Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 12

Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 12
saman frá skrifstofu minni niður að RCA byggingunni á fimmtu tröð. í fordyri þeirrar byggingar er risastór stytta af Atlasi, fallegum manni sem sam- svarar sér vel, með alla vöðva spennta og heldur heiminum á öxlum sér. Þarna er hann, sterkbyggðasti maður heims, og hann getur naumast staðið undir þessari byrði. 'Þetta er ein leið til að lifa,' var ég vanur að segja við félaga minn, ' að reyna að bera heiminn á herðunum. En komdu nú yfir götuna með mér.' Hinum megin fimmtu traðar er dóm- kirkja heilags Patreks og þar á bak við háaltarið er lítil stytta af Desú sem dreng, sennilega 8 eða 9 ára gömlum, þar sem hann heldur á heiminum áreyn- slulítið með annarri hendi. Þar með er fengið skýrt dæmi um það sem ég vildi taka fram." Vitnisburður okkar ætti að líða fram frá daglegri reynslu okkar með Kristi en hvorki að vera þvingaður fram né uppspunninn. Starfandi söfnuður er vaxandi söfnuður. Og það að hjálpa öðrum er einmitt það sem við þörfnumst til að vaxa sjálf andlega. í Post. 1,8 er vikið að ábyrgð hins kristna varðandi það að vitna og í 1. Pét. 3,15 er þess enn fremur getið að við ættum að vera vel að okkur og skynsamleg í vitnisburði okkar: "En helgið Krist sem Drottin í hjörtum yðar. Verið ætíð reiðubúnir að svara hverjum manni sem krefst raka hjá yður fyrir voninni, sem í yður er. En gjörið það með hógværð og virðingu". Auk þess að vera stefnuföst í því að bera vitnisburð okkar fram í mæltu máli, sem við getum gert heima, í vinnunni, á samfélagsstundum og í kirkjunni, skulum við einnig ganga enn lengra með máli okkar. Við skulum einnig kenna orð Guðs (sjá Matt. 28,19.20; Kól. 3,16) auk þess sem við hjálpum öðrum að hlýða því. 3. Með því að fara Kristur sagði, að við ættum að biðja Drottin "að senda" verkamenn (Matt. 9,38). Bókstaflegri þýðing væri að "þrýsta út" verkamönnum. Orðið gefur til kynna eitthvað knýjandi, sem rekið sé sterklega á eftir. Með þörf mannkyns í huga og hve áliðið er, ættu verka- mennirnir að ganga fram með atorku. Þessi hugsun er enn fremur sett fram af Kristi í starfsskipuninni miklu (Matt. 28,19.20). í gríska textanum er sögnin sem þýdd er "farið" í lýsingar- hætti, "farandi", eða "um leið og þið farið." Með öðrum orðum eigum við að vera í því að vitna og vinna sálir hvar sem við erum í heiminum. Við eigum ekki bara að vitna öðru hvoru, heldur eigum við að vera að hafa áhrif á aðra, hvað svo sem við annars erum að gera og hvar sem við erum. Svo að áskorunin sem bíður lærisveina Krists er ekki endilega sú að fara erlendis til trúboðsstarfa. Frekar er það að leiða aðra til Krists. Við ættum að fylgja Páli: "Verið eftirbreytendur mínir eins og ég er ef tirbreytandi Krists" (1. Kor. 11,1). Hver trúaður maður verður að svara óhjákvæmilegri spurningu. Er ég vegna kærleika Krists fús að helga mig á ný því að frelsa sálir með því að biðja, tala og með því að fara? Spurningar til umræðu 1. Hvaða tvö dæmi tók Oesú til að sýna fram á trúarlega þörf fólksins á hans tímum? 2. Kemur ykkur til hugar nokkurt dæmi úr samtímanum, sem sýnir þörf manna og kvenna í dag? 3. Er það mögulegt að svarið við bænum okkar nái einnig til okkar? Hvernig? 4. Hvað felur það i sér "að tala" fyrir Krist? 5. Hvernig "förum" við fyrir Krist? 12

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.