Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 2

Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 2
I IPPSKERA Hvíldardagur, 7. nóvember ' J « <~j V « » 90 Þýðandi: Sigurður Bjarnason UPPSKERA 90 Hlutverk safnaðarins er að vinna sálir "Segirt þér ekki: Enn eru fjórir mánuðir, þá kemur uppskeran? En ég segi yður: Lítið upp og horfið á akrana, þeir eru hvítir til uppskeru." Jóh. 4,35. Enn einu sinni njótum við sjöunda dags aðventistar um heim allan þess að sameinast í bæn og helgum hugsunum í bænaviku. í ár er efnið "að snerta við hinum ósnortnu fyrir Guð." í gegnum tíðina hefur efni bænavikunnar oftast varðað einhverja þætti persónulegs þroska og undirbúnings - Biblíunám, bænalíf, árvekni við að leita ríkis Guðs. Þessi svið kristilegrar reynslu eru áríðandi er við störfum með Heilögum anda í þeirri viðleitni hans að gera okkur "einhuga í trúnni og þekkingunni á syni Guðs, (að við) verðum fullþroska og náum vaxtar takmarki Krists fyllingar" (Efes. 4,13). En hið kristna líf tekur ekki eingöngu til þess að líta inn á við. Sé Kristur í hjartanu verður það til þess að við lítum einnig út á við, til að finna marga aðra sem enn hafa ekki viðurkennt tilkall Krists til lífs þeirra. Á öndverðum starfsferli Jesú flutti hann lærisveinum sínum myndrænan boðskap, þar sem hann kenndi þeim að sannleikanum um guðsríki, sem hafði vermt hjörtu þeirra, ætti að deila með öllum - áhrifamönnum og auðugum jafnt sem fátækum og úrhraki samfélagsins. Því að svo elskaði Guð... í þriðja kafla Oóhannesarguðspjalls lesum við um það, hvernig Nikódemus, einn af auðmönnum samfélags hans og áhrifamaður, opnaði hjarta sitt til að meðtaka orð lífsins. Við hann sagði Jesú hin vel þekktu orð: "Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn til að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf"(3óh. 3,16). Guð elskar heiminn. Ekki bara Gyðinga, ekki bara Galíleumenn, ekki bara öldungaráðið, ekki bara þá sem lifa af því að vera trúræknir eða þá sem nú á dögum tilheyra vestrænni menningu. Hann elskar allan heiminn. í næsta kafla dregur Jóhannes upp mynd af Jesú þar sem hann nemur staðar til að hvíla sig við brunn í Samaríu meðan lærisveinar hans fara inn í borgina til að kaupa sér mat. Þegar þeir komu til baka urðu þeir furðu lostnir þegar þeir fundu Jesú á tali við Samverja - og það konu meira að segja! 3esú er samt ekki bara að drepa tímann. Hann er að veita henni sama tækifæri og hann gaf Nikódemusi. Það hlýtur að vera að Guð í sannleika elski heiminn. En meðan lærisveinarnir enn eru utan gátta og reyna að halda ró sinni, NEALC.WILSON 2

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.