Bræðrabandið - 01.11.1987, Page 9

Bræðrabandið - 01.11.1987, Page 9
Brœðrabandið 11. 1987 JESÚS UNDIRBJÓ JARÐVEGINN TIL UPPSKERU HEÐ ÞVÍ AD HAFA SAMNEYTI VIÐ FÓLK OG SNÆÐA MEÐ ÞVÍ HEIMA HJÁ ÞVÍ fyrir sáningu fagnaðarerindisins. Þessi undirbúningur jarðvegsins krefst persónulegs átaks - rétt eins og það kostaði litla manninn og buffalinn hans að arka gegnum moldarflagið til að undirbúa akurinn fyrir að plantað yrði í hann kangkong. Fjölhæfni Og þetta krefst einnig fjölhæfni, eins og að binda vanda orkídeur á trjábolinn. Til slíks hlutverks er einstaklingurinn betur hæfur en söfnuðurinn í heild. Renate er eiginkona háskólaprófessors í Chile. Ricardo hefur Biblíulestra vikulega á heimili sínu. Á hverju ári eru margir skírðir og þeir teknir í söfnuðinn. Heimili Renate er alltaf opið nemendum og samstarfsmönnum Ricardos. Hún undirbýr jarðveginn með því að taka hlýlega á móti gestunum og bera fram heimabakað góðgæti. Chuck kaus að undirbúa jarðveginn fyrir sáningu sæðis fagnaðarerindisins í hjarta Pete, nágranna síns. Eftir því sem meiri vinátta tókst með þeim, með því að þeir skiptust á verkfærum og fræddu hvor annan um garðyrkju og bíla, komst Chuck á snoðir um að Pete var mikill fiskimaður og hann gerði sér þá grein fyrir að hann - landkrabbinn og fiskihatarinn - yrði að fara að veiða með Pete. Hann gerði það og hann lifði það af. f öðrum veiðitúrnum tók hann safnaðarmeðlim með sem átti sama áhugamál og Pete. Þegar vináttan var orðin traust, gat Chuck stungið upp á því, að Pete og kona hans sæktu námsstefnu safnaðarins um foreldra- hlutverkið, enda var fyrsta barnið þeirra nýfætt. Þar sem Pete og fjölskylda hans áttu nú marga vini í söfnuðinum, var það sjálfsagt mál fyrir þau að gerast meðlimir í söfnuði Chuck. Þar sem undirbúningur jarðvegsins krefst persónulegs átaks, liggur beinast við að hinn kristni undirbúi jarðveginn meðal kunningja sinna: fjölskyldumeðlima, vina, nágranna, vinnufélaga, bekkjarfélaga. Hvern jarðveg þarf að erja á sérstakan hátt. Páll ræddi um það að vera Gyðingum Gyðingur og Grikkjum Grikki, til þess að "ávinna sem flesta" (1. Kor. 9,20- 22). Hann skildi gildi þess að undirbúa jarðveginn. Frá því að horfa á litla manninn og buffalinn hans hvarflaði hugur minn til heimssafnaðarins sem er að snerta við hinum ósnortnu fyrir Guð. Hvað ef hver safnaðarmeðlimur veldi í bæn þrjá einstaklinga af þeim, sem hann eða hún hefur títt samband við, og ákveddi með Guðs hjálp að undirbúa jarðveginn? Ég sé fyrir mér fólk á tali yfir girðinguna milli lóða, fólk bjóða öðrum far, börn að leik saman, símtöl, ungt fólk bjóða öðrum að spila bolta, fjölskyldur að snæða saman úti í náttúrunni, gesti sitja við sjúkrabeð, nýbakað brauð borið til þeirra sem komast ekki ferða sinna, reyndar mæður annast um börn veikra nágranna, kristna menn gráta með nágrönnum sem misst hafa ástvini sína og svo má lengi halda áfram. Og er ég sé þetta allt fyrir mér, hugsa ég um uppskeruna og um hrós- yrðin: "Gott, þú góði og trúi þjónn ... gakk inn til fagnaðar herra þíns" (Matt. 25,21). Fögnuður, ekki aðeins fyrir sáðmanninn og þann sem sker upp, heldur einnig fyrir þá sem stjórna plógnum og undirbúa jarðveginn. SPURNINGðR TIL UMRÆÐU 1. Gefið dæmi um hvernig Oesús undirbjó hjörtun fyrir sæði fagnaðarerindisins. 2. Hversu langan tíma tók það þessi sæði að spíra? 3. Lýsið sumum þeirra jarðvegsgerða, sem sáðmaður fagnaðarerindisins þarf að vinna með. 4. Nefnið nokkrar aðferðir sem við getum notað til að undirbúa jarðveg mannlegra hjartna til að taka við hjálpræðinu. 5. Hvar gætum við hafið jarðvegsundir- búning okkar? * 9

x

Bræðrabandið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.