Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2005, Síða 46
“1
46 LAUCARDAGUR 5. MARS 2005
Sport DV
Bresku slúðurblöðin bjóða nánast vikulega upp á nýjar fréttir af einkalífi Alans Smith, leikmanni Man.
Utd, en drengurinn er mikill kvennamaður og skorar grimmt á „heimavelli“. Hann fær góða einkunn
hjá hjásvæfunum sem sumar hverjar greina ítarlega frá aðferðum Smiths í bólinu.
Nýjustu fréttir af Smith herma að hann hafi sofið hjá
guÚmyndarlegri fyrirsætu og síðan horft á sjálfan sig í
mörkum dagsins í sjdnvarpinu. Þegar þættinum var lokið
henti hann sér beint í „síðari hálfleik" með þrýstnu
fyrirsætunni. Sú heitir Rachael Thornley, er tvítug og mjög
eftirsóttur kvenkostur. Hún segir Smith vera góðan
elskhuga og gefur honum tíu af tíu mögulegum.
Thornley kom í heimsókn til
Smiths á gamlársdag, skömmu eftir
leik Man. Utd og Middlesbrough.
Margar af hjásvæfum Smiths hafa
greint bresku blöðunum frá að-
ferðunum sem Smith notar til að
lokka þær í rúmið og Smith notaði
hefðbundnar aðferðir, sem áður
höfðu verið ítarlega útlistaðar í
blöðunum, til að ná Thornley í
rúmið.
Klassískt te
„Hann hellti upp á Yorkshire-te
fyrir mig um leið og ég mætti. Það
var frekar fyndið. Hann var mjög
almennilegur og spurði mig
hvað ég gerði. Ég sagðist vera að
læra grafíska hönnun og þá
sagði hann að ég væri ekki
bara falleg heldur líka gáfuð,"
sagði Thornley sem skömmu
sjtðar fór með Smith inn í
svefnherbergi þar sem þau
áttu góða stund saman.
„Ætli hasarinn hafi ekki
staðið yfir í um það bil 45
mínútur, sem jafngildir
einum hálfleik í fótbolta.
Alan er greinilega vanur
slíkum tíma,“ sagði Thom-
ley sem af einhverjum
ástæðum sá sig knúna til að
greina frá stærð getnaðarlims
Smiths. „Hann er mjög vel
vaxinn og með flottan líkama. Ég
gef honum hiklaust tíu af tíu
iffiögulegum fyrir frammistöðuna í
rúminu, enda er drengurinn
með ótrúlegt ímyndunarafl.
Svo er hann gríðarlega vel
vaxinn niður. Hann er með
þann stærsta sem ég
hef séð.“
Pervertinn Smith
Smith var ekki bara elskulegur við
Thornley heldur var hann líka
svoh'tið pervertískur.
„Hann vildi taka myndir með
GSM-símanum á meðan við
stunduðum kynlíf. Ég sagði að það
kæmi ekki til greina þar sem ég vissi
að hann myndi sýna öllum í liðinu
myndirnar. Ég hafði ekki áhuga á að
vera aðalatriðið í fótboltateitum
ársins," sagði Thornley sem var þó
ekki meira æst en svo að hún hélt
sambandi við kappann eftir þetta
stefnumót, sem jafnframt var fyrsta
skiptið sem þau hittust. Þau
sendu hvort öðru dónaleg
SMS í anda Davids
Beckham og viku
síðar var hún mætt
aftur heim til
Smiths. Hún
ætlaði
eingöngu að
stoppa til
þess að ná í
jakkann
sinn en sú
áætlun
gekk ekki
upp þar
sem
hún
„Hann er mjög vel
vaxinn og með flottan
líkama. Ég gefhonum
hiklaust tíu aftíu
mögulegum fyrir
frammistöðuna í
rúminu."
Kvennabósi
Alan Smith er ekki
viö eina fjölina
felldurí
kvennamálunum.
„Hann vildi taka
myndir með GSM-
símanum sínum á
meðan við stunduðum
kynmök. Ég sagði að
það kæmi ekki til
greina þarsem ég vissi
að hann myndi sýna
öllum í liðinu myndir-
nar. Ég hafði ekki
áhuga á að vera aðal-
atriðið í fótboltateitum
ársins."
endaði á því að stoppa í tvo tfína á
meðan vinur hennar beið brjálaður
úti í bfl.
Sýndu mér nærfötin
„Hann bauð mér aftur upp á
Yorkshire-te. Ég sagði bara já takk og
þá sagði hann mér að hella upp á
sjálf því hann væri að lesa. Ég tjáði
honum að ég væri á hraðferð og þá
spurði hann einfaldlega hvort ég
ætlaði ekki að sýna honum nærfötin
var í. Ég gerði það og skömmu síðar
vorum við byrjuð að kyssast," sagði
Thomley en Smith sýndi henni
myndir af ýmsum búningum
skömmu síðar og bað hana að mæta
næst til sín í búningi þjónustustúlku.
Iðinn við kolann
„Ég lét hann hafa fýrir mér í
hálftíma en svo „þjónaði" éghonum.
Vinur minn í bílnum var alveg vitlaus
og hringdi látlaust í mig,“ sagði
Thornley.
Smith hefur verið ákaflega iðinn
við kolann í kvennamálunum síðan
hann gekk til liðs við Man. Utd og
hefur meðal annars sængað hjá
tveimur vinsælum sápuóperuleik-
konum í Bretlandi sem og einni
söngkonunni úr Girls Aloud en
önnur stelpa úr þeirri hljómsveit er
kærasta Ashleys Cole, bakvarðar
Arsenal.
Stórútsala á
Pergo parketi
Ótrúiegt verð
Ekki missa
af gólfefnaútsölu
ársins
Aðeins
í nokkra daga
Ef þú ert mikill aðdá-
andi hreingerninga þá
biðjumst við velvirðing-
ar á því að valda þér
vonbrigðum.
Með Pergo gólfefni
verður þú að finna þér
eitthvað annað að gera
í frítímanum þínum.
Rými ehf
Háteigsvegi 7
Reykjavík
Sími 511 1100
Bréfsími 511 1110
.
•
WC ... \ii£ #■
* * k -H •£& 'tAj,. • -1 ||k . i m
m DLV 'i
W i w f' 7 i . ' pP;,: W -
i ■ JS0'