Bræðrabandið - 01.08.1978, Síða 16
FRÉTTIR
SUMARMÓT 1978
Mótið var haldið að Hlíðardalsskóla
dagana 7.- 9.júlí. MÓtið sóttu um 180
manns og ér það nokkru færra en verið
hefur. Góður andi ríkti og flutti aðal-
ræðumaður mótsins R.E.Appenzeller tíma-
bæran boðskap um trúna í lífi Guðs
barna. Fjörugar xmræðiu: urðu á
hvxldardagskvöldið undir stjórn Erlings
B.Snorrasonar um kristilega menntun.
MÓtinu lauk á sunnudagskvöld með því að
Appenzeller sýndi litskyggnur frá starfi
aðventista x V-Afríku.
Vitað er að mörg systkini höfðu
hugann við mótið þó að þau gætu ekki
sótt það. Skeyti barst frá Magnínu J.
Sveinsdóttur með hlýjum kveðjum til
mótsins. Vitnaði hún í Harmljóðin 3,
25-26: "Góður er Drottinn þeim, er
á hann vona, og þeirri sál, er til hans
leitar. Gott er að biða hljóður eftir
hjálp Drottins."
/
Aðventfjölskyldu í Englandi vantar
"Au-pair" stúlku til hjálpar við heim-
ilishald, barnagæslu o,þ.h. 2 börn eru
í heimili, 6 og 11 ára.
Vasapeningar, ásamt fæði og hús-
næði til allt að eins ár. Tilvalin
enskukennsla.' Umsóknir sendist strax.
Mrs. K.Weekes,
71 Wellington Road,
Sandhurst Camberley Surrey,
Crowthorne 71368
England
Upplýsinga má leita hjá Aðalheiði
Birgisdóttur, S.11463.
★
Soffía Theódórsdóttir
Suðurlandsbraut 63
Reykj avík
óskar eftir pennavini, er 49 ára
fimm barna móðir, skrifar bæði
ensku og norðurlandamál.
INNSÖFNUN
Söfnuðurinn hefur leyfi til
innsöfnunar í júní - september.
Innsöfnmi £ söfnuðxim sunnanlands má
því ekki byrja seinna en í byrjun
septen±)er til að vera lokið fyrir
lok mánaðarins. Hægt væri að byrja
strax því að ekki þarf annað en að
hafa samband við forlagið og biðja
um blöð því að þau eru þegar tilbúin.
Breytt var um tíma fyrir söfnun á
landsbyggðinni, en sú ferð verður
farin 13.-25. ágúst. Áformað er að
innsöfnun í Hafnarfirði verði sunnu-
daginn 27. ágúst. Margar vinnufúsar
hendur þarf í innsöfnunarstarfið.
minning
Magnheiður Ágústa Guðjónsdóttir
Ágústa var fædd 1891 að Hlíðarseli
í Strandasýslu en ólst upp að Gils-
fjarðarmúla í Geiradalshreppi og dvaldi
hjá foreldrum sínum þar til þau brugðu
búi 1932. Ágústa var vel gefin og
stundaði á þessum árum farkennslu í
6-7 ár. Árið 1950 fluttist hún alfarið
til Reykjavíkur og bjó þar með yngstu
systur sinni, Hallfríði, og voru með
þeim miklir kærleikar og annaðist hún
Ágústu systur sína af mikilli kostgæfni
og alúð alla tíð, ekki síst seinustu
árin þegar kraftar Ágústu voru að bila.
Hún lést á Heilsuverndarstöðinni í
Reykjavík og var jarðsungin 20.júní
frá Aðventkirkjunni.
Á Gilsfjarðarmúlaheimilinu var trú-
rækni í hávegum höfð, börnunum innrætt
kristilegt hugarfar og kristilegar
dyggðir. Þessi áhrif æskuheimilis
Ágústu mátti finna ríkulega í fari
hennar og lífi. Hún var skírð í
Aðventkirkjunni 26.maí 1951 og var trú
aðventboðskapnum til hinstu stundar.
Blessuð sé minning hinnar látnu
systur.
S.B.