Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2004, Side 32
JT* S* Qtí ClJí 0 t Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^wfnleyndar er gætt. r-i
fj£>U 5090
SKAFTAHLÍÐ 24, 105REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMISS05000
• Nú er væntanlegur á
dagskrá Skjás eins nýr
þáttur sem mun víst
vera einhvers konar
Bingóþáttur. Herlegheitin!
byrja víst næsta sunnu-
dag en það sem þykir
hvað merkilegast við
þáttinn er að fólk
getur látið húðflúra á j
sig einhvern hlut
sem það vill og ef
hann kostar undir
250 þúsundum þá
fær viðkomandi
hann að gjöf frá
þættinum. Sög-
ur frá Skjá ein-
um eru á þá leið
að nú þegar sé
fólk farið að
flúra á sig gít-
ara, ísskápa,
bjórflöskur og
svo framvegis...
f
.. . j
Fjölnir tattú fær
heilt innbú!
Vanir aö pga,
Finnst kufan n
uainnktir,
Islnndi sMlnn
„Maður er vanur að ganga
um nánast nakinn heima í
Afrfku," segir Taabu Anthony
Munyalo, frá Afríkuríkinu
Uganda. Taabu flutti hingað
ásamt félaga sínum Francis
Magnea Tembo sem er frá
Malavíu. Þeir hafa verið hér í
tæpa tvö mánuði og eru sam-
mála um að kuldinn sé skrítinn.
Hafa aldrei upplifað annað eins.
Þeir segjast enn ekki hafa mynd-
að sér skoðun um hvernig
tilfinningin er. Vita ekki hvort
þeim þykir þetta gott eða vont.
„Ég var reyndar í mastersnámi í
Noregi, þannig að ég hef aðeins
kynnst kuldanum áður," segir
Francis. Afríkumennirnir eru hér
á landi til að ná sér í aukna
menntun í sjávarútvegsfræðum.
Þeim hefur verið sagt að það
eigi eftir að verða enn kaldara en
kvíða því ekki. „Ég er frá einum
heitasta stað Afríku. Hitinn
heima er alltaf yfir 20 gráður.
Mér finnst því kuldinn á íslandi
skrítinn" segir Taabu sem var
nýbúinn að kaupa sér húfu og
vettlinga í fyrsta skiptið á æv-
inni. „Ég hef reyndar átt húfu
áður en þetta er í fyrsta skipti
sem ég geng með húfu vegna
þess að mér er kalt,“ segir
Taabu. Þeir kunna vel við sig á
íslandi en eiga von á því að fara
aftur heim til Afríku þegar þeir
hafa lokið námi sínu hér. „Við
eigum konur og börn í Afríku
þannig að við förum aftur
heirn," segir Francis sem segir
mikla fátækt í landi sínu þar sem
hann reynir að leggja sitt af
mörkum til þess að sjávarútveg-
urinn verði blómlegri. „Það er
mikill munur á þeim ríku og fá-
tæku,“ segir Francis. Þeir eru
hvorugir ríkir en eru þó ekki eins
fátækir og margir landar þeirra,
sem hreinlega svelta.
Taabu og Francis Afríkumennirnir geðþekku eru að krókna úr kulda á ísiandi. DV-mynd E.ÓI
Sigurður Þ. Ragnarsson
veðurfræðingur Staðfesti
að veturinn sé kominn.
Það er opinbert. Veturinn er
kominn. Sigurður Þ. Ragnarsson
staðfesti þetta í samtali við DV í gær.
Hann segir fulla ástæðu til að búa
sig undir það versta.
„Já, nú stimplum við veturinn
inn,“ segir Sigurður. „Hann er kom-
inn til að vera. Að minnsta kosti
fram eftir vikunni. Það verður kuldi
og snjókoma víða um land. Það er
því um að gera að gera bílinn kláran
og taka fram úlpurnar. Úlpulaus
maður verður ekki vinsæll meðal
kvenna í þessu veðri."
Sigurður segir að búast megi við
því að veðrið mildist aðeins í lok
vikunnar. Kannski á miðvikudag
eða fimmtudag.
„Þetta eru tvö veðurkerfi að
berjast sem skapa þetta kalda veð-
ur. ískalt Norður-íshafsloft streymir
yfir landið. Það er ekki nema að ein
og ein lægð sjái sér fært að koma til
landsins að veðrið batni aðeins."
En megum við búast við hörðum
vetri?
„Nei, það er ekkert sem bendir til
þess að hörkuvetur sé framundan,"
segir Sigurður. „Það er þekkt að við
fáum svona skot en annars er bara
að vona hið besta."
, Magasár í beinni
HOTEL RANGA
96 KM TIL REYKJAVÍKUR
Þátturinn Ópið hóf göngu sína í
sjónvarpinu í síðustu viku. Annar
þátturinn er á dagskrá nú á miðviku-
daginn þar sem Þóra Tómasdóttir
blaðamaður, Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir fegurðardrottning og
Kristján Ingi Gunnarsson skemmta
áhorfendum.
„Við erum að hluta til í beinni út-
sendingu. Það er mjög spennandi,"
segir Þóra. „Maður er nánast með
magasár í beinni en þetta er búið að
vera mjög gaman. Eina gagnrýnin
sem ég hef fengið er á hárgreiðsluna
svo ég held að annaðhvort sé fólk
ógeðslega kurteist eða okkur hafi
bara gengið nokkuð vel.“
*- Þóra segir að skjárinn kitli ekki
hégómann. „Sumum finnst æðislegt
að vera í sjónvarpinu. Fyrir mig er
Þóra, Ragnhildur og Kristján Þátta-
stjórnendur Ópsins eru ánægðir með viðtök-
urnar.
þetta fyrst og fremst mjög skapandi
vinna. Að framleiða nýtt efni á hverj-
um degi og vera með skemmtilegu
fólki. Eg hef því sloppið við egó-
trippið en fæ enn smá aumingja-
hroll þegar kameran fer í gang.“
EINKAAFNOT MÖGULEG
KJÖRIÐ FYRIR HVATAFERÐIR
FRÁ8ÆRAR VEITINGAR
Hótel Rangá er fjögurra stjörnu sveitahótel á bökkum Rangár, milli
Hellu og Hvolsvallar. Við bjóSum fyrirtaks fundar- og veisluaSstöðu.
Vertu velkominn!
ÞEGAR HALDA Á GÓÐAN FUND
Sími: 487 5700
www.icehotels.is
Nordica • Loftleiðir •
tcelandic Tourist Board
www.icetourist.is
Flughótel • Flúðir
IH
ICELANDAIRHOTELS
• Rangá • Klaustur • Hérað