Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Page 14
Fréttir DV
AVIRKUM
DÖGUM
[Mánudagar
Heimilislæknirinn
rÞriðjudagarj
Fjölskyldumaðurinn
Miðvikudagar
Sálfræðingahjónin
Fimmtudagar
Kynlífsráðgjafinn
Föstudagar
Neytendamál
Hrækjandi íþróttamenn
„íþróttamenn eiga að vera fyr-
irmynd unga fólksins í hvívetna. Á
þessu er mikill misbrestur sem
landsmenn fylgjast gjarnan með í
sjónvarpi. Mikill hluti íþrótta-
manna hefur nefnilega þann
óhugnaniega sið að vera stöðugt
Ingveldur
Sigurðardóttir ¥ m
Hefur dhyggjur af íþróttafólki'
sem hrækir I tima og ótima . ájy
og dreifa bakteríum
Þroskaþjálfinn segir
hrækjandi. Ég nota viljandi orðið
að hrækja þótt sumir myndu segja
að þeir væru að spýta. Það sem
kemur frá þessu fólki er nefnilega
ekkert annað en hrákaslummur
sem innihalda bakteríur sem geta
skapað hættu. Þetta býr til bakter-
íur í umhverfíð allt og berst í and-
rúmsloftið.
Á mínum yngri árum var þessi
ósómi upprættur og það ekki af
litíu tilefni. Þá herjuðu berklar á
íslendinga með óskaplegum af-
leiðingum og hrákinn var örugg
smitleið. Langan tíma tók að inn-
prenta þjóðinni það hve mikill
ósiður þetta væri en það tókst að
lokum.
Nú hrækir fólk hiklaust fyrir
framan þúsundir áliorfenda og
undir suðandi sjónvarpstökuvél-
um. Það mætti ætla að þeir sem
hrækja telji það vera fínt sem er
einkennilegt í því ljósi að flestum
finnst okkur ógeðfellt að sjá ein-
hvern slefandi. Flestir sem þetta
gera eru drengir og karlar. Hef ekki
séð knattspyrnukonur gera þetta.
Þessi ósiður breiðist út á eldingar-
hraða fyrir tilstilli átrúnaðargoða
sem birtast í hverri stofu á sjón-
varpsskjám hrækjandi og þar með
dreifandi bakteríum. Erfitt er að
hreinsa hráka af gervigrasi og það
grasserar í slummunni.
Ég skora á þá sem haldnir eru
þessari áráttu að fhuga vandlega
hvað þeir eru að gera umhverfí
sínu. Með ólíkindum er að sjá
afturhvarf til fortíðar með hegðun
fólks á þessari annars framfara-
öld“.
Kvikmyndaleikarinn Robert De Niro er búinn að ganga fram af ítölum. Veita átti
honum æðstu viðurkenningu Mílanóborgar á fimmtudag og hann skrópaði og dag-
inn eftir lét hann ekki sjá sig á blaðamannafundi í Róm.
Til stóð að veita bandaríska kvikmyndaleikaranum Robert De
Niro ítalskan ríkisborgararétt á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
en því var slegið á frest eftir að Bræðalag sona Ítalíu sem starfar
í Bandaríkjunum skrifaði Silvio Berlusconi forsætisráðherra
ftalíu og gerði athugasemd við veitinguna. Bræðralagið segir að
De Niro hafí svert ímynd Italíu á heimsvísu.
Á fímmtudag stóð til að Robert
De Niro tæki á móti æðstu viður-
kenningu Mílanóborgar úr hendi
borgarstjórans. Athöfnin hófst
stundvíslega en eftir 40 mínútna bið
eftir heiðursgestinum var allt blásið
af. Veita átti De Niro Gullna
Ambrosíusinn, veglegustu viður-
kenningu borgarinnar og sýna þar
með hversu mikils Mílanóbúar
mætu kvikmyndaleikarann. Á föstu-
daginn átti svo De Niro að sitja á
blaðamannafundi í Róm þar sem
gera átti grein fyrir þætti Ítalíu í
Tribeca kvikmyndahátíðinni sem
haldin er í New York í Bandaríkjun-
um. En hann lét ekki sjá sig.
Pressan og ráðamenn móðg-
aðir
f ljósi þess að Robert De Niro var
staddur á Ítalíu þessa daga eru ráða-
menn og ítalska pressan frekar súr
út í kvikmyndaleikarann sem tvisvar
hefur fengið Óskarsverðlaun. Síð-
ustu vikurnar hefur verið nokkur
umræða á Ítalíu um Robert De Niro
sem þekktur er fyrir túlkun sína á
ítalsk ættuðum glæpamönnum og
mafíósum. Ekki eru allir á eitt sáttir
Robert De Nlro ftalskættaöi kvikmynda-
leikarinn gekk fram afltölum fyrirhelgi.
við ímyndina sem hinn ítalskættaði
De Niro dregur upp af ítölum og
Ítalíu og segir Joseph Sciame forseti
Bræðralags Sona Ítalíu sem starfar í
Bandaríkjunum að hann hafi ekki
gert neitt nema útbreiða neikvæða
mynd af ítölum og leiki einungis
glæpamexm. Búið var að ákveða að
veita De Niro ítalskan ríkisborgara-
rétt á Kvikmyndahátíðinni í Feneyj-
„ Al varlegir samskiptaörðugleikar" Sagöi i yfirlýsingu frá umboösmanni De Niros. Sjálfur
segirhann málið vera klúður.
um sem haldin var í síðasta mánuði
en Silvio Berlusconi forsætisráð-
herra sló athöfninni á frest vegna at-
hugasemda Bræðralags Sona Ítalíu.
Segir málið klúður
Eftir að De Niro lét ekki sjá sig á
fímmtudag og föstudag sendi um-
boðsmaður hans í Los Angeles út
fréttatilkynningu vegna málsins og
þar segir að De Niro hafi því miður
ekki getað verið viðstaddur atburð-
ina vegna „alvarlegra samskiptaörð-
ugleika." Sjálfur segist De Niro sjá
eftir öllu saman og að málið sé klúð-
ur af beggja hálfu. Hann hafi verið
gestur á Ítalíu og aldrei ætíað að
styggja neinn enda elski hann
landið. Nokkur stóryrði hafa fokið af
vörum sárra ítala og sagði einn
þeirra að Ítalía væri mun faUegri og
ætti fjölbreyttari sögu en Bandaríkin
gætu nokkurn tímann státað af og
Italir þyrftu ekki á Robert De Niro að
halda. Ekki eru allir ítahr sammála
árásunum á De Niro. Ritstjóri eins
víðlesnasta ferðatímarits ítah'u segir
landa sína hafa hagað sér eins og
hálfvitar í máiinu og að sjálfsögðu
elski aUir ftalir Robert De Niro.
Ungar grískar konur yfirgefa sveitirnar
Grískir bændur flykkjast til Úkraínu í leit að kvonfangi
Einmana ókvæntir karlmenn í
sjávarþorpinu Zacharo á Suður-
Grikklandi hafa ákveðið tugum
saman að leita tU þorpsins
Vynnitsya í Úkraínu eftir eiginkon-
um. Ástæða þess að mennirnir leita
út fyrir landsteinana eftir kvonfangi
er sú að ungar grískar konur kjósa
heldur að halda til höfuðborgarinn-
ar Aþenu og stærri borga á Grikk-
landi eftir frama og frægð heldur en
að kúldrast sem húsfreyjur á lands-
byggðinni alla ævi. í Zacharo búa
um fjögur þúsund manns og af
þeim eru rúmlega fímm hundruð
einhleypir karlmenn á aldrinum 18
tU 45 ára. Það ku vera viðburður að
sjá konu undir fertugu á rölti í bæn-
um. í vikunni ætía U'u tílvonandi
brúðgumar ásamt sendinefrid frá
bænum að halda til Úkraínu til að
hitta brúðimar. Ferðin hefur mælst
vel fyrir meðal ungra kvenna í
Vynnitsya í Úkraínu og hafa um
fjögur hundruð konur skráð sig á
brúðarlistann. Haft er eftir einum
þeirra sem fer í ferðina að hann
hlakki til að hitta konurnar og kynn-
ast þeim. Hann vonar að meðal
þeirra fínni hann sína framtíðar-
eiginkonu. Nú þegar hafa hundrað
og áttatíu karlmenn í Zacharo skráð
sig í ferðir tíl Úkraínu. Ekki eru aUir
bæjarbúar á eitt sáttir um fyrirséða
innrás úkraínskra kvenna en Panat-
azis Chronopoulos bæjarstjóri
segist ekki vera kvíðinn. Nú þegar
búi átta úkraínskar konur í bænum
og séu hamingjusamlega giftar
grískum mönnum. Hann bendir á
að síðan að fréttir af kvonfangsferð-
unum fóm að spyrjast út hafi marg-
ir bæjarstjórar í grískum bænum og
borgum haft samband og viljað fá
upplýsingar um ferðirnar.
Leita eiginkvenna Chronopoulos bæjar-
stjóri við undirbúning kvonfangsferðarinnar
til Úkraínu.