Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Side 11
DV Fréttir MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 7 7 Heimurinn Albert Þór Benediktsson hótar að kála sér verði hann sendur aftur á Stuðla. Hann ekkert betri er búinn að vera á flótta frá því hann var 5 ára. Albert þór Varfram seldur á Stuðla fyrir fáeinum vikum, eftir tvær vikur á flótta. Kofi Annan fram- kvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna sagði í viðtali á bresku ITV-sjón- varpsstöðinni í gær að heimurinn væri síður en svo öruggari staður eftir irmrásina í írak og alþjóðasamfélagið ætti mikið starf fyrir hönd- um að koma á öryggi. Hann benti einnig á að íraksstríðið hefði ekki orðið til þess að draga úr umsvifum alþjóð- legra hryðjuverkamanna. í viðtalinu var Annan meðal annars spurður út í ásakanir sem fram hafa komið á stjómvöld í Rússlandi, Kfna og Frakklandi þar sem sagt er að þau hafi áður en til átaka kom í írak ætlað að auka viðskipti til landsins í skiptum fyrir olíu. Annan þvertók fyrir að sannleiks- kom væri í ásökununum. Fósturfannst á bílastæði Mannsfóstur í krukku fannst á bíla- stæði við verslunar- miðstöð í Orlando í Flórída fyrir nokkrum dögum. Að sögn lögreglu var það götusópari sem fann krukkuna sem augljóslega hefúr verið stolið af heilsugæslustöð. Engin merld em á fóstrinu um glæpsamlegt afhæfi. Lög- reglan hefur haft samband við allar fóstureyðingar- stöðvar, heilsugæslustöðvar og sjúkrahús á svæðinu en enginn kannast við krukk- una og fóstrið. Lögreglan hefur fengið leyfi til að skoða upptökur verslunarmið- stöðvarinnar til að komast til botns í málinu. ? Strokudrengurinn strokinn enn a nv Árásirí Afganistan Tveir bandarískir her- menn létust þegar sprengju var varpað að þeim í suður- hluta Afganistan á laugar- dag. Þrír félagar þeirra slös- uðust í árásinni. Á föstudag, á fyrsta degi föstumánaðar- ins Ramadan létust þrjú böm og lögreglumaður þegar sprengja sprakk í aust- urhluta landsins. Þykja árás- imar um helgina sýna að enn sé ástandið í landinu mjögótryggt. Harry sýknaður afásökunum Skólayfirvöld í Eton hafa gefið út yf- irlýsingu þar sem Harry prins er hreinsaður af öllum ásökunum um að hafa svindlað á prófi. Framtíð hans hjá hemum var stefiit í voða þegar kennarinn Sarah For- syth hélt því fram að hún hefði leyst mestan hluta prófsins. Forsyth hljóðritaði samræður sínar við prinsinn án hans vitundar. Þar, sam- kvæmt henni, viðurkennir Harry að hafa ekki tekið prófið sjálfur. Sérfræðingur var látinn í málið en hann segir enga sönnun fyrir því að prinsinn hafi svindlað. „Hann er bara einhvers staðar týndur," segir Hanna Andrea Guðmundsdóttir móðir strokudrengsins Alberts Þórs Benedikts- sonar. Hún segist varla vita lengur hversu oft hann hefur strokið frá því að honum var komið fyrir hjá fósturforeldrum þegar hann var 3 ára. „Hann strauk í fyrsta skipti þegar hann var smá gutti, ég held að hann hafi verið svona 5 eða 6 ára. Það má segja að hann hafi verið á stöðugum flótta síðan," segir Hanna Andrea sem er orðin mjög áhyggjufull yfir ástandinu. Hún segir drenginn þrá að fá að búa með fjölskyldunni og strýkur við hvert tækifæri til þess að geta hitt þau, þó hann viti að afleið- ingarnar em ekki eftírsóknarverðar, einangrun á Stuðlum. í Rambóleik á Stuðlum „Hann fór í Rambóleik, klifraði yfir girðinguna og skreið eftir gras- inu þar til hann var kominn úr sjón- máli. Ég er búin að vera að semja við „Hann fór í Rambóleik, klifraði yfír girðinguna og skreið eftirgrasinu þar til hann var kominn úrsjónmáli/' hann um að fara aftur á Stuðla. Hann varð alveg óður og sagðist kála sér ef hann yrði sendur aftur á þangað. Honum hefúr verið haldið í einangrun á Stuðlum af því hann strýkur alltaf. Ég er alveg ráðalaus gagnvart þessu, alveg í msli yfir þessu öllu saman," segi Hanna Andrea. Hún er áhyggjufull enda hefur drengurinn ítrekað hótað því að taka líf sitt fái hann ekki að vera hjá blóðmóður sinni. Er tilbúin að fá hann heim Hanna Andrea vonast til þess að stjómvöld fari að bregðast við þessu vandamáli og leysi drenginn úr ánauð fósturforeldranna sem hann vill ekki vera hjá. Hún segist tilbúin að taka á mótí honum og reynir að vera bjartsýn á að hún endurheimti forræðið yfir drengnum á endanum. „Við erum að ffytja í stórt einbýlis- hús í Sandgerði og þar verður gott pláss fyrir okkur öll ef Albert fær að vera hjá okkur,“ segir Hanna Andrea. freyr@dv.is Veitingahúsið Kaffí Reykjavík kynnir Hín geysivinsæla söngskemmtun Cuckoos The Cabarett á föstudögum og iaugardögum 3 rétta kvöidverður ásamt kr 5500,- Vigdís Finnboga á 2500 krónur „Ég keypti myndina af konu, veit ekkert eftir hvern hún er,“ segir Magnea Sigurbergsdóttir listaverkasali í Kolaportínu. Hún segir útlendinga sem koma í Kola- portið alveg vitlausa í myndir af ís- lenskum þjóðarleiðtogum. Seldi lengi gamlar myndir af forsetum landsins sem ruku út eins og heitar lummur aðallega til túrista. Magnea prjónar líka ullarpeysur sem hún segir engan vilja ganga í lengur. „Það eru allir komnir í flís- peysur. Meira að segja ferðamenn- irnir kjósa frekar íslenskar flíspeys- ur sem eru framleiddar I Lettlandi," segir Magnea sem reynir að drýgja tekjurnar með því að vera reglulega í Kolaportinu þar sem hún hefur verið með bás í mörg ár. Enginn hefur enn gert tilboð í myndina af Vigdísi Finnbogadóttur sem er teiknuð með pastellitum og er föl fyrir 2500 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.