Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 14.JANÚAR2005 Fréttir DV Karlamergð á Suðurlandi 500 fleiri karlar búa á Suðurlandi en konur. Verst er ástandið { Villingaholts- hreppi þar sem karlar eru 9,3 pró- sent fleiri en konur. Greint er frá því á Fréttavef Suðurlands að íbúar í Ásahreppi njóti mestrar kvennhylli, en þar skapa tvær konur það ástand að konur eru fleiri en karlar. Á Suðurlandi eru ungir piparsveinar á aldrin- um 18 til 27 ára 135 fleiri en konur á sama aldri. f Reykjavík hins vegar eru konur mun fleiri en karlar. Uppfyllir óskir foreldra Árni Sigfússon, bæjar- stjóri í Reykjanesbæ, til- kynnti í gær að bærinn væri hættur við að skerða niður- greiðslur til dagmæðra eins og til stóð að gera. Þetta kemur fram í grein bæjar- stjórans sem birt var í Víku- fréttum. Þar viðurkennir Ámi að ákvörðun bæjaryf- irvalda þessa efnis hafi vak- ið reiði og óánægju margra foreldra. „Við höfum ákveðið að verða við óskum foreldra og verðandi for- eldra og halda áfram niður- greiðslum með sama hætti og var fyrir áramót. Fyrir- huguð breyting gengur því ekki í gildi," segirÁmi m.a. í greininni. Endalok Tvíhöfða? Stjáni stuö útvarpsmaður. Þetta eru bara sorgarfréttir. Ég var náttúrlega aðalfréttamaö- urinn I Tvlhöfða og það var hrikalegt þegar maður fékk þær fréttir að stöðinniyrði lok- aö. Ég get alveg sagt að ég hafí veriö soldið harmi sleg- inn. Mér fínnst llka svo gaman I útvarpi." Hann segir / Hún segir „Mér er alveg sama. Ég hef aldrei haft áhuga á svona þáttum þar sem ráðist er á fólk úti I bæ. Mér fínnst það lágkúrulegt; að reyna að nið- urlægja fólk á kostnað ann- arra. Svoleiðis fólk kemst ekki áfram. Maður á miklu frekar að gera eitthvað skemmtilegt. Þannig hugsa ég." Leoncie, söngdíva. Háskóli íslands slær í gegn hjá fræga fólkinu sem streymir að alls staðar úr atvinnulífinu og oftar en ekki með stefnuna á sagnfræði. Fyrrverandi stjórnmála- menn, fréttastjóri, rithöfundur og jafnvel forsetaframbjóðandi sitja saman í tímum og skemmta sér vel. Þjóðþekkt kippa í sagnfræDi Um þessar mundir stunda minnst sex þjóðþekktir íslendingar nám í sagnfræði við Háskóla íslands. Sitja þeir oft saman í tíma og deila þar reynslu sinni úr atvinnulífinu auk þess sem þeir nema af kennurum deildarinnar á hefðbundinn hátt. „Folk a okkar aldri sem á oröið skuld- lausar eignir er ekki gjaldgengt hjá Lána- sjóðnum að því ég bestveit Stýrimannasskólanum árið 1967, stúdentsprófi 1975 og prófi í útgerðarfræðum 1977: ’ jj „Nei, ég hef ekki sótt um námslán og ég efast um að “ þetta fólk hafi heldur gert það. Fólk á okkar aldri sem á orðið skuld- lausar eignir er ekki gjaldgengt hjá Lánasjóðnum að því ég best veit,“ segir Kristján Pálsson, fyrrverandi al- þingismaður og sagnfræðistúdent við Háskóla íslands. Elin Hirst Isagnfræði. Engin namslan Kristján Pálsson lauk far- mannaprófi frá Hallur Hallsson Isagnfræði. Pétur Kr. Hafstein Isagnfræði. Ingólfur Margeirsson | fsagnfræði. Kristján Pálsson I sagnfræði. Jóna Gróa Sigurðardóttir I sagnfræði. Þama em saman: Kristján Páls- son, fyrrverandi alþingismaður, Eh'n Hirst, fréttastjóri Ríkissjón- varpsins, Ingólfur Margeirsson rit- höfundur, Pétur Kr. Hafstein, fyrr- verandi hæstaréttardómari og for- setaframbjóðandi, HaUur Hallsson, fyrrverandi umboðsmaður Keikós og Jóna Gróa Sigurðardóttir, fyrr- verandi borgarfulltrúi. Gaman í tímum „Ég fór í þetta vegna áhuga míns á sögu þjóðarinnar og einnig áhuga míns á því að skilgreina hana á fag- legan hátt og gera eitthvað úr því síðar," segir Kristján Pálsson, fyrrverandi alþingismaður, sem einmitt var að koma úr tíma í gær þar sem einnig sátu þeir Ingólf- ur Margeirsson og Pétur Kr. Haf- stein. Þar áttu þeir góða kennslu- stund saman: „Allt þetta fólk er búið að vera lengi í atvinnulífinu og hefur greini- lega áhuga á að gera sér eitthvert efiii úr allri þeirri reynslu," segir Kristján Pálsson. „Við vorum í tíma sem heit- ir Aðferðir 2 en það er í raun saga sagnfræðinnar og námskeið í faglegri uppsetningu sagnfræðilegs efnis." Tvítugur Hafnfirðingur dæmdur Úlpan lyktaði af Hróarskelduhassi Hérðaðsdómur Norðurlands hef- ur dæmt tvítugan Hafnfirðing til að greiða 30 þúsund krónur í sekt, ellegar sitja fjóra daga í fangelsi fym að hafa haft í fórum sínum tæpt gramm af marijúana. Pilturinn hafði reyndar ekki efnið í fórum sínum þegar hann var handtekinn á Akur- eyri aðfaranótt laugardagsins 31. júlí 2004 heldur fann lögreglan efnið á gólfinu skammt frá þar sem piltur- inn stóð. Það kom fram fyrir dómi að lög- reglan taldi sig hafa séð piltinn fleygja „einhverju" frá sér inni á skemmtistaðnum. Pilturinn neitaði því fyrir dómi og þegar ljóst var að fíkniefnahundur hafði sérstakan áhuga á hægri úlpuvasa hans sagði Ali-sportbar viö Ráðhústorg Pilturinn var handtekinn á þessum bar siðasta sumar. Smá- ræði afmarijúana fannst á gólfí staðarins. hann það eðlilegt: hann hefði verið í úlpunni á tónlistarhátíðinni á Hró- arskeldu og þar hefði hann í fyrsta og eina skiptið verið með fíkniefni á sér. Dómurinn tók ekki mark á þess- ari skýringu og dæmdi piltinn til að borga sekt og aukinheldur allan sak- arkostnað vegna málsins. Gjaldkeri hjá Fiskhúsinu á Svalbarðseyri Stal milljón og henti ógreiddum reikningum Hálfsextugur karl- maður á Akureyri sem starfaði sem gjaldkeri fyrir Fiskhús GJS ehf. á Svalbarðseyri hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að stela rúm- lega milljón krón- um frá fyrirtækinu. Fimm mánuðir dómsins eru skil- orðsbundnir til þriggja ára. Það var á tímabilinu 15. febrúar 2002 til 24. janúar árið 2003 sem maðurinn sveik 1.053.314 krónur út af tékkareikningi Fiskhúss GJS. Hann millifærði af reikningnum yfir á eigin reikning með því að framvísa til bankans launaseðlum sem hann hafði þegar fengið greidda og lét þannig bankann greiða sér launin aftur af reikn- ingi félagsins. Til að hylma yfir fjársvikin henti hann liluta af ógreiddum reikn- ingum félagsins sem honum hafði verið falið að af- henda bankanum til greiðslu, eins og segir í ákærunni. Gjaldkerinn játaði brot sín. Fram kemur í dómi Héraðsdóms Norður- lands eystra að maðurinn hefur ekki enn endurgreitt Fiskhúsinu rúmu milljónina sem hann stal. Honum hefur ekki áður verið gerð refsing í opinberu máli. Héraðsdómur Norðurlands eystra Hálfsextugur Akureyringur hefur ekki endurgreitt rúma milljón sem hann stal frá vinnuveitanda slnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.