tillögum um öryggismál sem hinn svokallaði Fram- tíðarhópur er vinnur að stefnumörkun fyrir landsfund á næsta ári hefur lagt fyrir flokksstjórnarfund. Með „varnarmálum" er átt við hernað- arviðbúnað Bandaríkjamanna á Keflavík- urflugvelli sem undanfarin misseri hefur einkum kristallast í furðulegum umræðum um hvernig megi halda hér á landi fjórum orrustuþotum af gerðinni F-15. Bandaríkjamenn sjálflr vilja fara með þoturnar burt enda er Ijóst að hér er ekkert fyrir þær að gera. Á hinn bóginn hafa ríkisstjórnarflokkarnir að því er virð- ist bitið það í sig að þessar fjórar þotur séu alfa og ómega íslenskra öryggismáia og þegar Davíð Oddsson tók við embætti ut- anríkisráðherra gáfu yflrlýsingar hans til kynna að það yrði helsta verkefni hans að halda þessum þotum suður á velli. Vel má vera að það sé einlæg skoðun forkólfa Sjálfstæðisflokksins og Framsókn- arflokksins að þessar þotur geri hér eitt- hvert gagn, þótt þeim hafl ekki tekist að sýna fram á hvað það gæti verið. Því hlýtur að vakna grunur um að áhersla þeirra á þoturnar sé fyrst og fremst af efna- hagslegum rótum runnin; þeir óttist þann atvinnumissi suður með sjó sem brottför hersins hefði í för með sér. En hvort heldur er ástæðan, þá hlýtur brátt að renna upp fyrir nefndum forkólfum að stefna þeirra er úrelt og getur ekki skilað néinu nema töfum og vandræðagangi. Og pólitískt séð er hún þeim hættuleg því hún veitir öðrum færi á að taka frumkvæðið í utanríkis- og öryggismálum landsins. Eins og Sam- fylldngin býst nú til að gera. Og gott hjá Framtíðarhópnum að átta sig á því að sú mesta hætta sem í bfli steðjar að íslendingum utanlands frá felist í umhverfis- og mengunarsfys- um. Það sýndi til dæmis vera rússneska flotans hér á dögunum. Með réttu höfðu menn áhyggjur af þeirri hættu sem stafaði af umhverf- isslysum vegna skipanna - og ferðum þeirra um ís- lenska lögsögu yflrleitt - og hörð stefna íslendinga í að verjast slíkum „heimsóknum" kjarnorkuskipa á íslands- mið hefði verið árangurs- ríkari til að sporna gegn slíku heldur en fjórar am- erískar orrustuþotur á Keflavíkurflug- : s velli. \ Enda gerðu 1 þær ekkert ' gagngegn Pétri mikla í þetta sinn. Hvernig hefði líka mátt vera svo? Slíkar „varnir“ hafa bara ekkert gildi í heiminum eins og hann er nú. Illugi Jökulsson „Manneldisráð nær yfirhöndinni. Spartan lang- ar íhamborgara, salt og bjór en fær ekki fyrren hann fer neðan jarðar. Allt óhollt er bannað ÁSGEIR HELGI REYKFJÖRÐ GYLFAS0N laganemi og einn pistlahöfunda á Deiglunni.com hefur bersýnilega ekki fundið sér neina nýja mynd sfðast þegar hann fór á myndbandaleigu og því affáðið að taka aftur ellefu ára gamla hasarmynd með Sylvester Stallone og Wesley Snipes í aðalhlut- verkunum: Demolition Man. „Aftur" því hann hefur greinilega horft á myndina á sínum tíma en hún var gerð árið 1993. ÞÁ HEFUR ÁSGEIR HELGI reyndar verið ungur að árum - við efumst meira að segja mn að hann hafi haft aldur til að horfa hana þá, hafi hún verið bönnuð innan 16 eins og okkur þykir liklegast. Hann hefur sem sagt brotið lög þótt vart getum við hvatt til þess að hann verði lögsóttur eftir öll þessi ár. Þó er rétt að benda yfirvöldum á ffamferði hans enda hvetur hann óspart til frek- ari lögbrota í nýjum pisdi sínum á Deiglunni, ekki að vísu til brota á lög- um eins og þau eru nú, heldur eins og þau verða árið 2032 - ef spár forkólfa Demolition Man rætist, sem Ásgeir Helgi virðist í litlum vafa um. HANN REKUR FORSENDUR MYNDARINN- AR sem eru þær að árið 1996 séu þeir Spartan og Huxley (Stallone og Snipes) - annar lögga, hinn bófi - dæmdir til frystingar í áratugi fyrir að bera sameiginlega ábyrgð á fjöldamorði. “Áiið 2032 eru þet síðan afþýddir ogþeim hleyptafturí samfélagið, sem þá er orðið að Útópíurúd Skandífas- Fyrst og fremst ismans. í ffamtíðinni hafa mörg stefhumál Skandífasistans náð fram að ganga ogíraun spaugilegt að horfa á myndina afturnú rúmlega tíu árum síðan ég sá hana fyrst. Maður fær staðfestingu á því að Manneldisráð nær yfírhöndinni. Spartan langar í hamborgara, salt og bjór en fær ekki fyrr en hann fer neðan jarðar. Allt óhollt er bannað. Spartan og Huxley, kvenkyns aðstoðarkona hans, ákveða að eiga mök eitt kvöldið, en mökin verða að vera sýndarmök. Því öllskipti á líkamsvessum eru bönnuð af heil- brigðisástæðum. „Planned parent- hood” nær nýjum hæðum, því ekki má eignast böm nema með samþykki rúdsvaldsins. ÞORGRÍMUR ÞRÁINSS0N ætti að gleðjast því tóbak er að sjálfsögðu harðbannað og hvergi fáanlegt. Þor- grímar framtíðarinnar hafa því náð öðm miklu hagsmunamáli ígegn. Það er orðmengun. Það er að sjálfsögðu bannað að bölva. f hvert sídpti sem söguhetja okkar segir hetjuleg orð eins og „shit", „fuck” eða „damn"þá hrekkur vél á veggnum í gang og spúir út úr sér eins kredits sekt. Enda er slík löggjöf ömgglega reist á því Fleirasemverð- ur bannað 2032 Intemetið Hægt að misnota það - því best að banna það. Dagblöð Hægt að misnota þau - því best að banna þau. Listir Hægt að misnota þæt. - því best að banna þær. Bækur Hægt að lesa þær - því best að banna þær. Börn Hægt að misnota þau - því best að banna þau. málefnalega sjónarmiði að það séu marmréttindi að þurfa ekki að hlusta á bölv. Karli Böðvarsyni hlýnar um hjarta- rætur þegar hann sér að bifreiðar framtíðarirmar keyra sjálfar og því óþarft að lesa af öllum „svörtu köss- unum" sem hann færsettaríbifreiðar í náinni framtíð. Sævar Karl þarfaftur á móti að óttast framtíðina, því eins og íöllum góðum framtíðarmyndum em allir eins klæddir. í þessari framtíð kjósa menn að klæðast líkt og Hamid Karzai, íeinskonar playboy-náttslopp með hatt og sólgleraugu. EIRÍKUR TÓMASS0N og Magnús Kjartansson hjá STEP gleðjast þegar þeir sjá að íframtíðinni er tónlist eins og við þekkjum hana ekki lengur til. Einungis auglýsingar em spilaðar í út- varpinu. Enda ekkert vit að gefa út „ósponserað" lagsem allirhlaðaniður og spila ffítt. Helgamesti ykkar fyrir helgina er því að nýta tímann á meðan við höf- um hann. Drekkið ykkur fuli, hlaðið niður tónlist, skiptist á vessum og bölvið á meðan. Því tími Skandí- fasistana er að koma. EFIST EINHVER um spádómsgildi myndarinnar þá skal sá hinn sami muna þetta. Stjómarskrá Bandaríkj- anna verður breytt því fram kemur í myndinni að Amold „no pain, no gain" Schwarzenegger hafí verið for- seti. Mogginn aÖ byggja brú? ÓNEITANLEGA VAKTIATHYGU hversu hátt undir höfði Morgunblaðið á sunnu- daginn gerði flokksstjórnarfundi Sam- fylkingarinnar. Aðalfréttin á forsíðu var um þá yfirlýsingu Össurar Skarphéðins- sonar formanns flokksins að auka mætti beint lýðræði í landinu með því að kjós- endur fengju að velja röö frambjóðenda á framboðslista. Ein aöalfréttin á baksíðu var hins vegar um þá niðurstöðu Fram- tiðarhóps Samfylkingarinnar, sem Ingi- björg Sólrún Gísladóttir varaformaöur kynn ti, að íslendingar ættu að taka yfir rekstur flugvallarins I Keflavlk. NÚ ER ÚTAF FYRIR SIG ekkert skrýtið þótt virðulegt fréttablað eins og Mogg- inn sinni vel skoðunum á mikilvægum málum sem fram koma á stórum fund- um Samfylkingarinnar. Þótt flokkurinn sé I stjórnarandstöðu mælist hann iðulega stærsti flokkur landsins I skoðanakönn- unumög eðlilegt að skoðanir hans hafi vægi. EIGIAÐ SÍÐUR þótti sem sagt merkilegt hversu mikið pláss á útsiðum sínum Morgunblaðið lagði undir þetta. Og af þvímenn þurfa nú um stundir aftur að lesa Moggann sinn með gleraugum Kremlarlógíunnar þá er kenningin sú aö með þvl því að gera svona vel við skoð- anir Samfylkingarinnar sé Morgunblaöiö á sinn hátt að vingast við Samfylkinguna - svo þar séu brýr á milli efsvo fer sem margir spá, að sjálfstæðismenn gerist brátt þreyttir á stjórnarforystu Framsókn- arflokksins og vilji leita annarra leiöa til að komast aftur til æðstu valda. OG EF EITTHVAÐ ANNAÐ en hreint og tært fréttamatið ræður gerðum Moga- ans, þá er líka athyglisvert hvemig hann leggur sig I lima við að sýna bæði for- manninum og varaformanninum fullan sóma. Því enginn veit náttúrlega hvernig forystumál I þeim flokki geta æxlast á næstunni. Þótt Össur sé á forsíðunni en Ingibjörg Sólrún á baksíðunni þá eru þau reyndar bæöi saman á myndinni affund- inum sem prýðir forsíðuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.