Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2004
Fréttir DV
Bát stolið á
Þingvöllum
Á tímabilinu frá 29.
september til 18. október
var hvítum trefjabáti stolið
þaðan sem hann var við
Þingvallavatn í Kárastaða-
landi. Báturinn er af gerð-
inni Lami og gerður fyrir
þrjár tóftir og utanborðs-
mótor. Að sögn lögregl-
unnar á Selfossi eru að-
stæður á vettvangi með
þeim hætti að erfitt hefur
verið að fjarlægja bátinn
öðruvísi en fara með hann
eftir vatninu.
Hlutabréf
lækka
%
Áframhaldandi lækk-
anir urðu á hlutabréfa-
markaði í gær og hefur
markaðurinn nú lækkað
Bmm af síðustu sex við-
skiptadögum. Fyrstu
jgóra dagana í síöustu
Viku varð 2,5% lækkun á
Orvalsvísitölunni en á
föstudaginn hækkaði
Íífsitalan lítillega eða um
0,15%. f dag lækkaði
yísitalan svo um 0,25%
og hefur þá lækkað um
2,6% frá hæsta gildi sínu
þann 8. október síðast-
liðinn. Er þetta mesta
sex daga lækkun vísitöl-
unnar frá því í byrjun
mars á þessu ári. Grein-
ing Landsbankans segir
frá.
Eru vetrardekkin
komin á?
Gunnar Örlygsson
alþingismaður.
„Nei, ég er einn afþessum sem
kjósa heilsársdekkin. Svo er ég
hæstánægður með komu vet-
urs konungs. Það er líka ágætt
að þurfa ekkert að útbúa bíl-
inn sérstaklega. Hann er klár í
staginn."
Hann segir / Hún segir
„Nei, ég er á grófum heilsárs-
dekkjum. Nota aldrei nagla af
umhverfisástæðum. Ég reyni líka
að keyra eins lítið og ég get. Fer
frekar labbandi, á hjóli eða bara
í strætó. Þannig að ég heflitlar
áhyggjur. Grófa munstrið á eftir
að duga í vetur.
Kolbrún Halldórsdóttir
alþingiskona.
Stórhættulegur glæpamaður gengur laus á götum Reykjavíkurborgar eftir ævin-
týralegan flótta úr fangelsinu á Skólavörðustíg í gær. Lögreglan segir manninn,
sem heitir Arnþór Jökull Þorsteinsson, ekki hættulegan. Arnþór sat hins vegar
inni fyrir að hafa rænt apótek, vopnaður skammbyssu og á eiturlyfjum. Hans bíða
einnig réttarhöld fyrir að hafa hótað manni með haglabyssu og brjálast inni á
bensínstöð með fjaðurhníf að vopni.
Hættulegur glæiiamaour
á llðtta undan réttvísinni
Arnþór Jökull Þorsteinsson flúði úr fangelsinu á Skólavörðustíg
um klukkan þrjú í gær. Lögreglan lokaði götunni og leitaði í bak-
görðum víða um Þingholtin og nágrenni. Þetta gerðist þegar
flytja átti Arnþór á Litla-Hraun. Hann var ekki handjárnaður og
tókst að sleppa frá fangavörðum og láta sig hverfa.
„Það er verið á fullu að leita að
honum,“ segir Geir Jón Þórisson
yfirlögregluþjónn. „Við erum með
mannskap í þessu og munum finna
hann á endanum." Geir Jón segir
flótta eins og þennan alltaf geta
gerst. „Þetta er bara óhappatilvik,"
segir hann.
Hættulegur glæpamaður
Amþór sat í gæsluvarðhaldi
vegna ráns sem hann framdi í
Hringbrautarapóteki 4. septem-
ber sl. Ránið þótti óhuggulegt þar
sem Arnþór var vopnaður
skammbyssú og hafði á brott með
sér lyf eins og rítalin. Venja er að
þeir sem fremji vopnuð rán sitji í
gæsluvarðhaldi þar til dómur er
kveðinn upp. Ástæðan er sú að
þeir eru taldir ógn við almanna-
hagsmuni.
I tilkynningu frá lögreglunni í
Reykjavík er lýst eftir Arnþóri, sem
er dökkhærður, um 180 sentímetrar
á hæð og um 75 kíló. Þá er því hald-
ið fram að Arnþór sé ekki hættuleg-
ur en auk ránsins í apótekinu bíða
tvö mál Arnþórs fyrir dómi.
Ógnaði með haglabyssu
Þann 27. febrúar ógnaði Arnþór
manni nálægt heimili sínu með af-
sagaðri haglabyssu. Arnþór var
undir áhrifum lyfsins ecstasy þegar
atburðurinn átti sér stað og höfðu
húseigendur kallað á lögregluna til
að láta fjarlægja Arnþór.
Nokkrum dögum síðar,
þann 12. mars, gekk Arnþór
einnig berserksgang inni á
bensínstöð. Afgreiðslu-
maðurinn kallað á lögregl-
una og Arnþór brást við
með því að ógna afgreiðslumann-
inum með fjaðurhnífi sem er
ólöglegt vopn.
Þú getur hlaupið en ekki falið
þig
DV hafði samband við móður
Arnþórs sem hafði ekkert heyrt í
„Flestir fangar sem
flýja á íslandi enda á
því að gefa sig fram. f
Enda ísland lítið land,\
eyja, og fáir staðir til ?
að leynast."
drengnum sínum. „Hann hefuj
ekkert hringt og ég vil ekkert komá
lögreglan hafði í gær samband við
vini og ættingja Arnþórs í von um að
finna hann.
Arnþór er aðeins 19 ára og átti að
þingfesta hótunarmálin á hendur
honum í Héraðsdómi Reykjavíkur á
föstudaginn. Geir Jón Þórisson segir
flóttann trúlega hafa áhrif á aðbún-
að fangans og jafnvel verða til refsi-
auka.
Flestir fangar sem flýja á íslandi
enda á því að gefa sig fram. Enda
ísland lítið land, eyja, og fáir staðir
til að leynast. simon@dv.is
Óeining í menningarmálanefnd
Sviptingar í Kauphöllinni
Randver í kuldanum
Óeining var inn-
an menningarmála-
nefndar Reykjavík-
urborgar vegna skip-
an nýrrar ráðgefandi
fagnefndar um
styrkumsóknir
menningarmála-
nefndarinna.
Bandalag ís-
lenskra listamanna
útnefndi 15 manna
hóp í fagnefndina.
Fulltrúar R-listans,
þau Stefán Jón
I-Iafstein formað-
ur, Ármann Jak-
obsson og Ásrún
Kristjánsdóttir, lögðu fram
tillögu um að fimm úr tilnefnda
hópnum yrðu skipuð í nefndina.
Þetta eru Anna Líndal myndlistar-
maður, Áshildur Haraldsdóttir
Randver Þorláksson R-tistinn neit-
aði að verða við tillögu sjálfstæðis-
manna um að skipa Randver I styrkja-
nefnd menningarnefndar.
tónlistarmaður,
Björn Brynjúlfur
Björnsson kvik-
myndagerðarmaður,
Hallmar Sigurðsson
leikstjóri og Úlfhild-
ur Dagsdóttir bók-
menntafræðingur.
Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks lögðu
hins vegar fram
breytingatillögu um
að Randver Þorláks-
son, spaugstofu-
leikari með meiru,
kæmi í stað Björns
Brynjúlfs. Sjálf-
stæðismennirnir
Gísli Marteinn
Baldursson og Rúnar Freyr Gísla-
son sátu síðan hjá þegar meirihlut-
inn samþykkti eigin tillögu
óbreytta.
Markaðsvirði afskráðra
félaga 72 milljarðar
Opin kerfi em nú í yfirtökuferli eft-
ir að Kögun eignaðist 69% hlut í félag-
inu. Kaldbakur er að renna inn í
Burðarás og Atorka að yfirtaka
Sæplast. Þau þrjú félög sem hér um
ræðir verða því afskráð úr Kauphölf-
inni innan tíðar. Til þessa hafa tíu
félög verið afskráð á þessu ári.
I heild er markaðsvirði þessara fé-
laga 72 milijarðar en þar af er virði
þeirra sem em yfirtekin af öðmm
skráðum félögum um 34 milljarðar. Á
brott hverfa félög að verðmæti um 37
milljarðar króna. Greining íslands-
banka fjallar um málið og segir að þeir
eigi von á fleiri afskráningum og að
það verði einkum smærri félögum
sem fækki. Nokkur félög hafa aukið
hlutafé sitt í ár og munar þar mestu
Kauphöllin Ekkert félag hefur
verið nýskráð iár þrátt fyrir mjög
hagstæðar markaðsaðstæður.
um KB banka sem aflað hefur um 92
milljarða. Hins vegar hefur ekkert fé-
lag verið nýskráð í ár þrátt fýrir mjög
hagstæðar markaðsaðstæður. Á næsta
ári má búast einkavæðingu Símans og
skráningu hans á Aðallista. Þá hafa
Avion Group og Norðurljós lýst yfir
áhuga á að skoða skráningu. Minna fer
fyrir áhuga annarra félaga.