Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 55
DV Fréttir
Vilja losna við
Kvikmynda-
skoðun
Ungir sjálfstæðismenn
skora á Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra að leggja
niður Kvikmyndaskoð- £
un íslands og í staðinn
verði bíóhúsum
og vídeóleigum
falið að meta
hvaða myndir
þau hafi til sýn-
inga. Sjálfstæð-
ismennirnir
telja að lögin
sem ráðherra
Sjálfstæðisflokks
ins, Tómas Ingi 01-
rich, lagði fram á
sínum tíma beri öll
merki ritskoðunar
og standist illa hug-
myndir um tjáning-
arfrelsi. Þeir vilja þó ijjj
áfram að bannað ^
verði að sýna eða
afhenda ungmennum und
ir sjálfræðisaldri ofbeldis-
fullar kvikmyndir.
Hækkun raf-
orku veldur
gremju
Hækkun sem
Orkubú Vestfjarða
setur á raforku-
kostnað kemur
Ómari Má Jóns-
syni, sveitarstjóra
í Súðavík, mikið á
óvart. Ómar segir
að hækkunin sé út í hött
miðað við það sem iðnað-
arráðherra og aðrir stjórn-
málamenn hafi sagt um
þær breytingar sem fylgdu
nýrri skipan raforkumála.
Ómar telur hækkanirnar
hafa mikil áhrif til hins
verra á samkeppnisstöðu
byggðarlaga þar sem hús
eru rafhituð. Verði niður-
staðan sú að raforkukostn-
aður hækki í þá veru sem
Orkubú Vestfjarða telji
nauðsynlegt verði ríkis-
stjórnarflokkarnir að axla
pólitískar afleiðingar máls-
ins.
Líkamsárás á
ísafirði
Líkamsárás var kærð til
lögreglunnar á ísafirði á
þriðjudagskvöld. Þrír ölvað-
ir menn áttust við fyrir utan
heimili eins þeirra í miðbæ
ísafjarðar og töldu tveir
mannanna þann þriðja
hafa ráðist á sig. Sá sem var
kærður var á leið í afplánun
vararefsingar fyrir að hafa
ekki greitt sekt til ríkissjóðs
á tilteknum tíma. Hann var
því handtekinn og fluttur til
Reykjavíkur eftir eina nótt í
fangageymslu lögreglunnar
á ísafirði.
Leiðrétting
Fyrir mistök birt-
ist mynd af Einari
Sigurðssyni fram-
kvæmdastjóra Flug-
leiða í stað Jóns
Torfa Jónassonar
prófessors í frétt um
framboð til embættis
rektors HÍ. Beðist er
velvirðingar á mistökunum
Carl Bergmann úrsmiður hefur tvívegis orðið fórnarlamb óreglumanna sem ræna
úrum og skartgripum. Seinna ránið var framið í fyrradag en hið fyrra um jólin.
Lögreglunni í Reykjavík tókst að handsama þjófana sem voru sjö talsins. Carl mun
mæta á lögreglustöðina eftir helgi til að bera kennsl á þýfið. Á meðan íhugar hann
að setja grindur í gluggana.
Carl Bergmann ursmiö-
ur Lögreglan hefur upplýst
tvö innbrot i verslun hans.
m
úrsmiö
Oreglnmenn ræna
„Þeir voru alls ekki gráðugir, þessir þjófar," segir Carl Bergmann
úrsmiður á Laugavegi. Lögreglunni í Reykjavík hefur tekist að
upplýsa tvö innbrot sem framin voru í verslun Carls - annað um
jólin og hitt í fyrradag. Sjö menn voru handteknir í tengslum við
ránin og tókst lögreglunni að endurheimta hluta þýfisins.
„Auðvitað er slæmt að vera
rændur tvisvar," segir Carl Berg-
mann úrsmiður og hlær. Hann seg-
ir þjófana hafa stolið í kringum 50-
60 úrum en skilið annað eins eftir.
Ástæðan fyrir því sé hugsanlega
öflugt þjófavarnarkerfi sem fari í
gang um leið og gluggar eru brotn-
ir.
„Maður fer samt að íhuga að
setja grindur fyrir gluggana. Það
heldur kannski aftur af þessum
þjófum," segir Carl.
Sjö handteknir
Ómar Smári Ármansson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir
að í fyrra ráninu hafi tveir menn brot-
ið rúðu í útihurð og stolið skartgrip-
um. Þeir hafi verið handteknir dag-
inn eftir og annar þeirra játað að hafa
brotist inn.
Innbrotið í fyrradag var mun viða-
meira. Ómar Smári segir sjö menn
hafa verið handtekna í tengslum við
mál; þrír voru handteknir í miðjum
klíðum við að selja hluta ránsfengs-
ins og aðrir þrír við húsleit sem gerð
var í ffamhaldinu. Sá sjöundi hafi svo
verið handtekinn vegna tengsla hans
við hina sakbomingana.
Óreglumenn
Ránsfengur fannst á heimili sjö-
unda mannsins auk þess sem stolinn
b£U með nýju skráningamúmeri
fannst hjá mönnunum sjö .
Að sögn Ómars Smára er ekki um
skipulagðan glæpahring þrátt fyrir
umfang innbrotanna. „Nei, þetta em
bara óreglumenn," segir Ómar.
Glæpaalda
Carl Bergmann úrsmiður ætlar að
fara niður á lögreglustöð á mánudag-
inn til að bera kennsl á ránsfenginn.
Hann segist vegna áhyggjufullur
vegna þessarar glæpaöldu; úrsmiðir
á Laugaveginum séu ekki ömggir.
„Maður fer samt að
íhuga aðsetja grindur
fyrir gluggana. Það
heldur kannski aftur
af þessum þjófum/'
„Við vorum reyndar nýbúin að
breyta útstillingunni í glugganum
þegar seinna ránið var framið. Gera
hana flotta og gimilega. „Hún var
kannski bara of flott því svo fær
maður þetta yfir sig,“ segir Carl. „Ef
þessir glæpamenn em líka orðnir
áskrifendur að búðinni hljóta trygg-
ingarfélögin að fara að hugsa betur
um okkur. Þetta var nú samt ekki svo
mikið tjón sem ég varð fyrir. Það var
engum Rolexum stolið." simon@dv.is
Stjórnandi gullnámu biðlar til viðskipta- og iðnaðarráðherra
Valgerði
Þingmönnum á Alþingi barst nú
fyrir helgina bréf frá
afrískum manni,
Durban Adams í
Suður-Afríku. Bréf-
ið, sem var stflað á
viðskipta- og iðnað-
arráðherrann Valgerði
Sverrisdóttur, lofaði
ráðherranum
miklum auð-
æfum gegn
lítilsháttar
greiða.
Mað-
urinn
áttar
sig
boðin auðæfi í Afríku
greinilega ekki á því að Valgerður er
frú þar sem hann stílar bréfið á herra
Valgerði. Hann segist vera stjórnandi
gullnámu í Suður Affíku sem heitir
Anglo Gold mining.
Adams biður Valgerði um að
hjálpa sér við að flytja fjármuni, sem
hann segist hafa komist yfir í gegn-
um samning við þýskt fyrirtæki í jan-
úar í fyrra, á múli reikninga. Hann
vill leggja tíu mflljónir dollara inn á
reikning ráðherrans til geymslu eða
ijárfestinga á íslandi. Þetta vill Ad-
ams gera þar sem stjórnvöld í landi
hans meini honum að eiga svo mik-
inn pening á meðan hann gegnir því
starfi sem hann sinnir í dag.
Hann biður Valgerði um að sýna
sér trúnað en segist ætla að hafa
samband við einn af æðstu yfir-
mönnum seðlabanka Suður Afríku
og sá muni flytja peninginn inn á
reikning Valgerðar um leið og hún
fallist á að hjálpa honum. Adams
segist munu semja við Valgerði um
þóknun fyrir þetta viðvik og biður
um símanúmer og faxnúmer til að
geta verið í betra sambandi. Eina
sem hún þurfi að gera sé að
vinsamlegast svara tölvupóstinum.
Tölvupóstur þessi frá Durban Ad-
ams, sem gefur upp netfangið dur-
banadams3@yahoo.com ber öll
einkenni nígerískrar svikamyllu þar
sem boðnir eru miklir peningar fýrir
lítilsháttar greiða. Margir íslendingar
hafa farið flatt á því að falla fyrir
slíkum brögðum en öðrum hefur
tekist að snúa á
Nígeríumennina, eins
og sást í viðureign
Tvíhöfðamanna við
Nígeríumanninn
Mustapha.
Mustapha Afrlku-
maður sem reyndi
að plata Tvlhöfða.