Bræðrabandið - 01.08.1978, Page 9
Jerúsalemsbúar ... eigi eru þessir
menn driikknir, svo sem þér ætlið, því
að nú er þriðja stund dags; heldur er
þetta það sem sagt hefur verið fyrir
JÓel spámann:
Og það mun verða á hinum efstu
dögum, að ég mun úthella af anda mínum
yfir allt hold; synir yðar og dætur
munu spá, og ungmenni yðar munu sjá
sjónir, og gamalmenni yðar mun drauma
dreyma. . . .
Þér ísraelsmenn, heyrið þessi orð:
Jesú frá Nazaret, mann þann er Guð
sannaði fyrir yður með kraftaverkum og
undrvim og táknum, sem Guð lét hann gera
yðar á meðal, svo sem þér sjálfir vit-
ið, - hann hafið þér .... neglt á
kross með höndum vondra manna og tekið
af lífi - hann uppvakti Guð, er hann
létti af kvölum dauðans, því að ekki
var það mögulegt, að hann skyldi af
honxam haldinn verða . . .
Góðir menn og.bræður. Skorinort get
ég við yður talað um ættföðurinn Davíð,
að hann er bæði dáinn og grafinn, og
leiði hans er til hjá oss allt til
þessa dags. Af því að hann nú var
spámaður .... sá hann það fyrir og
talaði um upprisu Krists ... þennan
Jesú uppvakti Guð, og erum vér allir
vottar þess. Þegar hann þvi nú er
upphafinn til Guðs hægri handar og
hefur af föðurnum fengið fyrirheitið
um Heilagan anda, hefur hann úthelt
honum sem þér sjáið og heyrið."
Hvílík ræða. Með leiftrandi augum
og þr\rni\iraust segir Pétur frá Jesú,
- lífi hans, dauða, upprisu,og hversu
dásamlega hann uppfyllti spádómana
fornu.
Hann skelfist hvorki kóng né
klerk, fræðimann né farísea, en hrópar:
"Með óbrigðanlegri vissu viti þá allt
israels hús, að Guð hefur gert hann
bæði að Drottni og að Kristi, þennan
Jesú, sem þér krossfestuð."
Jafnvel lærisveinunum ofbýður hug-
rekk°i Péturs". Hvað hefur komið yfir
hann? Hvernig getur hann haldið þús-
undum manna svona heilluðum?
Eitthvað hefur líka komið yfir hann.
Kraftur Guðs hefur komið yfir harín.
Hjarta hans hefur upptendrast af
Heilögum anda. Heigullinn Pétur, sem
þrisvar afneitaði Drottni sínum, er
orðinn Pétur hinn óttalausi, öflugur
vottur fyrir Jesú.
NÚ hefjast upp raddir í mannfjöldan’
um.
"Hvað eigum vér að gera, bræður?"
hrópa þær.
Og Pétur svarar: "Gerið iðrun og
sérhver yðar láti skírast í nafni
Jesú Krists til fyrirgefningar synda
yðar, og þér munuð öðlast gjöf Heilags
anda; því að yður er ætlað fyrirheitið
og börnum yðar og öllum þeim, sem £
fjarlægð eru - öllum þeim sem Drottinn
Guð vor kallar til sín."
Hann heldur áfram ræðu sinni og
hvetur ákaft unga og aldna til þess að
gefa Drottni hjarta sitt. "Látið frels
ast frá þessari rangsnúnu kynslóð,"
hrópar hann.
Viðtökurnar eru stórkostlegar.
Þrjú þúsund sálir meðtaka Jesú. Mesta
skírnarathöfn sögunnar hefst - og söfn-
uður Krists er stofnaður.
Þegar hinn guðlegi eldur hafði verið
tendraður í hjörtum lærisveinanna, urðu
þeir þess áskynja, að þeir gátu ekki
einungis prédikað, heldur og læknað.
Auk þess að vera mæltir á mörgum tungu-
málum, gátu þeir ráðið bót á margs
konar sjúkleika fólks. Þeir urðu
prédikarar og læknar í senn.
NÚ var svo komið, að £ stað eins
manns, sem gert gat kraftaverk, voru
komnir hundrað. Margir unnu nú þau
verk, sem Jesús hafði áður sinnt einn.