Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2005, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 Helgarblað X>V —'----- Greta Guðnadótt- ir fiðluleikari Verður I Bústaða- kirkju annað kvöld. I nær hálfa öld hefur Kammermúsikklúbbur Reykjavíkur veriö ein buröarstoðin í tónlistarlífi höfuðborgarinnar og sinnt flutningi tónlistar sem á sér ekki skjól hjá stærri tónlistarstofnunum. Klúbburinn hefur alla tíð verið undir stjóm áhugamanna en hefur auðgað íslenskt tónlistarlíf með starfsemi sinni. Strengjatónlist í Bústaðakirkju l/m langt árabil hefur Kammermúsik- klúbburinn haft aðsetur i Bústaðakirkju. A sunnudagskvöldið verða þar fjórðu tón- leikar klúbbsins á þessum vetri. Fluttir verða kvintett eftir Beethoven og kvartett- ar eftir þá Mozart og Brahms. Það verða þau Greta Guðnadóttir, Zbigniew Dubik, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Hrafnkell Orri Egilsson sem skipa kvart- ettinn en Jónlna Auður Hilmarsdáttir sest i hópinn þegar Beethoven-kvintett i C-dúr, op. 29 verður fluttur. Beethoven-kvintettinn mun vera einikvint- ettinn sem hann samdi, aðrir kvintettar hans eru umritanir. Verkiðsamdihann 1801 ásama skeiði og Pastoral-sónatan og 2. sinfónian voru skrifaðar. Kvintettinn er talinn lokakafl- Inn á fyrsta skelði hans sem tónskálds. Kammertónlistin var i upphafi stofutón- list fyrir heldra fólk Evrópu. Þannig spilaði Mozart með Haydn á heimili Esterhazy prins á árunum uppúr 1784 og þar frum- fluttu þeir ásamt öðrum kvartettinn sem fluttur verður i Bústaðakirkju á sunnu- dag, K 458, sem er einn afsex slikum sem Wolfgang tileinkaði Jósep Haydn vini sínum. Síðasta verkið á efnisskránni er op. 11: strengjakvartett I G-dúr frá 1890. Þannig endurspeglar efnisskrá tónleikanna annað kvöld þróun i smærri strengjaverkum Evrópumeistaranna íhundrað og tuttugu ár. Tónleikarnir hefjast I Bústaðakirkju kl. 20 á sunnudagskvöldið og er miðasala við innganginn. Kristín Gunnlaugsdóttir opnar sýningu í Duushúsum, Listasafni Reykjanesbæjar, í dag og bætir um betur með fjórum nýjum verkum sem verða til sýnis í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Hefur ekkert verkanna verið sýnt áður, en þau eru máluð á síðustu árum. Þetta er fyrsta sýning Kristínar um tveggja ára skeið. Kristín Gunnlaugsdóttir Myndir hennar bera keim af j kirkjulegri iist en eru þó undarlega náiægt okkur. islenska óperan og Osta- og smjörsal- an hafa undirritað samstarfssamning vegna tónieikaferðar Óperunnar norð- ur i Laugarborg i Eyjafjarðarsveit i febr- úarog hefstþað samstarf með tón- leikahaldi á morgun i Laugarborg. Islenska óperan hefur átt ágætis samstarfvið Tónvinafélag Laugarborg- ar og Eyjafjarðarsveit undanfarin miss- eri ognúer aftur komið að þvi að lista- menn á vegum Óperunnar sæki Eyfirð- inga heim. A morgun munu þau Elin Ósk Óskarsdóttir sópran ogJóhann Friðgeir Valdimarsson tenór ásamt Kurt Kopecky á pianó halda tónleika í Laug- arborg. Á tónleikunum mun þrieykið meðal annars flytja ariur og dúetta úr Toscu, La Bohéme, Madme Butterfly, Manon Lescaut, La Traviata og Macbeth. Flugfélag íslands kemur einnig að kostun verkefnisins. Elín Ósk og Jóhann Friðgeir eru um þessar mundir önnum kafin við æfingar á Toscu þar sem þau syngja hlutverk elskendanna Toscu og Cavaradossi. Tosca verður frumsýnd hjá Islensku óp- erunni 11. febrúar nk. og er það Bretinn Jamie Hayes sem leikstýrir verkinu en hann hlaut mikið lofgagnrýnenda fyrir uppfærslu sina á Macbeth hjá islensku óperunni árið 2003 sem var tilnefnd til menningarverðlauna DV. Magnús ostaforstjóri og Bjarni Daníelsson óperustjóri ganga frá Norðurlandsdíl. Mynd - islenska óperan ínar í Duushúsum ...mátturinn og dýrðin, að eilffu... Mátturlim gg dýröln Viðfangsefni Kristínar hafa löngum haft trúarlegt yfirbragð: sýninguna sem opnuð er í dag kallar Kristín „mátturinn og dýrðin, að eilífu“. Kristín útskrifaðist úr Myndlista- og handíða- skóla íslands árið 1987 og fór þá beint í framhalds- nám til Ítalíu. Þar lærði hún meðal annars íkona- gerð í Róm og stundaði nám í Ríkisakademíunni í Flórens árin 1988-1993. Kristín hefur síðustu fimmt- án árin tekið þátt í mörgum sýningum, hér heima og erlend- is og er þetta tíunda einkasýning hennar. I tilefni 90 ára vígsluafmæl- is Keflavíkurkirkju verða fjögur verk eftir Kristínu sýnd í safnaðarheimili kirkjunnar, Kirkjulundi, og verður sá hluti sýningarinnar opnaður kl. 16 í dag. sýningarskrá segir Auður Ólafsdótt- ir listfræðingur um listamanninn: „í þeim persónulega reit sem Krist- BORGARLEIKHUSIÐ Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík STÓRA SVIÐ mmsMnmnmmm leikgerð Bjarna Jónssonar á vesturfara- sögu Böðvars Guðmundssonar I kvöld kl 20 - UPPSELT Fim 27/1 kl 20, Lau 29/1 kl 20 - UPPSEtT Su 30/1 kl 20 - UPPSELT Lau 5/2 kl. 20 - UPPSELT. Sun 6/2 kl 20, Fi 10/2 kl 20 - UPPSELT, Fö 11/2 kl 20 UPPSEU, Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT, Fi 17/2 kl 20, Fö 18/2 kl 20 HERI HERASON e. Coline Serreau Su 23/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20 LINA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14, Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14 Sfðustu sýningar Fjölskyldusýning THEMATCH, ÆFING í PARADÍS, BOLTI 1 dag kl 14 - UPPSELT Slðasta sýning m NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ BELGISKA KONGO e. Braga Ólafsson, Crlman fyrir besta leik í aðalhlutverki í kvöld kl 20, Su 23/1 kl 20 - UPPSELT, Su 30/1 kl 20, Lau 5/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 12/2 kl 20, Su 13/2 kl 20 Sýningum lýkur f febrúar AUSA eftir Lee Hall /samstarfi við LA. Lau 29/1 kl 20, Su 6/2 kl 20, Fö11/2kl20 Ath: Lækkað miðaverð eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI.SÖGN ehf. og LA Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20 SAUMASTOFAN 30 ARUM SIÐAR eftir Agnar Jón Egiisson. I samstarfi við TÓBlAS. I kvöld kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20. ATH: Bönnuð yngrí en 12 ára BOUGEZPASBOUGER Frönsk - japönsk nýsirkussýning Lau 29/1 kl 20 - kr. 2.100 Aðeins þessi eina sýning Börn 12 ára og yngri fá frftt f Borgarleikhúsið { fylgd fullorðinna - gildir ekki á bamasýningar Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga Miðasölusimi S68 8000 midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is 19:00 g kvöldsi l.-.l I TlMA ín hefur helgað sér í listasögunni hefur stundum verið að finna sérkennilegar mannverur sem hver guðdómur og hver eilífð myndu vera fullsæmd af: fagureyga, toginleita öld- unga með hárskúfa og í skóm með uppbrettri tá, standa þar tveir og tveir gegnt hvor öðrum, mitt í ómældu af bláu. Líkt og einsemd mannsins sem hefur þörf fyrir speglun eða samveru." Og síðar í sama texta má finna: „í nýrri verkum Kristínar hafa öldung- arnir ójarðnesku vikið fyrir rót- föstum voldugum trjám, með trausta, samfléttaða boli. Tré finn- ast líka í eldri verkum Kristínar, en þau eru af öðrum toga, eru mjó og spíruleg, andleg tré. Nýju trén eru hins vegar gömul tré, með rætur djúpt í jörðu, krónan teygir sig hins vegar ekkert sérstaklega hátt til himins." Lesendur sem eru kunnugir verk- um Kristínar munu þekkja það yfir- bragð sem Auður lýsir. Þótt Kristín standi föstum fótum í hefðinni og myndir hennar beri með sér keim af kirkjulegri list þá eru þau á sinn hátt undarlega nálægt okkur. Það kann að skýra vinsældir hennar sem lista- manns en verk hennar eru jafnan eftirsótt. Sýningin er opin alla daga firá kl. 13-17.30 og stendur til 6. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.