Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005
Helgarblað DV
Anna Francisca er hundakerling út í gegn og hennar
helsta áhugamál eru hundar. Hún hefur allt frá því
hún var lítil stelpa sýnt hunda á sýningum og er á
leið á stærstu hundasýningu í heimi, Crufts í
Birmingham, um miðjan mars til að sýna. Þar verður
hún fulltrúi okkar og mun sýna Enskan pointer.
>
Fj 4-
Hún gengur undir nafninu Anna
Husky og það er ekki út í loftið.
Siberian Husky-hundar eru önnu
afar hugleiknir; og ekki aðeins
Husky, heldur allir nundar. Hennar
helsta áhugamál eru einttíitt hundar
en Rósa móðir hennar ræktar
tegundina á heimili sínu á Vatns-
enda.
„Ég var fimm eða sex ára þegar ég
eignaðist minn fyrsta hund, en þá
fékk fjölskyldan Labrador-tík sem
við áttum í nokkur ár. Ahuginn
vaknaði síðan fyrir alvöru þegar við
eignuðumst Þórshamars - Týra, ís-
lenskan fjárhund sem við eigum
enn. Upp frá því komst lítið annað
að en hundar. Móðir mín hafði lengi
haft augastað á Siberian Husky-
hundum, en á Ítalíu er Ankalý-rækt-
unin, einn fremsta ræktun þeirra í
heiminum og við mamma fórum út
til að kynna okkur tegundina og leita
eftir því að fá keypta hunda, fýrir um
það bil fimm eða sex árum," segir
Anna um hvenær hún varð hundun-
um að bráð.
Husky-hundar frá Ítalíu
Síðan þá hefur Anna meira eða
minna notað allan sinn frítíma til að
sinna hundunum. Þær mæðgur
keyptu fyrst tvær tíkur og síðan
fengu þær rakka sem Anna hefur
mjög oft sýnt og náð góðum árangri
með á sýningum. Hann heitir Latino
og er faðir allra þeirra hvolpa sem
hér hafa fæðst síðan. „Ég fór síðan
að sýna hunda á sýningum HRFÍ
með ungum sýnendum, en þar eru
það sýnendur sem keppa sín á milli
en ekki hundarnir," segir Anna og
bætir við að árangurinn felist í því
hversu góðu sambandi sýnandinn
nái við hundinn.
Anna hefur oftar en einu sinni
borið sigur úr býtum á þeim sýning-
um og einnig sýnt á stórum sýning-
um í Evrópu. Nú síðast í desember
var hún á stórri sýningu í Stokk-
hólmi og aðra helgina í mars verður
hún á Crufts, stærstu hundasýningu
í heiminum sem alltaf er haldin í
Bretlandi. Þar mun Anna sýna Ensk-
an pointer sem hún hittir fyrst
klukkustund fyrir sýningu. „Það er
einmitt það sem gildir - að ná sam-
bandi við hundinn og til þess höfum
við aðeins klukkustund og sitjum öll
við sama bor'ð. Við þurfum að sýna
hundinn þannig að hans bestu hlið-
ar njóti sín sem allra best. Út á það
gengur þetta,“ segir Anna sem
hlakkar mjög til sýningarinnar.
Helgina áður er sýning hjá HRFÍ og
þar ætíar Anna að sýna
Husky-hunda móður sinnar og litla
Chihuahua-tík sem aðeins er nokk-
urra mánaða og er undan Baldintátu
sem er í eigu tengdamóður hennar
sem ræktað hefur þá hundategund.
„Já, ég var svo lánsöm að eignast
kærasta sem kemur úr mikilli
hundaíjölskyldu. Nei, það stóð alls
ekki utan á honum þegar ég hitti
hann fyrst en ég var afskaplega
ánægð að hitta fyrir fólk sem talaði
sama tungumál og ég,“ segir Anna
hlæjandi.
Framtíðin mun tengjast
dýrum
Kærastinn heitir Guðmundur
Örn Kærnested og býr í Mosfells-
dalnum en þar er Anna með annan
fótínn. Hann útskrifast sem stúdent
á húsasmíðabraut í vor en Anna er í
Fjölbraut í Breiðholti á náttúru-
ffæðibraut. Hennar takmark er að
verða jafnvel dýralæknir eða hunda-
þjálfari. „Það er alveg ljóst, hvað sem
verður fyrir valinu að það tengist
dýrurn," segir hún en hún er einnig í
hestum og ríður reglulega út.
Um þessar mundir er Anna að
„Viö þurfum aðsýna
hundinn þannig að
hans bestu hliðar njóti
sín sem allra best og
séu Ijósar. Út á það
gengur sýningin."
byrja með hóp í sýningarþjálfun
fýrir marssýningu HRFÍ en hún segir
nauðsynlegt að æfa vel fyrir sýning-
ar. Þannig nái fólk betri tengslum
við hundinn og getí sýnt hans bestu
hliðar. Dómarar átti sig fljótt á því
hvernig hundarnir eru sýndir og
eftir því sem tengslin eru betri því
meiri möguleikar eru á að hundur-
inn njóti sín. „Já, flestir vina minna
tengjast hundum og eru hundaeig-
endur en ég á líka vini utan hund-
anna,“ segir hún og skellihlær. Þeir
skilja mig ekki alltaf en taka tillit til
hundaáhugans. Þetta er æðislegt
áhugamál og það er kominn tími til
að stjórnvöld fari að átta sig á hve
margir það eru sem hafa áhuga á
hundum og vilja veg hans sem
mestan. Eins og staðan er þá fylgja
þau þeim áhuga ekki eftir og víst er
að við hundafólk verðum að huga að
því að eignast okkar fulltrúa inni á
þing,“ segir Anna Francisca sem oft-
ast gengur undir nafninu Husky
meðal kunningja og vina.
bergljot@dv.is
Glóey i
bi l> • Sli: Sft l<10
k
Útsala - Útsala
Lýstu upp stofuna, borðstofuna,
svefherbergið, barnaherbergið,
ganginn, forstofuna, baðherbergið,
elhúsið og sumarhúsið.
Inniljós og útiljós, fjölbreytt úrval