Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005
Fréttir DV
Pizzahlaðborð
eins og þú getur í þig látið.
990kr
með gosi
1290kr m öl
Öll kvöld f janúar
Tryggvagötu
Formaður
heldurtvo
aðalfundi
Fólk frá Eþíópíu á fölsuðum sænskum skilríkjum
Fangelsi fyrir að ætla
til Bandaríkjanna
Nokkrir félagar í
Fríkirkjusöfnuðinum
í Reykjavík eru orðn-
ir langeygir eftir
aðalfundi en slíkur
fundur var ekki hald-
inn á síðasta ári eins og vera
ber. Þannig á eftir að leggja
bókhald ársins 2003 fyrir
söfnuðinn og svo styttist í að
aðalfundur vegna ársins
2004 eigi að fara fram.
Magnús Axelsson, formaður
safnaðarráðs, segir röð óvið-
ráðanlegra atvika hafa ráðið
því að fundurinn í fyrra fór
aldrei fram. Hann segir fyrir-
hugað að halda tvo aðal-
fundi á næstu vikum - jafn-
vel sama kvöld ef hægt er.
Hann segir endurskoðun
reikninga lokið og ekkert því
til fyrirstöðu að halda aðal-
fundina tvo.
Bæjarfulltrú-
ar blogga
Sú nýjung hefur
verið tekin upp í
hafrifirskri stjórn-
sýslu að hver bæjar-
fulltrúi heldur nú úti
bloggsíðu. Pisda og
þanka pólitíkusanna
má finna undir heimasíðu
bæjarins, www.hafnarfjord-
ur.is. Bæjarfuiltrúinn sem
reið á vaðið, Guðmundur
Rúnar Ámason, segir í einni
af færslum sínum að inter-
netið sé hvalreki fyrir stjóm-
málamenn - ekki síst blogg-
ið. „Það er enda skylda okk-
ar að láta skoðanir okkar í
ljós,“ segir Guðmundur
Rúnar bloggari og bæjarfull-
trúi í einni af færslum sín-
um.
Þrjú börn Þorvaldar í Síld og físk berjast um fööurarfinn en Þorvaldur var um ára-
tugaskeið skattakóngur í Reykjavík og með auðugustu mönnum landsins. Elsta
systirin er í dómsmáli gegn hinum tveimur og nú hefur Skúli, sonur Þorvaldar,
farið fram á opinbera skiptingu dánarbús móður þeirra fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur. Lögfræðingur Skúla, Halldór Birgisson, segir það rétt hvers erfingja að leita
á náðir dómstóla ef honum finnst á sér brotið.
Bethlehem Destawi, tuttugu og
fimm ára gömul kona frá Eþíópíu,
og tuttugu og eins árs gamall félagi
hennar, voru í gær dæmd hvort
um sig í þrjátíu daga fangelsi. Þau
voru sakfelld fyrir að ferðast á milli
landa á fölsuðum skilríkjum þegar
þau voru stöðvuð af landamæra-
lögreglunni á Keflavíkurflugvelli.
Þau voru ákærð fyrir að misnota
vegabréf og dæmd um leið og
þeim var birt ákæra í Héraðsdómi
Reykjaness í gær. Þau reyndu að
komast til Bandaríkjanna í gegn-
um ísland á sænskum vegabréfum
sem annað fólk átti. Þriðji maður-
inn, sem er einnig frá Eþíópíu, var
handtekinn með þeim en hann er
grunaður um að hafa aðstoðað
þau við ferðalagið til Bandaríkj-
anna, að sögn Eyjólfs Kristjáns-
sonar fulltrúa sýslumannsins á
Jóhann R. Benediktsson og Eyjólfur Kristjánsson Sýslumaðurinn og fulltrúi hans taka
hart á fólki sem reynir að smygla sér og öðrum milli landa.
Keflavíkurflugvelli sem sótti mál- nú þarf það að sækja um reynslu-
ið. Fólkið hefur þegar setið í lausn til að geta sloppið úr haldi
fimmtán daga í gæsluvarðhaldi en og farið úr landi.
„Ég get ekki svarað einni einustu
spurningu um þetta mál," segir Geir-
laug Þorvaldsdóttir, sú elsta af syst-
kinunum þremur. Hún hefur sjálf
höfðað mál gegn bróður sínum Skúla
og Katrínu, systur sinni. Það mál
varðar uppgjör þeirra á milli á sölu á
fasteignum Síldar og fisks. í dag verð-
ur svo tekin fyrir beiðni Skúla um op-
inbera skiptingu dánarbús móður
þeirra, sem féll frá í sumar. Sat hún í
óskiptu búi og hafði yfirráð yfir auð-
æfunum fram til dauðadags. Sjálfur
lést Þorvaldur í Sild og fisk 1998.
Kæra á víxl
„Búinu hefur verið skipt að miklu
leyti en það em ákveðin frágangsatriði
eftir,“ segir Halldór Þ. Birgisson, lög-
fræðingur Skúla, sem var þekktur við-
skiptamaður, eigandi Hótel Holts, en
tapaði miklu í misheppnuðum við-
skiptaævintýrum á síðasta áratug.
Halldór gætir einnig hagsmuna
hans í málinu sem Geirlaug hefur
höfðað á hendur hinum systkinum
sínum og segir að ef erfingjar nái ekki
að leysa mál sín á milli sé lokaúrræði
að leita á náðir dómstóla. Sú sé raun-
in í þessu máli.
Ríkidæmi Þorvalds
Þorvaldur Guðmundsson, alltaf
kenndur við Sfld og fisk, var braut-
Feðgarnir Þorvaldur og Skúli taka við við-
urkenningu sem viðskiptamenn ársins 1991.
ryðjandi í íslensku atvinnulífi og
hæsti skattgreiðandi landsins um
áratugaskeið. Þrátt fyrir að alast upp
við fátækt hjá einstæðri móður sinni í
Reykjavflc tókst honum snemma að
koma fótunum undir sig; stofnaði
fyrstu rækjuverksmiðju landsins og
fyrstu humarverksmiðjuna. Þorvald-
ur efnaðist þó ekki verulega fyrr en
hann stofnaði fyrirtækið Sfld og fisk
árið 1944 og stærsta svínabú landsins
nokkrum árum síðar.
Flestir landsmenn þekkja einnig
söguna af listunnandanum og lista-
verkasafnaranum Þorvaldi. Málverk
eftir Kjarval prýddu veggi Hótel Holts
sem Þorvaldur reisti ofan á kjörbúð á
Bergstaðastræti. Þorvaldur rak einnig
Hótel Sögu og Þjóðleikhúskjallarann;
var í stuttu máli athafnamaður ís-
lands.
Þorvaldur f Sfld og fisk Einn mesti athafnamaður landsins um áratugaskeið. Féll frá 1998.
Börnin berjast
Og nú berjast böm Þorvaldar um
arfinn sem féll til þeirra eftir að Ingi-
björg móðir þeirra lést í sumar.
Hvorki Geirlaug né Katrín vildu tjá sig
um málið og Skúli er staddur erlendis
þessa dagana.
Það eina sem Geirlaug vildi láta
hafa eftir sér var að henni þætti líklegt
að málið yrði látið niður falla. En
Halldór Birgisson, lögffæðingur
Skúla, er ekki á sömu skoðun. Hann
segir það rétt Skúla að málið verði út-
kljáð með formlegum hætti.
Spurður hvort um stórar upp-
hæðir sé að ræða segir Halldór
mörgu í búinu hafi þegar verið skipt;
til dæmis Kjarvalsverkunum sem em
í umsjón Listasafnsins í Gerðuberg.
„En,“ bætir Halldór við, „það sem
okkur finnst stórt getur öðrum þótt
ft'tið." simon@dv.is
Geirlaug Þorvaldsdótt-
ir Leikkonan og mennta-
skóiakennarinn sem vill
sinn hlut af föðurarfinum.
,Ég er að læra íslensku f augna-
blikinu, * segir Nicole Polland-
ear, nemi við Háskóla Islands.
„Og ég er að leita aö útgefanda
að Ijóðabók
sem ég lauk
viðnúnaí ~
desember. Ég sendi Ijóðin í ýms-
ar Ijóðakeppnir í Bandaríkjun-
um og svo er bara að vona hið
besta.“
Hvaö liggur á?
Systkinin í Síld og íisk
herjast um fööurartinn
Hatrömm deila barna Þorvalds Guðmundssonar í Sfld og fisk
um arf þessa fyrrum auðmanns íslands verður tekin fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur á morgun. Ósætti systkinanna þriggja um
skiptingu dánarbúsins hófst í sumar þegar móðir þeirra, Ingi-
björg Guðmundsdóttir, féll frá. Nú þegar eru tvö mál komin fyrir
Héraðsdóm og svo virðist sem barátta barna Þorvalds um fjöl-
skylduauðinn eigi eftir að taka á sig harðvítuga mynd.