Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2005, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 Fréttir DV Hákon Eydal, morðingi Sri Rahmawati sagði við réttarhöld í gær að Sri hafi verið spilafíkill og vændiskona. Sækjandi sagði að hann hafi marghótað að drepa hana áður en hann lét til skarar skríða. Hann viðurkennir að hafa sent henni SMS með morðhótun. Geðlæknir segir hann ekki sýna nein merki iðrunar. Ákæruvaldið fer fram á 16 ára fangelsi. Hjo Sri meö kubeini og kennir henni um í aðalmeðferð í máli gegn Hákoni Eydal í gær komu fram hrottafengnar lýsingar á aðferð Hákons við morðið á fyrrverandi sambýliskonu hans, Sri Rahmawati. Eftir að deilur um umgegnisrétt yfir dóttur þeirra, sem enduðu að sögn Hákons með þeim orðum Sri að hann fengi aldrei að sjá barnið sitt aftur, þreif hann kúbein og barði Sri ítrekað með því, þar af fjórum sinnum í höfuðið. Fyrstu höggin lentu á höndum Sri þar sem hún reyndi að verja sig fyrir árás barnsföður síns en eftir að eitt högganna lenti í höfði hennar hneig hún niður á gólfið og vaknaði ekki aftur. Hákon hélt þá áfram að slá í höfuð hennar með klaufarhluta kúbeinins. Eftir að höggum Hákons linnti tók hann taubelti og herti að hálsi hennar. Það var þessi gjörð Hákons sem leiddi Sri til dauða þótt réttarlæknir hafi talið að höf- uðsárin hafl verið svo alvarleg að Sri hefði líklega ekki lifað þau af. Hákon segist hafa hert beltið að hálsi Sri til að stöðva blæðing- una úr höfði hennar en því var hafnað sem fráleitri útskýringu af sækjanda. Lögreglumaður lýsti því fyrir rétti hvernig blóð hafði skvettst um herbergið þar sem Hákon drap Sri og hvernig blóðug spor voru um alla íbúðina eftir hann. Þreif líkið í sturtunni Verjandi Hákons hvatti Hér- aðsdóm til að setja sig í spor hans og krafðist sýknu. Hann benti á að samband Hákons og Sri hafl verið stormasamt. Hún hafi ekki leyft Hákoni umgangast barn þeirra og það hafi leitt til hrak- andi geðheilsu Hákons. Hákon sagði frá því fyrir dómi að hann hefði sent Sri skilaboð í farsíma um að hann skyldi drepa hana ef hún leyfði honum ekki að taka dóttur sína með á ættarmót. Verjandi Hákons sagði að verknaðurinn hafí verið unninn í svo mikilli geðshræringu að Há- kon hafi ekki ráðið við gjörðir sín- ar. Sjálfur sagði Hákon við dóm- inn að atburðir hins örlagaríka dags væru enn óljósir í huga sér. Hann rifjaði þó upp hvernig hann bar líkið af Sri inn í sturtu eftir að hann banaði henni. Þar sagðist hann hafa þrifið lfkið, sett svo í poka og borið út í bfl. Vitni sá líkamshluta Kona sem sá Hákon bera lík Sri Rahmawati úr húsi sínu sagð- ist hafa verið á gangi með púðlu- hundi sínum þegar hún varð vör við Hákon. Hún sagðist hafa séð Hákon bera stóran poka og henni hefði fyrst virst sem það væri hundur í pokanum. Vitnið kvaðst hafa séð móta fyrír rasskinn og fótum í pokanum og Hákon hafi hent honum í skottið á Nissan Patrol bifreið sinni. Þá hafi maður af asískum upp- runa gengið framhjá og stað- næmst til að tala í farsíma. Við það hafi Hákoni brugðið og stokkið á bakvið tré til að fela sig. Vitnið sagði að þetta hefði vakið grunsemdir hjá sér og þær hafi verið staðfestar skömmu síðar þegar Hákon kom úr felum. Þá hafi hún séð móta fyrir mannslík- ama í poka Hákons. Vitnið kvaðst hafa séð móta fyrir rasskinn og fótum í pokanum og Hákon hafi ssSísas ■ ■TftWHr Forsiða DV 7. júlí 2004 Grunur beindist að Hákoni. hent honum á skottið á Nissan Patrol bifreið sinni. Konan orðaði það þannig í réttarsal að þá hafi hún vitað að hún hafi séð eitthvað sem hún átti ekki að sjá. í sturlunarástandi Eftir að hafa komið líki Sri Rahmawati fyrir í bifreið sinni sagði Hákon að hann hafi losað sig við farsíma hennar í sjóinn og haldið upp í Hafnarfjarðarhraun í leit að sprungu. Eftir að hafa fundið gjótu kom Hákon líkinu af fyrrum sambýliskonu sinni þar fyrir ásamt pokanum og kúbein- inu. Hákon kveðst hafa verið í sturlunarástandi á þessum tíma en geðlæknir sem fenginn var til úrskurðaði hann að fullu sakhæf- an. Læknirinn telur jafnframt að Hákon hafi neikvæða afstöðu gagnvart konum. Hann sagði Hákon tala mjög neikvætt um Sri þrátt fyrir að hafa verið mjög hrif- inn af henni. Geðlæknirinn sagðist ekki merkja neina iðrun hjá Hákoni. Faðir hans neitaði að bera vitni Faðir Hákons bjó með hon- um þegar morðið var framið. Hann var kallaður til að bera vitni í gær en kaus að nýta rétt sinn til að neita að bera vitni. Virtist Hákoni nokkuð brugðið við þetta. Bróðir Hákons sem fylgdi öldruðum föður sínum í réttarsalinn sagði í samtali við DV að faðir sinn hafi einfaldlega kosið að nýta þennan rétt sinn. Morðinginn Hjó bamsmóður it- rekað i höfuðið með kúbeini. að meta sakhæfi Hákons fellst ekki á það. Geð- læknirinn bar fyrir dómi í gær að Hákon hafi vitað hvað hann var að gera og Hann hafi viljað fara heim að hvfla sig. Enginn iðrun I lokamálflutningi sínum benti Ragnheiður Harðardóttir saksóknari sérstaklega á stærðar- mun Hákonar, sem er tæpir tveir metrar að hæð og afar stæðilegur, og Sri sem var 158 cm. Gjörðir sýni að augljóst hafi verið að hann hafi ætlað að drepa Sri. Hákon hafi oft haft á orði að hann ætlaði að drepa hana og hegðun Hákons eftir morðið, hvernig hann hafi druslað henni í hraun- gjótu sýna staðfastan og ein- beittan brotavilja. Hún sagði að Hákon hafi ítrek- að hallmælt Sri og sagt hana hafa beitt sig ofbeldi. Einnig hafi Há- kon sagt Sri vera spilaffldl og að hún hafi stundað vændi. Þetta hafi verið til að sverta mannorð Sri og beri ekki merki iðrunar. Aðalmeðferð í málinu er lokið. Dómur verður kveðinn upp innan skamms. andri@dv.is í dómsal Ráðfærirsig við verjanda sinn Brynjar Nielsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.