Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005
Fréttir DV
Reynir T>»«stason
Reynirerhamhleypa til verka,
duglegur, réttsýnn og úrræðagóð-
ur. Reynir þykir skemmtilegur og
sögumaður góður. Reynir er stýri-
maður - í landi og á sjó.
Reynir á það til að láta eldmóð-
inn byrgja sér sýn, þó sami móð-
ur nýtist honum oftar vel en illa.
Hann er stríðnari en gengur og
gerist en sagður þola striðni mis-
vel eða alls ekki. Reynir er skap-
maður en hefur að sögn unnið
að fækkun galla sinna eftir því
sem hann eldist.
Eysteinn Gunnar Guðmundsson kveðst alsaklaus af ákæru fyrir ólöglegan inn-
flutning á sex litháískum verkamönnum árið 2003. Eysteinn hlaut dóm fyrir sams
konar mál árið 2002 en fékk þá einungis 300 þúsund í sekt. Hann sætir nú rann-
sókn vegna líkamsárásar á hendur tveimur Litháum sem kváðust eiga inni hjá
honum laun. Eysteinn kannast ekki við það heldur.
Verktaki sakaöur um svik
on ofbeldi genn Litháum
„Reynir er atorkusamur,
duglegur og heiðarlegur.
Hann ergríðariega kapps-
fullur, vill að hlutirnir gangi
fljótt og vel, og fer fram á
það sama hjá öðrum. í þá áratugi
sem ég hefþekkt hann hefur hann
reynst góður félagi. Gallinn á Reyni
er efiaust sáaðhann þolir illa
stríðni."
GuOmundur Sigurösson, bifreiðastjóri og
félagi.
„Ég þekkti Reyni lengst af
sem sjómann og skipstjóra,
þarsem hann vargóður,
duglegur og framsýnn. Það
kom mér og öðrum á óvart
þegar kappinn sneri sér að ritstörf-
um.sem hann hefur sinnt affestu
siðan. Hann hefur ástundað það síð-
anhann eitist og þroskaðist að
grynnka á sínum göllum og er það
vel."
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaöur
sjálfstæöismanna.
„Kostir Reynis eru hug-
myndariki, skemmtiiegheit
og dugnaður. Mln persónu-
legu kynni afhonum hafa
nær öll verið góð. Hann
kallar mig geðrika prlmadonnu
blessaður, sem ég held að sé hægt
að heimfæra á fleiri góða. Hann á
það til að rjúka upp en er fljótur nið-
ur aftur. Hann er slfellt að leita að
einhverju nýju verkefni, sem er auð-
vitað galli efþú ert atvinnurekand-
inn hans."
Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaÖur og
samstarfskona.
Reynir Traustason fæddist á sveitabæ meö
torfþaki í Borgarfiröi 18. nóvember 1953. Reynir
starfaöi sem sjómaður og síðar skipstjóri á Flat-
eyri til ársins 1994 er hann söðlaði um og gerðist
blaöamaður á DV og siðar Fréttablaðinu. Reynir
varfréttastjóri á DVþar tilhann tók við ritstjóra-
stóli á Mannlífí í desember2004. Reynir er sporð-
dreki.
Eysteinn Gunnar Guðmundsson vildi í héraðsdómi á dögunum
ekki tjá hug sinn til ákæru á hendur sér fyrir að flytja til landsins,
og hafa í vinnu hjá sér sex Litháa, sem ekki hafðí fengist atvinnu-
leyfi fyrir. Mennirnir störfuðu hér við byggingarvinnu á vegum
tveggja fyrirtækja í eigu Eysteins Gunnars, Perlunnar ehf. og
Smáverka ehf., á árinu 2003. Eysteinn Gunnar hlaut dóm fyrir
sams konar brot árið 2002. Segist alsaklaus af öflum ákærum.
FréttDV af Eysteini
DV hefur undanfarið
fjallað um feril Eystein
Gunnars Guðmunds-
sonar verktaka. Ey-
steinn hefur hlotið
dóm fyrir að flytja
hingað til lands lit-
háíska verkamenn án
leyfis.Hansbíðurnú
samsvarandi kæra i
Héraðsdómi Reykja-
ness auk kæru vegna
líkamsárásar á hendur
tveimuröðrum Lithá-
um sem hann skuldaði
laun og vildi úr landi.
Gerði dómari héraðs-
dóms þá athugasemdir
við að níu Litháar sem
Eysteinn Gunnar hafði
haft ólöglega í vinnu á
byggingarsvæði í Gufu-
nesi hafl verið sendir úr
landi áður en tókst að yfir-
heyra þá.
Litháatengslin
Fulltrúar verkalýðs-
hreyfinga hafa gert athuga-
semdir við að ef upp um
mál sem þessi komist séu
hin raunverulegu fórnar-
lömb, hinir erlendu verka-
menn, sendir úr landi án
tafar. Segja forsvarsmenn
verkalýðsfélaga að erlendir verka-
menn sem hingað komi til vinnu geri
það í góðri trú, haldandi að öll leyfi
séu til staðar.
Samkvæmt heimildum DV hefur
Eysteinn Gunnar Guðmundsson
tengsl við Litháa búsetta hér á landi
og mun hann hafa nýtt þau tengsl
óspart til að fá hingað verkamenn.
Sjálfur kveðst Eysteinn Gunnar
alsaklaus af ákærunni nú og
dómnum sem hann hlaut 2002 líka.
„Þetta er bara rugl,“ segir Eysteinn
Gunnar í samtali við DV. „Það
á vonandi eftir að koma í ljós fyrir
dómi.“
Barði tvo Litháa?
Tveir Litháar sem veittu DV viðtal
stuttu fýrir jól og höfðu gengið
sneyptir úr vistinni hjá Eysteini
Gunnari kváðust eiga inni hjá honum
nokkurra mánaða laun auk þess sem
þeir lýstu því hvernig Eysteinn hefði
brotið gerða samninga um laun og
annan aðbúnað við þá. Þetta segir
Eysteinn Gunnar tóma þvælu.
Fulltrúar verkalýðshreyfinga hafa gert at-
hugasemdir við að efupp um málsem þessi
komistséu hin raunverulegu fórnarlömb, hinir
erlendu verkamenn, sendir úr landi án tafar.
Fyrirtækið er skráð hér Annað afþeim fyrirtækjum sem Eysteinn stýrir og hafði umsjón
með flutningi Litháa, ólöglega, hingað til lands er skráð með lögheimili að Engjaseli 86.
Mönnunum skuldi hann ekki neitt.
„Ég veit ekki hvað þessum
mönnum gengur til,“ segir Eysteinn,
sem kveðst ætla að kæra DV fyrir
fréttaflutning af dómsmálum sem
hann sætir.
Þrátt fýrir þetta rannsakar
lögreglan nú enn eitt málið á hendur
Eysteini Gunnari en það er vegna
líkamsárásar sem að minnsta kosti
tveir Litháar segjast hafa sætt frá
hendi Eysteins á heimili Litháanna í
Breiðholtinu.
Samkvæmt heimildum DV höfðu
tveir Litháar samband við lögreglu
vegna líkamsárásar sem þeir kváðu
Eystein hafa staðið að ásamt félaga
sfnum og kærðu Litháarnir árásina í
kjölfar heimsóknar á slysadeild.
„Ég kannast ekki við þetta og hef í
raun ekkert heyrt frá lögreglu um
þetta heldur," segir Eysteinn.
Til rannsóknar hjá lögreglu
Kváðust Litháamir tveir hafa verið í
vinnu hjá Eysteini Gunnari og talið sig
eiga inni hjá honum laun. Eysteinn
mun ekki hafa viljað kannast við kröf-
ur Litháanna að þeirra sögn og í
framhaldinu rekið þá. Litháamir
munu þá hafa reynt að sækja rétt sinn
á annan hátt en neitað að yfirgefa
landið fyrr en greiðslur til þeirra yrðu
tryggðar og Eysteinn því mætt við
annan mann á dvalarstað mannanna
við Engjasel í Breiðholtinu og ætlað að
koma þeim út með valdi. Til átaka
mun hafa komið sem lyktaði með því
að Litháamir sám meiddir eftir.
Báðir Litháanna hafa kært meinta
árás og hún er nú til meðferðar hjá
lögreglu í Reykjavík. helgi&dv.is
Pizzahlaðborð
eins og þú getur í þig látið.
990kr
með gosi
1290kr m öl
Öll kvöld í janúar
Tryggvagötu
Uppnám vegna forsetahátíðar Bush
Bush-tvíburarnir fá ekki Kid Rock
Töluvert uppnám hefur orðið í
Washington vegna innsetningar-
hátíðar George W. Bush forseta
sem stendur fyrir dyrum. Ætlunin
er að hafa sérstaka hátíð fyrir unga
repúblikana og vildu Bush-tví-
burarnir, Jenna og
Barbara, fá Kid
Rock til að koma
fram á henni. Er
það spurðist út
varð allt vitlaust
meðal þeirra kjós-
enda forsetans
sem trúa stíft á
hin kristilegu
gildi.
Rappar-
inn/rokkarinn
Kid Rock er
Kid Rock Hóparsem
standa fyrir kristileg f/öl-
skyldugildi, og áttu stóran
hlut að endurkosningu Bush,
urðu æfir þegarþað spurðist
út að Kid Rock ætti að koma
fram á ungliðahátiðinni.
Tvfburarnir Barbara og Jenna fá ekki að hlusta á Kid Rock.
þekktur í heimalandi sínu fyrir að
syngja um kynlíf, fíkniefnanotkun
og jafnvel að segja nokkra neyðar-
lega hluti um móður tvíburanna,
forsetafrúna Lauru Bush. Hópar
sem standa fyrir kristileg fjöi-
skyldugildi, og áttu stóran hlut að
endurkosningu Bush, urðu æfir
þegar það spurðist út að Kid Rock
ætti að koma fram á ungliðahátíð-
inni. Annar tvíburanna, Barbara,
er í stjórn skipulagningar hátíðar-
innar sem hlotið hefur nafnið
„Framtíð Bandaríkjanna rokkar í
dag". Hún varð að bakka með Kid
Rock en þess má geta að Kid er
ákafur stuðningsmaður forsetans
og stoltur af því að vera
repúblikani.
í staðinn fyrir Kid Rock munu
tónlistarmenn á borð við Hilary
Duff og JoJo koma fram enda þykja
þau endurspegla betur hin kristi-
legu gildi.