Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2005, Qupperneq 21
DV Menning
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2005 21
Eldað með Elvis í síðasta sinn
Á laugardagskvöld verður siðasta verk heimilisföður sem er bundinn I
sýning i Loftkastalanum í hinu vinsæla hjólastól en lifir í draumum sinum i hlut-
verki Eldað með Elvis eftir Lee Hall i verki Presleys. Aðrir leikendur eru
leikstjórnMagnúsar6eirsÞórð- ^HalldóraBjömsdóttir,
arsonar. Álfrún örnólfsdóttir og
Eldað með Elvis var Pgpfr. ^iðrik Friðriksson. Hall-
frumsýnt snemma á síð- ur Helgason framleiddi
asta ári og var leikið sýninguna.
jöfnum höndum hér í .____fflHBÍn Allir leikendur ísýn-
Reykjavíkog norður á Hr ingunni hafa á sið-
Akureyri, ein af W' ustu vlkum tekið við
nokkrum sviðsetningum V>!Öiíir' ’4^5-■ hlutverkum íýmsum
siðasta árs sem var unn- xrjáW sýningum ávegum
in isamvinnu aðila norð- * Þjóðleikhússlns og sjálf-
anogsunnan. . JWéLJHBT stæðra leikhópa og er því
Sýningin er tragikómisk lýs- orðiö mjög þröngt um sýn-
ing á lífi lágstéttarfjölskyldu og hef- ingarkvöld þótt vafalitið gæti
ur ekki sist vakið athygli fyrir túlkun sýningin gengið nokkuð lengur gæfíst
Steins Ármanns sem fer þar með hlut- þess kostur.
Frönsk kvikmyndahátíð hefst í Háskóla-
bíói í dag og stendur í hálfan mánuð. Á
dagskrá hennar er fjöldi nýrra kvik-
mynda af öllu tagi og ber þar fyrsta að
telja nýjustu mynd Jeunet, Langa trúlof-
un, en margar aðrar áhugaverðar mynd-
ir eru á hátíðinni.
Aðsókn að hátíðinni er prófsteinn á
framtíð kvikmyndahátíða í höfuð-
borginni en aðsókn að Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í nóvember olh
miklum vonbrigðum. Innan við þús-
und gestir sóttu þá hátíð heim. Betri
var aðsóknin að Norrænu stutt- og
heimildamyndahátíðinni fyrr í haust
en þar vom slegin aðsóknarmet sem
tekið var eftir víða um Norðurlönd.
Margir aðilar koma að frönsku há-
tíðinni að þessu sinni: Rás 2 og Morg-
unblaðið em styrktaraðilar hennar
meðal fjölmiðla; hún nýtur styrkja op-
inberra aðila í Frakklandi, franskra
innflytjenda, dreifingaraðila og Alli-
ance Francaise.
Níu kvikmyndir verða sýndir á há-
tíðinni og skarta þær þekktum nöfn-
um og viðurkenningum af ýmsu tagi.
Bróðirinn - Son frére (2003) 95
mín.
Leikstjóri: Patrice Chéreau. Aðal-
hlutverk: Bruno Todeschini, Eric
Caravaca, Maurice Garrei. Drama.
Enskur texti.
Thomas veikist af ólæknandi blóð-
sjúkdómi. Skelfingu lostinn kemur
hann við hjá bróður sínum Luc, sem
hann hefur ekki séð lengi, og skýrir
honum frá veikindum sínum. Þegar
veikindi Thomas ágerast fýllast þeir
báðir örvæntingu og ekkert annað
kemst að. Thomas virðist loks fá áhuga
á lífi Luc, sem er samkynhneigður.
Claire, kærasta Thomas, fjarlægist
hann smátt og smátt. Að lokum eyða
bræðumir öllum stundum saman og
rifja upp bemskuminningar.
Marie-Jo og ástirnar tvær - Mari
Jo et ses deux amours (2002)
124 mín.
Leilcstjóri: Robert Guédiguian.
Aðalhluverk: Ariane Ascaride, Jean-
Pierre Darroussin, Gérard Meylan.
Rómantískt drama. Enskur texti.
Dag einn í lautarferð reynir Marie-
Jo að svifta sig lífi. Hún elskar Daniel,
eiginmann sinn, út af lífinu en finnur
fýrir sömu ástríðu í garð Marcos, ást-
manns síns. En það er ekki hægt að
elska tvær persónur í einu...
Kvikmyndahátíðin í Cannes 2002.
Hjartans mál - Le coeur des
hommes (2003) 107 mín.
Leilcstjóri: Marc Esposito. Aðalhlut-
verk: Gérard Darmon, Jean-Pierre
Darroussin, Bernard Campan.
Dramatísk gamanmynd. Enskur texti.
Alex, Antoine, Jeff og Manu em vinir
sem allir standa á tímamótum í lífinu.
Þeir hittast reglulega til þess að spjalla
saman, rífast eða hlæja. Þeir em af fá-
tækum fjölskyldum en hafa komist
áfram í lífinu, hver á sínu sviði. Röð at-
burða verður til þess að tengja þá enn
sterkari böndum og frammi fýrir að-
stæðum sem þeir ráða ekki við létta þeir
á hjarta sínu. Helsta vandamál þeirra er
samskiptin við hitt kynið og þau em líka
aðalumræðuefnið og deilumál.
Frá degi til dags - A la petite
semaine (2003) 100 mín.
Leikstjóri: Sam Karmann. Aðal-
hluverk: Gérard Lanvin, Jacques
Gamblin, Clovis Comillac. Dramatísk
gamanmynd. Enskur texti.
Eftir fimm ára fangelsisvist eyðir
Jacques fyrstu vikunni sinni sem frjáls
maður í félagsskap gamalla kunningja í
Saint-Ouen í útjaðri Parísar. Þessi
mynd lýsir daglegu lífi smákrimma og
er laus við allar klisjur um undirheim-
ana. Handritshöfundurinn Désir Carré
sækir efniviðinn í eigin reynslu og lýsir
sálarlífi smákrimma á sextugsaldri sem
er enn einu sinni sloppinn út úr fang-
elsi og ákveður að breyta lífi sínu. Sjálf-
ur ákvað Désir Carré eftir fjórar fanga-
vistir að læra leiklist og hóf að rita
handritið að þessari mynd. Hann leikur
hlutverk La Trompette í myndinni.
Einkadætur - Filles uniques
(2003) 85 mín.
Leikstjóri: Pierre Jolivet. Aðal-
hluverk: Kiberlain, Sylvie Testud.
Dramatísk gamanmynd. Enskurtexti.
Carole rannsóknardómari er svotítið
stíf. Líf hennar snýst um vinnuna og
eiginmanninn Bruno. Tina er óforbetr-
anlegur þjófur sem á að baki tveggja
mánaða fangavist, er langt frá því að
vera stíf og elskar skó. Þessar tvær kon-
ur hittast í dómshúsinu og verða óað-
skiljanlegar, kannski vegna þess að þær
em báðar einkadætur og þær sjá í hinni
þá systur sem þær hefðu viljað eiga.
Peningabíllinn - Le convoyeur
(2004) 95 mín.
Leikstjóri: Nicolas Boukhrief. Aðal-
hluverk: Albert Dupontel, Jean Duj-
ardin, Frangois Berléand. Spennu-
mynd. Enskur texti.
Peningaflutningafyrirtæki er í
miklum vandræðum. Þrír peningabíl-
ar þess hafa verið rændir á árinu. Allir
starfsmenn vom drepnir á hroðalegan
hátt. Grunur er á að maður sem vinn-
ur hjá fyrirtækinu tengist þjófunum..
Myndin segir frá Alexander sem ræður
sig til starfa hjá fyrirtækinu. Hver er
hann og hver er tilgangur hans með að
ráða sig hjá þessu fýrirtæki? Spenna og
hraði frá upphafi tÚ enda.
Kórinn Les choristes (2004) 95
mín.
Leikstjóri: Christophe Barratier.
Aðalhluverk: Albert Gérard Jugnot,
Frangois Berléand, Jacques Perrin.
Gamanmynd. íslenskur texti
Myndin Les Choristes er framlag
Frakka til Óskarsins sem besta erlenda
mynd ársins.
Saga myndarinnar gerist árið 1948
og fjallar um atvinnulausan tónlistar-
kennara sem fær vinnu við heima-
vistarskóla þar sem harður agi og
harðræði ríkir. Hinn nýráðni kennari,
Clément Matthieu, getur engan veg-
inn sætt sig við þetta harðfylgi sem
ríkir á heimavistinni, þannig að hann
ákveður að safita saman nemendum
og kynna fyrir þeim mátt og fegurð
tónlistarinnar. Fyrr en varir tekst
honum að skapa jákvæðara and-
rúmsloft í skólanum með uppbyggj-
andi tóniistarkennslu. En þar með er
ekki allur sigur unninn þar sem skóla-
stjórinn, Rachin er á móti allri ný-
breytni og nýjum jákvæðum straum-
um.
Langa trúlofunin - Un long
dimanche de fiancailles (2004)
134 mín.
Leikstjóri: Jean-Pierre Jeunet. Að-
alhlutverk: Audrey Tautou, Gaspard
Ulliel, Albert Dupontel. Drama, stríð,
söguleg. íslenskur texti.
Það vekur alltaf eftirtekt þegar
Jean-Pierre Jeunet gerir nýja kvik-
mynd. Mikil tilhlökkun hefur líka ver-
ið eftir þessari kvikmynd enda eru
þrjú ár síðan Jeunet gerði Amelie en
hún sigraði heimsbyggðina alla á eft-
irminnilegan hátt. Un Long
Dimanche de fiangailies er byggð á
samnefndri metsölubók eftir
Sebastien Japrisot sem út kom í
Frakklandi 1994.
Audrey Tautou fer með aðalhlut-
verkið í þessari mynd rétt eins og í
Amelie. Audrey fer með hlutverk
ungrar baráttukonu, Mathilde, sem
leitar að unnusta sínum í lok fýrri
heimsstyrjaldar en meðan á stríðinu
stóð var hann dæmdur fyrir herrétti.
Mathilde leggur allt í sölurnar og hef-
ur hún eldmóðinn, vonina, og ástina
að vopni enda staðráðin í að endur-
heimta ást lífs sins.
Myndin hefur fengið lofsamlega
dóma og þykir Jean-Pierre Jeunet
hafa tekist einstaklega vel að sýna
stríðshryllinginn á raunsæjan hátt.
Þetta er ein dýrasta kvikmynd sem
gerð hefur verið í Frakklandi og olli á
síðasta ári hörðum deilum vegna
erlends fjármagns. Leikstjóranum
hefur tekist frábærlega vel að endur-
skapa og fanga tíðaranda þess tíma-
bils sem sagan gerist á.
Grjóthaltu kjafti - Tais toi
(2003) 85 mín.
Leikstjóri og handritshöfundur:
Francis Veber (Le Grand blond avec
une chaussure noire, La Cage aux
FoUes, Three Fugitives). AðaUeikend-
ur: Gérard Depardieu, Jean Réno,
André DussoUier, Richard Berry.
Gamanmynd. íslenskur texti
Titilpersónumar em gjörólfldr af-
STÓRA SVIÐ
■■EHiSlÉMMnrHI
leikgerð Bjarna Jónssonar ó vesturfara-
sögu Böðvars Guðmundssonar
Lau 15/1 kl 20 - rauð kort - UPPSELT
Su 16/1 kl 20 - græn kort - UPPSELT
Fö 21/1 kl 20 - blá kort - UPPSELT
Lau 22/1 kl 20 - UPPSELT
Fim 27/1 kl 20 - Aukasýning
Lau 29/1 kl 20 - UPPSELT, Su 30/1 kl 20
Fi 3/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 5/2 kl. 20, Sun 6/2 kl 20
Fö 11/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
í kvöld kl 20, Su 23/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astríd Lindgren
Su 16/1 kl 14, Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14,
Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14 Síðustu sýningar
ISLENSKI DANSFLOKKURINN
FJölskyldusýning
THE MATCH, ÆFINGIPARADÍS, BOLTI
Lau, 15/1 kl 14, Lau 22/1 kl 14
brotamenn sem verða fýrir gráglettni
örlaganna klefafélagar í rammgirtu
fangelsi. Ruby (Réno) er gallharður
nagli sem rænir eiginkonu sinni og
bflfarmi af seðlum frá glæpaforingj-
anum Vogel (Jean-Pierre Malo), en
einfeldningurinn Quentin (Depar-
dieu) situr af sér litlar sem engar sakir.
Quentin er geðgóður kjaftaskur sem
gerir allt til að ná vináttu einfarans
Ruby, sem vill ekkert með flónið hafa
en hugsar um það eitt að hefna konu
sinnar, sem Vogel myrti, og koma
höndum að nýju yfir ránsfenginn.
Skólanemar fá tvo miða á verði
eins á allar myndir hátíðarinnar. Þá er
til sölu passi sem gildir á allar sýning-
ar hátíðarinnar en allar sýningar fara
ffarn í Háskólabíói.
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson
Grlman fyrir besta leik I aðalhlutverki
I kuöld kl 20 - UPPSELT, Su 16/1 kl 20 - UPPSELT
Fí 20/1 kl 20, Su 23/1 kl 20, Su 30/1 kl 20,
Lau 5/2 kl 20 - UPPSELT
Sýningum lýkur f febníar
AUSA eftir Lee Hall og
STÓLARNIR eftir lonesco
I samstarfi við LA
Lau 15/1 kl 20
Sfðasta sýnlng á Stólunum
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI.SÖGN ehf. og LA
[ kvöld kl 20, Fi 20/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson
í samstarfi við TÓBÍAS
Frumsýning Su 16/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20
ATH: Bönnuð yngri en 12 ára
Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILECU KVÖLDI -
Kl 18:00 CleSistund I fori.nl - veilingasalon opln
Kl 18*30 Kynnisferð um ieikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LfKAMA - BÓKIÐ í TÍMA
Miðasalan i Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
Miðasölusimi 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík