Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2004, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2004 Sport DV tr * < Adrian Mutu Hefuroft veriö I betri ‘< málum en dagarhans sem l leikmanns I Chelsea eru fsennilega á ■ enda eftir aö m upp komst um » kókainneyslu hans. Vandræði rúmenska'knattspyrnumannsins Adrian Mutu, sem leikur með Chelsea, halda áfram að aukast. Nú er komið í ljós að hann féll á lyfjaprófi eftir að upp komst um kókaínneyslu hans og á hann yfir höfði sér tveggja ára keppnisbann. Mutu mokar kóki í nös Rúmeninn Adrian Mutu er kominn á botn knattspyrnuferils síns. Hann féll á lyfjaprófi og upp hefur komist um kókaínneyslu hans, hann á því yfir höfði sér tveggja ára keppnisbann ef seinna lyfjaprófið staðfestir niðurstöðu þess fyrra. Mutu hefur átt í vandræðum innan vallar sem utan á þessu tímabili, lítið fengið að spila hjá Jose Mourinho og aðallega verið í fréttum fyrir að lenda í vandræðum utan vallar. Lyfjaprófið sem Mutu féll á var framkvæmt af handahófi á æfinga- svæði Chelsea í síðasta mánuði og greindi Mail on Sunday fyrst frá því á sunnudaginn að leikmaður í Ensku úrvalsdeildinni hefði fallið á lyfjaprófi. Fljótlega bárust fregnir af því að Rúmeninn Mutu væri sá seki og í gær var það staðfest. Þetta er síðasta atvikið í langri keðju atvika hjá Mutu blessuðum þar sem einkalíf hans fær meiri athygli en frammistaða hans á vellinum. Tveggja ára bann Umboðsmaður hans sagði í gær að Mutu væri í sjokki og myndi án nokkurs vafa krefjast þess að annað sýni yrði skoðað. Ef hann verður fundinn sekur þá á hann yfir höfði sér allt að tveggja ára banni og má fastlega búast við því að enska knattspyrnusambandið beiti hörð- ustu refsingu, sérstaklega ef mið er tekið af því hvernig þeir tóku á máli Rios Ferdinand. Gosdrykkjaframleiðandinn Pepsi sagði upp samningi sínum við Mutu um leið og fréttist af kók- neyslu kappans, en sá samningur gaf Mutu tæpar 100 milljónir króna í vasann. Klámstjarna og ofsaakstur Mutu hefur átt í stökustu vandræðum síðan hann gekk til liðs við Chelsea í fyrra. Hann skildi við >-ísbSks eiginkonu sína síðasta vetur og síðan bárust fregnir af því að hann ætti vingott við rúmensku klám- stjörnuna Andresan. skömmu hann kappakstri rúmensku lögregluna þar sem hann ók töluvert yfir leyfi- íegum hámarks- hraða og eftir það sagði rú- menskur sálfræðingur að Mutu væri siðblindur ein- staklingur sem teldi sig yfir aðra þegna Rúmeníu hafinn. „Hann heldur að hann sé hafinn yfir lög og reglu og geti gert það sem hann vill," sagði sálfræðing- urinn. Rífst við Mourinho Mutu hefur gengið illa að festa sig í sessi hjá Chelsea eftir að Portúgalinn Jose Mourinho tók við liðinu og hefur rifist við hann oftar en góðu hófi gegnir. Nú síðast kallaði Mourinho hann lygara eftir að Mutu hélt því fram að hann hefði neitað honum að fara og spila með rúmenska landsliðinu. Mutu fór og var ekki í leikmannahóp Chelsea gegn Manchester City á laugar- daginn. Þess í stað eyddi hann helginni í Róm ásamt fjölskyldu Bosnich fordæmi Mutu er með tæpar 400 milljónir í árslaun hjá Chelsea og á það á hættu þeim samningi verði rift. Talsmaður Chelsea vildi ekki tjá sig um málið en það er fordæmi fyrir því hjá félaginu hvernig tekið er á leikmönnum sem verða uppvísir að neyslu kókaíns. Þegar upp komst um eiturlyfjaneyslu markvarðarins Marks Bosnich fyrir tæpum tveimur árum var samningi hans við Chelsea þegar í stað rift. Bosnich var dæmdur í níu mánaða bann, en eins og áður sagði er enska knattspyrnusam- bandið farið að taka harðar á brotum af þessu tagi. Ekki þykir lík- legt að Mutu verði mikið lengur í leikmannahópi Chelsea, bæði vegna rifrildisins við Mourinho, sem og kókaínneyslunnar sem ein og sér nægir til að sturta samningi hans við félagið ofan í klósettið. Mutu hefur ekki viljað tjá sig en Gordon Taylor, framkvæmda- stjóri leikmannasamtakanna á Englandi, sagðist hafa rætt við Mutu og að umboðmaður hans myndi gefa út yfirlýsingu þegar honum þætti það tímabært. Frægir fíklar Diego Maradona Maradona, argen- tínska goðsögnin, var gripin glóðvolgur þegar hann lék með Napoli í ítölsku deild- inni árið 1991. Hann var dæmdur í ' fimmtánmán- aða bann og hefur átt við stanslaus vand- amál að etja síðan. Hann dvelur nú á heilsuhæli á Kúbu þar sem hann undir með- nr. 100. Claudio Can- gja Kókaínbróðir Maradona og landi hans. Hann var dæmdur í þrettán mánaða keppnisbann árið 1993 vegna neyslu kókaíns. Mark Bosnich Féll á lyfjaprófi síðla árs 2002 vegna neyslu kókaíns, var dæmdur í níu mánaða bann og rekinn frá Chelsea í kjölfarið. Þessi ágæti markvörður hefur látið lítið fyrir sér fara síðan og ekki spilað leik. Paul Merson Kókaín- og spilafíkiU sem fór í meðferð eftir að hafa verið kominn í ræsið. Náði sér upp á glæsilega upp á nýjan leik. Lauru Fyrir lenti við Kokamneyslan ein og sér nægir til að sturta sam- ningi hans við félagið ofan í klósettið. Allardyce framlengir um fimm ár Sam Allardyce, knattspymu- stjóri Boiton, framlengdi í gær samningi sínum við félagið um fimm ár, en það vill svo skemmti- lega til að hann varð fimmtugur í gær. AUardyce hefur staðið sig frábærlega þau fimm ár sem hann hefur stjómað Uðinu og var ný- lega orðaður við stjórastöðuna hjá Newcastle. Hann ákvað hins vegar að vera áff am hjá Bolton og PhU Gartside, stjórnarformaður Bolton, ’ launaði honum það með ’ feitum samningi. / „Sam fer ekki ^ V % fet. Hann er r J aðvinna § verksem * hann hóf fyrir fimm árum og við höfum aUtaf talað um aö það tækj að minnsta tíu ár. Hann veröur hjá okkur næstu fimm árin og getur í raun verið etns lengi og hann vUl.“ sagði Gartstde. Echols skipti um skoðun Bandarikjamanninum Cam- eron Echols, sem fór ffam á að vera leystur undan samningi hjá körfuknattleiksdeUd KR í gær vegna heimþrár, hefur snúist hugur og ædar að spUa með lið- inu gegn Njarðvfk á fimmtudag. Echols kom í stað landa sfns Curtis King, sem yfirgaf KR vegnc launaósættis, og hafði aðeins spU- að einn leUc með liðinu. Böðvar Guðjónsson, formaður körfu- knattleiksdeUdar KR, sagði í sam- tali við DV að Echols væri ungur leikmaður sem hefði aldrei búið utan Bandaríkjanna, en hann vonaðist tU að hann myndi finna sig og Uengjast hjá þeim. Woodgate á eftir að slá í gegn á Spáni Forráðamenn spænska Uðsins Real Madrid eru sannfærðir um að enski vamarmaðurinn Jon- athan Woodgate muni slá f gegn f Spænsku úrvalsdeUdinni þegar hann verður loksins heUl. Wood- gate hefur ekki spUað einn einasta leik síðan hann var keyptur til félagsins frá Newcastle í sumar og verður frá þar tU desember að minnsta kosti. EmUio Butra- gueno, yfirmaður knattspymu- mála hjá Real Madrid, sagði p f Woodgate vera fantagóðan j , leikmann sem muni sýna 1 / öUum hvað í c

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.