Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Síða 18
Sport 0V
Ríkustu konur
skoða*,hverjai;
konux Islands;
sem eiga rika
u ríkustu
líka Þ*k
áfÉte S'" ■. ■ijm /M jp^SR ■ "H m § % m 4 JjJm
10 ár frá því að
snjóflóðio mikla
féll á Súðavík
Itarleg upprifjun á
þessum hræðilegu
náttúruhamförum þar
sem tólf
björgtiðust en
fjórtán iétust,
þar af átta
börn.
ogr henn
Helgarblað DV -
springur út á morgun!
Jaliesky Garcia Ætlar aldrei
að spila með islenska lands-
liðinu i handknattleik á
meðan Viggó Sigurðsson
stýrírþvi. Hann þarf heldur
varla að hafa áhyggjur afþvi
að vera valinn þvi hann er
ekki ofarlega á vinsældalista
Viggós þessa vikuna.
DVmynd Teitur
Stórskyttan Jaliesky Garcia mun ekki spila með íslenska
landsliðinu í handknattleik á meðan Viggó Sigurðsson stýrir
því. Viggó vill ekki sjá Garcia heldur en Jóhann Ingi Gunn-
arsson, formaður landsliðsnefndar, vill leysa málin eftir HM.
Kennir Kúbu um
sambandsleysi
Öll spjót hafa staðið á handknattleiksmanninum Jaliesky Garcia
undanfarna daga en hann kom sér út úr húsi hjá Viggó
Sigurðssyni landsliðsþjálfara með því að láta ekki í sér heyra eftir
að undirbúningur liðsins fyrir heimsmeistaramótið í Túnis hófst
3. janúar. Viggó hefur verið ósáttur við framkomu Garcia sem á
móti segir Viggó ljúga um staðreyndir.
DV náði tali af Garcia þar sem
hann var kominn til Þýskalands á
nýjan leik og spurði hann fyrst
hvar hann hefði alið manninn
undanfarnar vikur.
Viggó þekkir mig ekkert
„Eg fór til Kúbu til að vera
viðstaddur jarðarför föður míns.
Ég þurfti fyrst að fara til Púertó
Ríkó til að ég gæti komist til Kúbu.
Það tók fimm daga en síðan var ég
fjóra daga á Púertó Ríkó áður en
ég kom hingað til Þýskalands,"
sagði Garcia og vandar ekki
forystu HSÍ og Viggó Sigurðssyni
landsliðsþjálfara kveðjurnar.
„Ég var á Kúbu og þar
er ekki hægt að ná
sambandi út fyrir
landið. Það erekkert
internet fyrir almenn-
ing og ekki hægt að
hringja til útlanda."
„Ég er ekki sáttur við það
hvernig Viggó hefur talað um mig
í fjölmiðlum. Hann heldur því
fram að ég hafi bara verið í fríi og
það er hræðilegt að nokkur skuli
halda að ég geti bara verið að
leika mér í fríi skömmu eftir að
faðir minn deyr. Það sýnir að hann
þekkir mig ekkert og ætti því ekki
að vera að tjá sig um þetta mál.“
Garcia átti að mæta með
íslenska landsliðinu til Svíþjóðar
þann 3. janúar síðastliðinn en kom
ekki. Hann lét ekkert af sér vita
og blaðamanni lék forvitni á að
vita af hverju það væri.
Ekkert samband á Kúbu
„Ég var á Kúbu og þar er ekki
hægt að ná sambandi út fyrir
landið. Það er ekkert internet fyrir
almenning og ekki hægt að hringja
til útlanda," svaraði Garcia.
Undirritaður átti bágt með að trúa
þessum afsökunum Garcia enda
lifum við á tölvu- og tækniöld, þeirri
21., en Garcia sagði þetta dagsatt.
Samkvæmt heimildum DV er
mjög erfitt að ná sambandi við
umheiminn frá Kúbu og hafði
undirritaður samband við Bubba
Morthens sem fór þangað 1991 og
bar undir hann staðhæfingar
Garcia.
Bubbi trúir Garcia
„Ég get vel trúað því sem hann
segir. Ég var þama árið 1991 og þá
var ekki hlaupið að því að hringja
heim. Við þurftum að að fá
ráðherra til að opna fyrir okkur
símstöð til að hringja heim og
gátum hringt einu sinni í viku. Það
þarf sambönd til að vera tengdur
við umheiminn á Kúbu. Miðað við
það sem ég heyri núna þá er
ástandið enn verra núna. Þetta er
því örugglega hugsanlegt og ég
trúi því ekki að hann sé að ljúga,“
sagði Bubbi.
Hef alltaf gefið kost á mér
Garcia er, eins og áður sagði,
afar ósáttur við framkomu Viggós
Sigurðssonar og segist ekki ætla
að spila með landsliðinu á meðan
það er undir hans stjórn.
Aðspurður hvort hann hefði ekki
viljað spila á HM og komið sér
undan því með þessari framkomu
sagði hann það af og frá.
„Ég hef alltaf gefið kost á mér
í landsliðið og hefði gert það í
þetta skiptið. Ég hef alltaf lagt
mig allan fram og verð tilbúinn til
að spila fyrir landsliðið þegar
Viggó hættir að þjálfa liðið,“ sagði
Garcia. oskar@dv.is