Bræðrabandið - 01.11.1979, Page 11
siðbótamanna finnum við sömu hugsan-
irnar tjáðar sem hjá LÚther og Kalvín
William Tyndale (1492-1536) þýddi
ekki aðeins Biblxxina heldur sendi hann
úr útlegð sinni mörg rit aftur til
Englands. í svari sínu við ritverkinu
Dialogue eftir Sir Thomas More lagði
hann áherslu á þá kenningu Páls að
trúin sé næg til að réttlæta og segir:
"Kristur sem fyrirheitið er gefið fyrir,
hafði hlotið allt vald á himni og
jörðu. Hann hefur einnig eilífan .prest-
dóm og er því stöðugt fær um að bjarga.
Og það er aðeins einn meðalgöngumaður,
Kristur eins og Páll segir. Og í því
orði felst það að hann friðþægir,veitir
frið og 'náð og hefur fullan mátt til
þess að gjöra það. Og að Kristur sé
meðalgöngumaður er fullsannað. "1^
Heinrich Bullinger (1504-1575).kom
á eftir Zwingli sem leiðtogi siðbótar-
innar í Zurich. Þeir sem hann átti í
bréfaskriftum við voru auk leiðtoga
ensku siðbótarinnar, Henry VIII,
Játvarður VI og Elizabeth. Margar af
ræðum hans voru þýddar á ensku undir
titlinum The Decades. * einni ræðunni
segir hann:"Ritningarnar setja fram
Krist sem hinn eina meðalgöngxmiann og
lausnara... í báð-um þáttum felst sáttar-
gjörð(eða friðþæging)."
Hann leggur einnig að jöfnu sáttar-
gjörð og friðþægingu í eftirfarandi orð-
um:"Hann sem er meðalgöngumaður hlýtur
einnig að vinna að sáttargjörð eða
friði..."14
Siðbótarmenn mótmælenda á !6.öld
voru biblíulegir guðfræðingar sem leit-
uðust við að varðveita í öllum fræði-
legum umræðum endurlausnarboðskap
Bibliunnar í heild sinni. Þessi endur-
lausnarboðskapur með öllum guðfræði-
legum flötum sínum var í augum siðbóta-
mannanna tengdur starfi Krists sem
prests i hinum himneska helgidómi. □
Tilvitnanir:
1 Luther's Works, vol. 30, p. 236.
5 lbid„ vol. 22. p. 416.
» Ibid.. vol. 51, pp. 281, 283.
4 Ibid., vol. 2$. p. 11.
8 Ibid., p. 217.
• Luther's Selected Works, vol. 46, p. 94; vol. 41, p. 195; vol. 20, p. 634.
7 Commentary on 1 Tim. 2:6.
■ Commentary on Heb. 10:19.
9 John Calvin, Institutes of the Christian Religion, Vol. III, chap. 20, p. 28.
10 Commcntary on John 5:23.
11 Institutes, Vol. III, chap. 16, p. 16.
12 Commentary on Rom. 8:25; 3:25.
13 Parker Society, pp. 274, 275.
14 The Fourth Decade, Parker Society, p. 214.
Öllum þeim
sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum,
blómum, skeytiom og símtölum á 75 ára
afmæli mínu í sept. s.l. flyt ég alúðar
þakkir. Það er svo hressandi fyrir
hina öldnu, þegar munað er eftir þeim.
"Og þú mundir eftir mér".
Hvatningin: "Huggið, huggið lýð minn,
segir Drottinn", á við um hina ungu og
þá er náð hafa manndómsárum, svo og
hina, sem komnir eru á efri ár. Umhyggja
og nærgætni veitir vonarríJca framtíð,
þeim er veita og hinum,sem þiggja.
Með hugheilu þakklæti og bestu
óskum.
Sigfús Hallgrxmsson.
16 444444444444**
AÐSTOÐ VIÐ MIÐ-AMERÍKURÍKI
Vegna fellibyls nýlega í Mið-
Ameríku ákvað Norður-Evrópudeildin að
leggja fram um 2 milljónir ísl.króna
til hjálparstarfsins. Systrafélögin
hér lögðu fram í þessa upphæð
kr. 100.000 sem er margfalt meira en
hlutfall okkar að meðlimatölu.
Er þetta bara eitt lítið dæmi um
hið stöðuga hjálparstarf sem fram fer
allan ársins hring víða um heim.