Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 Helgarblað DV Stan Lee komst í fréttirnar í vikunni er hann vann dómsmál gegn Marvel Enterprises um ágóðahlut fyrir myndirnar um Köngulóarmanninn. Stan Lee hefur yfir sér þjóðsagnarkenndan blæ í teiknimyndaheiminum enda hefur hann skapað ofurhetjur á borð við Spiderman, Fantastic Four, The Incredible Hulk, Iron Man, X-Men og Daredevil. Skapaði ofurhetjur með hversdagsleu vandamál Stan Lee komst í fréttirnar í vikunni er hann vann dómsmál gegn Marvel Enterprises um ágóðahlut fyrir myndirnar um Spider- Man, eða Köngulóarmanninn. Hinn rúmlega áttræði Stan Lee hefur yfir sér þjóðsagnakenndan blæ í teiknimyndasöguheimin- um en hann var sá fyrsti sem skapaði ofurhetjur með hversdags- leg vandamál. Áður en hann kóm til sögunnar fyrir rúmum 40 árum síðan voru hetjurnar annaðhvort algóðar eða alvondar og ekkert þar á milli. Úr huga Stan Lee spruttu ofurhetjur á borð við Fantastic Four, The Incredible Hulk, Iron Mari, X-Men og Daredevil. Og arfleið hans lifir góðu lífi því nefna má sem dæmi að nýlega kom ein af nútímahetjum Marvel, Northstar, út úr skápnum. Stan Lee fæddist árið 1922 og var hluti af fátækri innflytjendafjöl- skyldu af gyðingaættum frá Rúmen- íu. Hann var nefndur Stan Lieberm- an og sem unglingur fékk hann starf hjá útgáfufyrirtækinu Timely Publications sem var I eigu ættingja fjölskyldunnar. Hann fékk starf í teiknimyndadeild fyrirtækisins og Silver Surfer Silver Surfer thugaöi stöðu <gj mannkynsins. í Incredible Hulk The Incerdible , k, The Mighty Thor, Iron Manog « r hinir þurftu að glfma við vanda- >jj / eins og eiturlyfjaflkn, kynþdtta- j tur og félagslega mismunun. ’ Spiderman Kvikmyndirnc f Spiderman I og 2 hafa þér j i-6 milljarða dollara á hein | og er þá ekki tekið tillit til á af myndböndum og DVD. X-Men Eitt sköpunarverka J Stans Lee sem ratað hefur á hvlta tjaldið. þökk sé líflegu ímyndurnarafli hans var hann gerður að ritstjóra deildar- innar aðeins 18 ára gamall. Ritjálkur í 20 ár I meira en 20 ár var Stan „hinn fullkomni ritjálkur" eða „the ultima- te hack“ eins og það er orðað í um- fjöllun BBC online um ævi hans og störf. Hann skrifaði glæpasögur, hryllingssögur, vestra; allt til að slökkva lestrarþorsta ungra lesenda sinna. Orð sem voru með meira en tveimur sérhljóðum voru illa séð, persónur voru annaðhvort góðar eða illar og ekkert þar á milli. Stan skammaðist sín oft svo mikið fyrir það sem hann skrifaði að í staðinn fyrir að nota sitt rétt nafn tók hann upp dulnefriið Stan Lee sem hann svo síðar gerði að sínu löglega nafri. Mannlegar hetjur Þegar Stan komst á fertugsaldur- inn taldi hann sig vera of gamlan til að skrifa teiknimyndasögur. Eigin- kona hans, Joan, stakk þá upp á því að hann myndi skapa þær persónur sem hann langaði til. Hann hefði engu að tapa á því ef hann ætlaði að hætta á annað borð. Um svipað leyti kom annað útgáfufyrirtæki sem keppti við Timely fram með ofur- hetjur á borð við Batman, Superman og Wonder Woman. Timely ákvað að aðgerða væri þörf. Svar Lee við þessu var teiknimyndasöguserían The Fantastic Four árið 1961 um hóp geimfara sem verða fyrir öflug- um geimgeislum og fá við það ofur- krafta. Þessar persónur áttu eftir að breyta lífi Stans og teiknimynda- söguiðnaðarins að eilífu. Stan gaf hverri persónu mannleg og hvers- dagsleg vandamál eins og flösu, unglingabólur og aðra kvilla. Þær fóru oft í taugarnar hvor á annari og áttu í samskiptavandmálum við fjöl- skyldur sínar. Spiderman fæðist Bréf frá lesendum og aðdáendum streymdu til Stans. Án þess að vita af því hafði Stan sett af stað gullöld teiknimyndasögublaðanna og ímyndunarafli hans var komið á fullt flug. Hann skapaði Marvel Comics sem varð í fararbroddi teikni- myndasögublaðanna næstu áratug- ina. Skömmu síðar fæddist njörður- inn Peter Parker sem svo breyttist í Köngulóarmanninn, eftir að hann var bitinn af geislavirkri könguló og gat klifrað upp skýjakljúfa New York-borgar. Köngulóarmaðurinn varð að íkoni nútímapoppmenning- ar. Hann var með ofúrkrafta en samt átti hann við vandamál að stríða heima hjá sér, í vinnunni og í sambandi við kærustuna. Ungling- urinn var ekki lengur aðstoðarmað- ur hetjunnar heldur hetjan sjálf. Og Stan Lee Áður en hann kom til sögunnar fyrir rúmum 40 árum voru hetjurnar annaðhvort fuiikomniega góðar eða algjört illmenni og ekkert þarámilli. hetjan var ekki aðeins með krafta í kögglum heldur gáfur líka. Fleiri nýjungar „Bara af því að viðkomandi er hetja og hefur ofurkrafta þýðir það ekki að hann sé laus við vandamál," sagði Stan eitt sinn í viðtali við BBC. The Incredible Hulk, The Mighty Thor, Iron Man og allir hinir þurftu að glíma við vandamál eins og eitur- lyfjafíkn, kynþáttahatur og félags- lega mismunun. Og í öðrum hetjum komu fram áður óþekktar nýjungar. Daredevil var blindur, Black Panther var svartur og Silver Surfer íhugaði stöðu mannkynsins. Á gullaldarár- unum seldi Marvel um 50 milljónir eintaka af teiknimyndasögublöðum á ári. Og allt fram til 1971, er hann dró sig f hlé sem ritstjóri, skrifaði Stan textann á allar forsíður þessara tölublaða. Varð gjaldþrota Árið 1999 reyndi Stan að bræða saman teiknimyndahetjur sínar og netið með Stan Lee Media fýrirtæki sínu. Það fór allt á versta veg. Stan varð gjaldþrota og viðskiptafélagi hans endaði í fangelsi fyrir fjármála- svik. Árið 2001 stofnaði Stan hins vegar nýtt fyrirtæki, POW (Purveyors of WonderjEntertainment, sem nú er að þróa ýmsar hugmyndir fýrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Ein af hetjum þess er byggð á raunveru- legri persónu, Jay J Armes, sem hef- ur málmklær í staðinn fyrir hendur eftir slys sem hann lenti í, og berst við illmenni með tígrisdýr sér við hhð. Persónurnar lifa En hinar 40 ára gömlu persónur Stans lifa enn góðu lífi. Stórmyndir hafa verið gerðar með Hulk, X-Men og Daredevil í aðalhlutverkum í Hollywood á síðustu fimm árum svo ekki sé minnst á myndirnar um Köngulóarmanninn. Spiderman 1 og 2 hafa hala inn um 1,6 milljarða dollara á heimsvísu og það var vangoldin hlutdeild í ágóðanum af þeim sem neyddi Stan til að fara í mál við Marvel Enterprises. Það mál hefur hann nú unnið og svo virðist sem Stan sé jafn ódrepandi og ofurhetjur þær sem hann hefur skapað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.