Bræðrabandið - 01.11.1979, Page 9
SÐBÖTAFRÖMUÐIRMR OG
DROTTMN STIGINN UPP TIL HMNA
SIÐBÓTARFRÖMUÐURNIR LÖGÐU GRUNDVÖLL AÐ
KENNINGUM SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA UM
STARF KRISTS 1 HINUM HIMNESKA HELGIDÓMI.
V Norskov Olsen
í augum siðbótarfrömuða mótmælenda
var uppstigning Krists til himins og
núverandi starf hans okkar vegna við
hægri hönd föðurins sem meðalgöngumaður,
málsvari,prestur og æðsti prestur þýð-
ingarmiklir þættir í því starfi frels-
arans að vinna að friðþægingu milli
Guðs og manns.
Hugsanir siðbótarfrömuðanna um
friðþæginguna voru ekki aðskildar
heldur tengdar þeim sannleika sem tjáð-
ur er í hinni postulegu trúarjátningu
að Kristur "steig upp til himna og
situr til hægri handar Guðs föður al-
máttugs og kemur þaðan til þess að
dæma lifendur og dauða." í samræmi við
þetta ritar Marteinn LÚter skýringar
sínar við I.JÓh.2,2 á eftirfarandi hátt:
"Kristur er fæddur fyrir okkur, liðuir,
stígur upp til himins okkar vegna,
situr við hægri hönd föðurins okkar
vegna og kemur þar fram sem fulltrúi
mannsins."1 í ræðum hans sem byggðar
eru á Jóhannesarguðspjalli (l.-4.kap.)
segir LÚther okkur: "Ég mun hugga sjálf-
an mig með því fyrirheiti að Kristur
Drottinn lifir, að hann reis upp frá
dauðum og steig upp til himins og
situr þar við hægri hönd Guðs, ekki
til þess að vera aðgerðarlaus og láta
bara tímann líða þar heldur til þess að
bjarga okkur frá allri synd, dauða og
mætti djöfulsins."2
Lúther játar að þegar hann kemur
"fram fyrir dómarann vegna lög-
málsins er ég fordæmdur og glataður,"
en "sem veslings fordæmdur maður sem
viðurkennir synd sína hleypur hann yfir
að náðarstólnum og heldur sér fast við
Krist sem er hreinn og hefur enga synd,
um hann segja ritningarnar: "Sá sem
trúir á hann mun ekki verða sér til
skammar," af því aó hann stendur þar og
biður fyrir mér. Auk þess veitir hann
mér allan sinn hreinleika og heilag-
leika til þess að ég geti komið fram
fyrir Guð íklæddur honum og mun þá öll
reiðin verða fjarlægð og í stað þess
mun mér veitast kærleikur og náð."
Hinn kristni "er þá fullviss þess að
hann sé öruggur vegna meðalgöngu
Krists."3
1 fyrirlestri sínum um pistilinn
til Títusar hvetur LÚther hina kristnu
til að segja: "jafnvel þótt ég geri mér
grein fyrir syndum mínum biður Jesús
Kristur fyrir mér og hann ákærir okkur
ekki. Þessa meðalgöngu verðum við að
skilja í trú."^ í skýringum sínum við
Hebreabréfið íhugar LÚther aftur og
aftur boðskap þessa pistils, sem er:
"að Kristur birtist fyrir augliti Guðs
okkar vegna. Þess vegna verður kristinn
maður að vera viss um það, já algjör-
lega viss um að Kristur birtist frammi
fyrir Guði okkar vegna sem prestur."5
Hið nána samband milli Krists á
krossinum, sem friðþægingu, meðalgöngu-
manns og prests kemur skýrt fram í
eftirfarandi setningu: "Kristur er
meðalgöngumaður á milli okkar og Guðs
og sýnir því í starfi sínu okkur vesl-
ings syndurum sífellt hinn ómælanlega
kærleika föðurins til okkar svo að við
getum skilið að allt það sem við sjáum
og heyrum af honum (Kristi) getum við
skilið að streymir einnig til okkar
frá hjarta föðurins." LÚther líkir
Kristi sem konunglegum presti og segir:
"þetta eru orð lífsins að Jesús Kristur
æðsti prestur minn og konungur, sem
fórnaði blóði sínu min vegna vinnur að
því að sætta mig við Guð og biður fyrir
mér."^ Sú staðreynd að Kristur hafi
farið til Guðs föður á himnum er í augum
LÚthers óviðjafnanleg. Á líkan hátt er
núverandi og framtíðar endurlausn okkar
háð því að hann fór til himins, "ekki
til þess að hafast ekkert að."
9