Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Qupperneq 21
T DV Sport MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER2004 21 VALENTINO ROSSI Valentino Rossi varð yngsti ökumaður sögunnar til þess að vinna heimsmeistaratitilinn á öllum þremur gerðum mótor- hjóla. Staðreyndir um Rossi: Fæddur: 16. febrúar 1979 Fæðingarstaður: Urbino, ftalíu ■ Þyngd: 59 kg í Heimili: London Ferillinn hans Rossi: 1996 (125 cchjól) 9. sæti 1997(125 cchjól) 1. sæti 1998 (250 cchjól) 2. sæti \£ 1999 (250 cchjól) 1. sæti Éjl 2000 (500 cc hjól) 2. sæti ■ ííasn' 2001 (500 cc hjói) 1. sæti ® 2002 (MotoGP) 1. sæti m 2003 (MotoGP) 1. sæti w, 2004 (MotoGP) 1. sætl Heiðar á skotskónum Dalvíkingurinn Heiðar Helguson var í fantaformi um helgina er félag hans, Watford, gerði jafntefli ,— gegn Derby, 2-2. i Heiðar skoraði ^' . ' . bæði mörk / Watford í leiknum h " og komu þau á f 11 fyrstu 14 mínútum leiksins. v Fyrra markið var / skalli af stuttu færi j en seinna markið j 4 gerði hann með / A A góðu vinstrifótar- j 'j b ^ skoti sem steinlá í /J r~i markhorninu. / J j \ BrynjarBjörn -/ \ j Gunnarsson var j j j i einnig í ( '1 byrjunarliði Watford í leiknum og þeir félagar léku allan leikinn. Hildur góð Hildur Sigurðardóttir var allt í öllu í 85-72 sigri Jamtland Basket á Vaxjö Queens í fyrstu umferð sænsíai úrvalsdeildarinnar í körfubolta en þessi 23 ára gamli bakvörður hefúr byrjað mjög vel f Svíþjóð og er sem stendur eina íslenska körfuboltakonan sem er að spila erlendis. Hildur lék allan leikinn, skoraði 17 stig, tók 8 £rá- köst, gaf 6 stoðsendingar og stal 2 boltum sem er ekki slæm byijun í þessari sterku deild enda hefur hún fallið vel í kramið í Östersund þaðan sem Jamtland Basket kemur. Hver féll á lyfjaprófi? Það lak út í gær að leikmaður í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefði /' " fallið á íyflaprófi. Enska knattspyrnu- - 4 % sambandið neitaði * | málið en Erkiíjendurnir Espanyol og Barcelona áttust við í spænsku deildinni um helgina með tilheyrandi látum og Q öldahandtökum lögreglu eftir leikinn. Henke Larsson, sem leikur með Barcelona og kom frá Celtic fyrir leiktíðina, fannst þó lítið til koma. Ekkert á við Glasgow Barcelona jók forskot sitt í spænsku deildinni með 0-1 sigri á erkifjendum sínum í Espanyol í fyrrakvöld og hefur liðið nú níu stiga forskot á stjörnulið Real Madrid sem náði einungis jafntefli við Bet- is í leiðinlegum leik. Endur- reisn Deportivo heldur þó áfram og sigraði liðið sinn fyrsta sigur á heimavelli í vetur 2 -1 gegn Getafe. Leikur Barcelona og Espanyol, sem bæði leika í höfuðborg Kata- lóm'u, var lítið fyrir augað en markið átti miðjumaðurinn Deco snemma í fyrri hálfleik. Barcelona hefur byrjað leiktíðina með afbrigðum vel og hef- ur enn ekki tapað leik á tímabilinu undir stjóm hins hollenska Frank Rijkaards. Sá var ánægður eftir leik- inn enda þrjú stig í höfn. „Auðvitað hefðum við getað skorað fleiri mörk gegn Espanyol en liðið var engu að síður að spila jafnvel og verið hefur og þar sem þeir skoruðu ekki þá dugði þetta til.“ Islandsvinurinn Henrik Larsson, leikmaður Barcelona, fannst lítið til þessa mikla nágrannaslags koma þrátt fyrir að upp úr hafi soðið milli stuðningsmanna Barca og Espanyol með þeim afleiðingum að leikvöllur Espanyol var sem sprengjusvæði eftir á. „Eftir að hafa upplifað stemmninguna sem myndast milli Celtics og Rangers verð ég að segja að hún er í sérflokki og miklu meiri en hér var.“ Ánægjubros lék hins vegar ekki um varir þjálfara Real Madrid, Mari- ana Garcia Remon, eftir leikinn gegn Real Betis. „Við fengum meira en nóg af tækifæmm til að gera út af við Betis en tókum ekki skrefið sem til þurfti." Viðurkenndi karlinn að- spurður að Madrid væri talsvert langt frá því að ná þeim leik sem hann vildi sjá. Var um kaflaskiptan leik að ræða þar sem Betis réði lög- um og lofum í fyrri hálfleik en Ma- drid í þeim síðari. Skoraði Oliveira mark Betis í fyrri hálfleik en í þeim síðari tók Ronaldo fram skotskó sem aðeins hafa sést einu sinni á þessu tímabili og jafnaði leikinn. Voru þá tæpar 600 mínútur liðnar frá því hann skoraði síðast. Lið Depor, sem gekk herfilega upp í fyrstu leikjum sínum, er loks að komast á sigurbraut aftur. Liðið vann Getafe á heimavelli og er þetta fyrsti sigur liðsins þar á tímabilinu. Þungu fargi var létt af Irureta þjálf- ara. „Sálrænt séð var þetta bráð- nauðsynlegur sigur fyrir liðið, áhangendur sem eigendur. Til að sigra í þessari deild verða leikmenn að vera á tánum í 90 mínútur og það tókst gegn Getafe í dag og vonandi gegn öðrum liðum í framtíðinni." Juventus meÖ forystu Lið Juventus tryggði stöðu sína í efsta sæti ítalsku deildarinnar með naumum sigri í spútnikliði Messina 2-1. Nýliðar Messina hafa komið verulega á óvart í vetur og voru tap- lausir fyrir leikinn. Mörk frá Zalayeta og Nedved tryggðu sigurinn og sagði Fabio Capello, þjálfari Juventus, að lið hans hefði enn ekki lent í virki- lega erfiðum andstæðingum. „í heildina lentum við aldrei í vand- ræðum þó sigurinn væri ekki stærri en þetta. Við erum engu að síður að spila skemmtilegan fótbolta og skemmtum áhorfendum vel.“ Lið Roma náði sér í þrjú dýrmæt stig með sigri á Livorno á útivelli. Totti og Montella skoruðu mörk Roma en liðið situr um miðja deild mun neðar en sparksérfræðingar spáðu fyrir leiktíðina. Var þetta fyrsti sigur nýs þjálfara liðsins, Gigi Del Nero, en fjarri lagi var að karlinn væri sáttur við leikmenn sína. „Úr- slitin eru góð en strákarnir voru ekki að gera neitt sérstaka hluti úti á vell- inum og Livorno hefði með heppni getað jafiiað.“ albert@dv.is Hann var óhepp- inn myndatöku- maður Sjónvarps- ins á landsleikn- um við Svíana á miðvikudaginn. Að sögn Morgun- blaðsins voru 28 laus sæti á Laugar- dalsvellinum, en einhvern veginn voru þessi sárafáu sæti alltaf að lenda í mynd. Er hægt að vera mikið óheppn- ari? dalsvöllurinn væri akkúrat nægi- lega stór. Þegar frægar hljómsveitir halda rokktónleika hérna á skerinu, þá sjá menn það frekar sem vanda- mál þegar það er EKKI uppselt. Datt einhverjum í hug að heimta stækk- un Egilshallar þegar miðarnir á Metallicu kláruðust? Hvers vegna eiga önnur lögmál að gilda um fót- boltaleiki? Hefndargjöf konungsins í enskumælandi löndum þekkist orðtakið „hvítur fíll“ (e. White El- ephant) í merkingunni stórt og dýrt mannvirki sem reynist eigandanum Eggert og hvíti fíllinn KSÍ tókst nokkurn veginn að fylla þjóðarleikvanginn á stærsta al- vöru-landsleik ársins (nei - ítala- leikurinn telst ekki alvöru-leikur). Það er í sjálfu sér prýðilegur árang- urefhafteríhugaað leikurinn var í október og landsliðið í frjálsu falli að ná slakari árangri en Liechten- stein. Við aðrar kringumstæður hefði eflaust verið hægt að selja 10 þúsund miða. Þá hefði verið upp- selt á völlinn í eina skiptið á árinu. Sumir kynnu að telja þessar staðreyndir til marks um að Laugar- myllusteinn um háls. Það vísar til þjóðsögu um að kóngurinn í Síam hafi gefið undirsátum sem honum var illa við hvíta fíla að gjöf. Eigend- ur fflanna þurftu vitaskuld að hirða vel um gjafir frá konunginum, en stóðu ekki undir kostnaðinum og urðu gjaldþrota. Eggert Magnússon virðist stað- ráðinn í að breyta Laugardalsvelli í hvítan ffl. Hugmyndir KSÍ virðast ganga út á að stórfjölga sætum á vellinum og úthýsa í því skyni frjáls- íþróttafólki. Þegar öll nýju sætin verða komin, telur formaður KSÍ að tugþúsundir muni flykkjast á lands- leild og það jafnvel allan ársins hring enda upplýsti formaðurinn í Kastljósi á dögunum að hann vill leggja gervigras á völlinn. Forgangsröðun knattspyrnufor- ystunnar í þessu máli gæti vart ver- ið vitlausari. Á næsta ári stefnir í metnotkun á Laugardalsvelli. Fram, Valur og Þróttur munu væntanlega öll leika heimaleiki sína á þjóðar- leikvangnum. Við það bætast bikar- leikir, Evrópuleikir, meistarakeppni KSÍ, nokkrir landsleikir og 2-3 frjáls- íþróttamót. Þegar allt er tekið sam- an lætur nærri að 50 knattspyrnu- leikir verði á vellinum keppnistíma- bilið 2005. Fæstir þeirra draga til sín fleiri en fimmtánhundruð áhorf- endur. Hinn raunverulegi vandi Vandamál Laugardalsvallar er ekki skortur á sætum. Stemningsleysið sem ein- kennir leikina þar er ekki vegna hlaupabrautar- innar umhverfis völlinn. Vandinn er sá að Laug- ardalsvöllur er sálarlaus og fráhrindandi. Áhorf- endur reyna að koma eins seint á völlinn og mögulegt er, enda er þar ekkert við að vera. Þar er engin leikaðstaða fyrir yngstu börnin. Aðgengi fyrir fatlaða er afleitt. Öll aðstaða fyrir veitingasölu er í skötu- líki og rýmið fyrir stuðningsmanna- klúbbana í Baldurshaga er eins óaðlaðandi og hugsast getur. Á meðan öll þessi verkefni eru óleyst, ætti formaður KSÍ að sofa ró- legur yfir því hvort hægt hefði verið að koma 29 manns til á afhroðið gegn Svíum. 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.