Bræðrabandið - 01.11.1987, Qupperneq 40
r
KNYJANDI KALL
TILBÆNA
Kæru bræður og systur.
Kallið til bæna í þessari bænaviku virðist vera einkar knýjandi. Við
stöndum í miðri Uppskeru 90 - mesta átaki safnaðarins til að ná til hinna
ósnortnu. Fólk Guðs er að fá nýja innsýn í hlutverk sitt, að það spannar
allan heiminn. Við þráum að sjá endalokin renna upp - að endir sé bundinn á
yfirráð syndar og dauða.
Sú sannfæring nær tökum á æ fleiri hjörtum að uppskerutíðin sé þegar
runnin upp og "kornskurðurinn er endir veraldar" (Matt. 13,39). Auk þess má
nú vænta úthellingar Heilags anda, hinu fyrirheitna haustregni, að 3óel 3,1.2
uppfyllist algerlega. "En síðar meir mun ég úthella anda mínum yfir allt
hold" (1. vers).
Skoðið því ekki þessa bænaviku aðeins sem enn eina kynninguna í
kirkjuárinu. Samkvæmt forsjón Guðs er í þessari viku tækifæri til að meðtaka
Heilagan anda, að verða vitni að og fá sjálf að reyna, hvað endurvakning
sannrar guðrækni er, sú sem gerði hina fyrstu trúuðu slíkan mátt fyrir Guð í
heiminum. "Hinar helgu stundir safnaðarins ... eru tækifæri sem Guð gefur
okkur til að meðtaka vorregnið og haustregnið. (TM 508).
Áformið að vera viðstödd hverja samkomu, sem haldin verður. Lesið þessa
lestra vandlega - hver þeirra hefur að geyma sérstakan boðskap fyrir ykkur.
Biðjið presta ykkar og safnaðarformenn að kalla söfnuðinn saman til
sameiginlegra bænastunda. Sjáið til þess að séð sé fyrir börnunum. Slíkar
einlægar bænir samfara iðrun og syndajátningu munu blása vind í seglin fyrir
útbreiðslustarfsemi Uppskeru 90. Dyrum mun verða lokið upp fyrir boðun
sannleikans, hindrunum rutt úr vegi og sterk vígi að velli lögð. Minnist
þess að bænir ykkar eru "sem hvassar sigðir á kornskurðarakrinum." (2T642).
C.E.Bradford
varaforseti Heimssambands sjöunda dags aðventista og
forseti Norður-Ameríkudeildar.