Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Síða 3
DV Fyrst og fremst
FÖSTUDAGUR 14.JANÚAR2005 3
Dómurlnn hvnt
frekari dáða
„Ég er afskaplega ánægður með það sem kom út úr þessum dómi
svo langt sem það náði," segir Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi al-
þingismaður og iðnaðarráðherra, sem vann áfangasigur fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur í fyrradag. Þá féllst héraðsdómur á kröfu Hjörleifs
pium að nýtt álver í Reyðarfirði þurfi
að fara í mat á umhverfis-
---- --- áhrifum. Héraðsdómur féllst
einnig á þá kröfu Hjörleifs að úrskurður Skipulagsstofnunar frá
2002 yrði ómerktur en sá úrskurður fól í sér að umhverfismat á álveri
sem Norsk Hydro hugðist reisa ætti að gilda líka fyrir álver Alcoa.
Hjörleifur hefur fylgst grannt með gangi mála fyrir austan allt frá ár-
inu 1997. Hann segist hafa gert fjölmargar athugasemdir og sent inn kær-
ur er varða álverið, virkjunina og raflínurnar sem eiga að tengja þetta sam
an. „Ég hef haft margt við málsmeðferð stjórnvalda að athuga allt frá byrjun.
Niðurstaða Héraðsdóms var auðvitað ákveðin uppskera eftir nokkurt erfiði -
en það sem mér er ríkast í huga nú er að dómurinn hefur almennt gildi fyrir
allan þann mikla fjölda fólks sem hefur verið ósáttur við vinnubrögð stjórn-
valda í þessu máli öllu saman. Ég er sannfærður um að þessi dómur verði öllum
þeim sem láta sig umhverfismáhn varða hvatning og menn haldi áfram að
standa vörð um þá hagsmuni sem þeir telja að þurfi að verja á sviði umhverfis-
verndar. Því miður finnst mér að ekki hafi verið fylgt eðlilegum reglum í þessu máli
heldur hafi verið beitt handafli af hálfu stjórnvalda. Það er auðvitað afar alvarlegt
þegar stjórnvöld sniðganga eðlileg vinnubrögð og það er að koma í bakið á þeim
núna,“ segir Hjörleifur.
Iðnaðarráðuneytið og Alcoa hafa áfrýjað
dómnum til Hæstaréttar. „Við tökum þeirri
áskorun og minn ágæti lögmaður, AtU
Gíslason, heldur áfram með málið. Við
munum taka upp þá þætti sem við
teljum að rétt sé að láta reyna á
fyrir Hæstarétti," segir Hjörleif-
ur Guttormsson.
'
Hjörleifur Guttormsson Náttúru-
verndarsirminn gefst aldrei upp og
vann timamótasigur fyrir
Héraösdómi í vikunni.
Spurning dagsins
harðar að Impregilo?
Á ASÍ að ganga
Stjórnvöld eru farin að hlusta
„Já, þeir eiga aö gera það því loksins nú eftir
nokkurra ára baráttu eru stjórnvöld farin að
snúa við blaðinu og farin að hlusta. Afskiptaieysi
stjórnvalda á stóran þátt í því hvernig Impregilo
hefur getað komið fram við okkar erlendu f
gesti með ómannúðlegum hætti."
Guðmundur Gunnarsson, formaður j
Rafiðnaðarsambandsins
„ASÍ ber skylda
til að verja rétt-
indi launafólks
og gera það
sem til þarf.
Enn sem komið
erhefurASl
ekkiátt í fullu tré við Impregilo."
Árni Finnsson, formaður
Náttúruverndarsamtaka fs-
lands
„Mér fmnst þeir
hafa gengið
ansi hart og vel
fram i því máli.
Ég veit ekki
hvortþað þarf
að gera betur
en þeir eru að
vinna vinnuna sína vel."
Aðalbjörn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri AFLS, starfs-
greinafélag Austurlands.
„Ég veit það
nú ekki, en þeir
eiga vissulega
að ganga hart
fram til að
tryggja hags-
muni íslensk
launafólks. Það leikur enginn
vafi á því. Ég held að almennt
hafiASl staðið sig vel."
Kristinn H. Gunnarsson
alþingismaður
„Ég tel vera
mikilvægast
að öll um-
kvörtunarefni
séu upplýst og
leidd til lykta í
réttum farvegi
og ég held að
ASl hafi alla möguleika til að
stuðla að því."
Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins
ASl skilaði á dögunum inn greinagerð til félagsmálaráðherra þar
sem Impregilo er meðal annars sakð um að vilja og ætla sér ekki
að virða íslenskar leikreglur og sýni lítinn áhuga á að ráða Islend-
inga til starfa.
Heimsins lengstu
landanöfn
V Daglega segjum við fslendingar bara fsland þegar við eigum við land
okkar en hið opinbera beiti þess erLýðveldið fsland, beilir 15 staðr. F.ins er
með önnurlönd, þau eiga sér bvunndagsútgáfu afnafni ogsvo opinbera.
Og auðvitað er búið að rannsaka þau tíulönd sem bera lengstu nöfnin af
öllum íbeimi bér og erþá miðað við okkar staffófí öllum tilfellum.
LAND HVUNNDAGS- FJÖLDI
NAFN STAFA
1. al-Jamahiriyah al-Arabiyah al-Libiyah ash-Shabiyah al Ishtirakiyah Lfbla 59
2. al-Jumhuriyah al-Jazairlyah ad-Dimuqratlyah ash Shabiyah Alsfr 51
í. United Kingdom of Great Brltaln and Northern Ireland Stóra-Bretland 45
4. Sri Lanka Pratjatantrika Samajavadi Janarajkya Sri Lanka 41
5. Jumhuriyat al-Qumur al-lttlhadiyah al-lslamiyah Kómaroseyjar 41
6. República Democrátlca de SaoTomé e Prlndpe SaoTomé Prlndpe 38
/. al-Jumhuriyah al-lslamiyah al Muritaniyah Máritanfa 36
8. al-Malakah al Urdunniyah al-Hashimiyah Jórdanla 34
9. Sathalanalat Paxathipatal Paxaxon Lao Laos 34
10. Federation of Saint St. Kitts and Nevls Nevls 33
Karlmannsnafnið Ljótur
kemur fyrir í Landnámu, ís-
lendingasögum, Sturlungu
og fornbréf-
um. Það
virðist hafa
verið notað fram eftir öld-
um en síðan horfið vegna
misskilinna tengsla viö lýs-
ingarorðið Ijótureöa ófrið-
Málið
ur. Nafnið er ekkert skylt
lýsingarorðinu heldur
merkir það hvorki rheira
né minna en bjartur eða
Ijós og er skylt nafnorðun-
um Ijós og Ijómi. Viðliður-
inn -Ijótur kemur fyrir í
ýmsum karlmannsnöfnum
eins og Arnljótur og Úlf-
Ijótur.
„Þegar litið er
til sögunnar
og tilrauna á
mönnum og dýr-
um má segja að kóka-
in sé öflugasta og
hættulegasta vimuefni
sem maðurinn hefur
komist í kynni við."
Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir á Vogi i Mbl.
i nóv. 2000
afi*
ÞEIR ERU BRÆÐUR
Bræður á fjölmiðlum
Böðvar Bergsson, sem er byrjaður með nýjan
íþróttaþátt ásamt Valtý Birni Valtýssyni og
Hans Steinari Bjarnasyni á Sýn, er bróðir ann-
ars kappa sem kemur fram á sömu sjónvarps-
stöð. Böðvar er bróðir fótboltamannsins og
sjónvarpsstjörnunnar Guðna Bergssonar. Þeir
eru synir Bergs Guðnasonar, lögmanns og
Valsara. Þriðji bróðir þeirra heitir Bergur og
selur auglýsingar í Viðskiptablaðið. Allir koma
þeirþannig með einum eða öðrum hætti
nálægt fjölmiðlum.
HÚSGAGNAVERSLUN