Bræðrabandið - 01.08.1978, Qupperneq 6
sendi hann þeim aftur ljósið, og hann
sendi það með mönnum sem þeir mundu
ekki neita að hlusta á.
Það var áform Satans að snúa fólkinu
frá frelsaranum með því að tortíma
svínuniom og með því koma í veg fyrir að
fagnaðarboðskapurinn yrði fluttur á
þessu landssvæði. En einmitt þetta
atvik ýtti við öllum lýðnum meir en
nokkuð annað hefði getað gert og beindi
athyglinni að Kristi. ÞÓ að frelsarinn
væri sjálfur farinn, iirðu mennirnir sem
hann hafði læknað eftir til að votta
mátt hans. Þeir sem höfðu verið tæki
myrkrahöfðingjans urðu farvegir ljóss-
ins, boðberar sonar Guðs. Menn undr-
uðust er þeir hlýddu á hin dásamlegu
tíðindi. Dyr voru opnaðar fagnaðar-
erindinu í öllu héraðinu. Þegar Jesús
sneri aftur til Dekapólis flykktist
fólkið að honum, og það voru ekki ein-
ungis íbúar einnar borgar heldur þús-
undir hvaðanæva úr sveitunim í kring
sem hlýddu á endurlausnarboðskapinn.
Jafnvel máttur illra anda er á valdi
frelsarans, og áhrifum hins illa er
snúið til góð.
Samfundirnir við vitfirringana £
Gergesa höfðu í sér fólginn lærdóm
handa lærisveinunum. Þeir sýndu £
hvert hyldýpi niðurlægingar Satan
vill draga allt mannkynið, og einnig
það ætlunarverk Krists að leysa menn
undan valdi hans. Þessir umkomuleys-
ingjar sem höfðust við innan um grafir
dauðra, haldnir illum öndum, fjötraðir
við óviðráðanlegar ástrfður og viður-
styggilegar fýsnir, eru lifandi dæmi
þess hvernig fyrir mannkyninu færi ef
Satan næði þar völdum. Ahrif hans
beinast ævinlega að mönnum til þess að
afvegaleiða þá, beina hugum þeirra að
hinu illa og æsa til ofbeldis og glæpa.
Hann dregur mátt úr l£kamanum, myrkvar
dómgreindina og spillir sálinni.
Hvenær sem menn hafna boði frelsarans,
eru þeir að gefa sig á vald Satans.
Mergð fólks £ öllum greinum mannlegs
lifs, á heimilum, £ viðskiptim og jafn-
vel i söfnuðinum,eru að gera þetta nú á
t£mum. Það er af þessum sökum að of-
beldi og glæpir hafa breiðst út xm
jörðina, og siðblinda hjúpar vistarver-
ur manna eins og likklæði. Með sinum
sérgreindu freistingum tælir Satan menn
til verri og verri illskuverka uns al-
gert siðleysi og tortiming verður alls-
ráðandi. Eina vörnin gegn valdi hans
6
er nærvera Jesú. Fyrir mönnum og engl-
um hefur Satan verið opinberaður sem
óvinur og bölvaldur en Kristur sem vin-
ur og frelsari. Andi Krists þróar £
mönnunum allt sem göfgar eðlið og upp-
hefur náttúruna. Hann uppbyggir mann-
inn til dýrðar Guðs á sál og anda og
likama. "Þv£ að ekki gaf Guð oss anda
hugleysis, heldur anda máttar og kær-
leiks og stillingar." 2.TÍm.l,7. Hann
hefur kallað okkur til þess að við
skyldum "öðlast dýrð" - eðli - "Drott-
ins vors Jesú Krists;" hann hefur kall-
að okkur "til þess að lfkjast mynd
sonar s£ns." 2.Þess.2,14; Róm.8,29.
Og sálir sem hrapað hafa niður i
það að verða verkfæri Satans breytast
enn fyrir mátt Krists i boðbera rétt-
lætisins og þær eru sendar út af syni
Guðs til þess að boða "hve mikla hluti
Drottinn hefur gjört fyrir þig og
hversu hann hefur miskunnað þér." ■ □
BRÆDRABANDIÐ
Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Siguróur Bjarnason
Utgefendur: Aóventistará íslandi.