Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2005, Blaðsíða 55
DV Helgarblaö
LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 55
Flugstöð í duíargervi
Er kominn tími til að Reykvíking-
ar rísi til varnar? Á sama tíma og
menn eyða kröftunum í þras um fá-
einar lélegar byggingar á Laugavegi
er unnið að því leynt og ljóst að
koma í veg fýrir að nokkum tíma
verði hægt að fjarlægja Reykjavíkur-
flugvöll. Nú er stefiit að því að hella
á bilinu 1.5-1.8 milljörðum króna í
svokallaða samgöngumiðstöð við
flugvöllinn. Ríkið ætlar heldur ekki
að telja það eftir sér að greiða stórfé
með henni árlega, líklega sem nem-
ur 100 milljónum króna.
Það sem er verst er að samgöngu-
miðstöðin hefur þann eina tilgang
að festa flugvöllinn í sessi - að öðru
leyti er hún fullkomlega þarflaust
mannvirki. Þetta er vitleysa.
Svikin fyrirheit borgar-
stjórnar
í niðurstöðu nefndar á vegum
ríkisins og borgarinnar segir að for-
senda samgöngumiðstöðvarinnar
sé að rekstrartími hennar sé tuttugu
og fimm ár. Forsenda þess að þetta
sé sett í einkaframkvæmd er tuttugu
og fimm ára samningstími. Með
öðrum orðum: Það er verið að fast-
setja flugvöllinn í Vatnsmýri til árs-
ins 2020 að minnsta kosti. Hvað þá
með fyrirheit borgarstjórnarinnar
um að hann ætti að fara eftir 2016?
Hvað með atkvæðagreiðsluna sem
var haldin fyrir fjórum árum?
Ekki í skipulagi
Ekki fær maður betur séð en að í
þessu felist svik við þau - algjör við-
snúningur? Það er talað um að millj-
ón manns fari um samgöngumið-
stöðina eftir U'u ár - var það ekki
einmitt um það leyti sem flugið átti
að vera á förum samkvæmt aðal-
skipulagi borgarinnar?
Egill Helgason
segir að bygging
samgöngumiðstöðvar
sé rugl.
Laugardagskj allari
Rútustöð á Hlemmi?
Miðstöð rútuferða getur verið
hvar sem er. Hún getur eins verið
áfram á BSÍ - þangað til flugvölllur-
inn verður færður. Sunnanverð
öskjuhh'ð þar sem samgöngumið-
stöðin á að vera telst seint sérlega
miðsvæðis í borgarlandinu - ef það
væri viðmið væri nær að koma rútu-
bílunum fyrir í Mjóddinni. Þar er líka
skiptistöð fyrir strætó. Vinur minn
sem er ffóður um skipulagsmál
bendir reyndar að að planið á bak við
lögreglustöðina við Hverfisgötu
myndi henta vel fyrir rútubílastöð.
Þar er nóg pláss - og hús lögreglunn-
ar sem alltaf var lélegt er hvort sem er
nánast ónýtt og tilbúið til niðurrifs.
Það er tekið fram að rútur suður á
Keflavíkurflugvöll eigi að fara frá
samgöngumiðstöðinni. Þetta eru þó
ekki nema nokkrar rútur á dag. Nú
er verið að byggja hótel út um allan
miðbæinn. Venja er að rúturnar
keyri farþega heim á stærri hótelin. í
raun er miklu heppilegra fyrir túrista
að fara út í Lækjargötunni - í staðinn
fyrir að skilja þá eftir nálægt Loft-
leiðahótelinu heilan kílómetra frá
bænum. Sorrí, Loftleiðir eru ekki
lengur aðalhótel bæjarins.
Hvers vegna millilandaflug?
Ennfremur er gert ráð fyrir að
þarna verði miðstöð fyrir farþega
sem ferðast til Færeyja og Græn-
lands - væntanlega er það til þess að
Það er verið að fastsetja flugvöllinn í Vatnsmýri til ársins
2020 að minnsta kosti. Hvað með fyrirheit borgarstjórn-
arinnar um að hann ætti að fara eftir 2016? Hvað með
atkvæðagreiðsluna sem haldin var fyrir fjórum árum?
öðru en að endurbyggja aðeins
gömlu flugstöðina í Skerjafirðinum.
Ekki hef ég orðið var við að þar sé
óþægilega mikil örtröð. Það væri
náttúrlega í samræmi við áætlanir
um brotthvarf flugvallarins.
Hví er borgarstjórnin svo undir-
látssöm varðandi þessa vitleysu? Er
það til að sýna að eitthvað sé fram-
kvæmt í borginni? Eða hefur kannski
verið gert einhvers konar samkomu-
lag á bak við tjöldin - til dæmis um
að flýta lagningu Sundabrautar og á
móti komi samgöngumiðstöðin til
að halda lífi í flugvell-
inum?
í þessu Scuna skipulagi er ekki
gert ráð fyrir neinni samgöngumið-
stöð. Henni er bara holað þarna nið-
ur í pólitísku makki sem maður
kann tæplega skýringar á. í skipu-
laginu er þvert á móti gert ráð fyrir
að flugvöllurinn víki í tveimur
áföngum - að landið verði komið til
breyttrar notkunar árið 2024 þegar
tíma skipulagsins lýkur.
Á skjön við strætókerfi
Þarna er ætlunin að tengja mis-
munandi tegundir af samgöngum
sem eru á engan hátt í sambýli eins
og veruleikinn er á íslandi: rútuferð-
ir, flug og strætisvagna. Eins og kerf-
ið er tengjast þessir samgöngumátar
varla á neinn hátt.
Þeir sem ferðast með strætó - og
ég er einn af þeim - sjá í hendi sér að
það er hreinn útúrdúr í löngu og
gisnu leiðakerfi ef strætisvagnar fara
að stoppa við einhverja miðstöð í
Vatnsmýri. Þar eru einfaldlega engir
farþegar til að taka upp í - fyrir utan
einn og einn útlending.
Nýtt leiðakerfi strætisvagna á
höfuðborgarsvæðinu sem tekur gildi
nú í sumar gerir heldur ekki ráð fyrir
samgöngumiðstöð við Flugvallar-
veg.
Tengsl við rútur og strætó
Milli strætisvagna og rútuferða
eru lítil tengsl. Þeir eru fáir sem taka
strætó og setjast svo upp í rútu, að
minnsta kosti hefur ekki verið talið
nauðsynlegt að halda uppi sérstök-
um strætósamgöngum heim í hlað á
Umferðarmiðstöðinni.
Milli flugsins og þessara tveggja
samgöngumáta eru heldur ekki
tengsl. Ég held að svo til enginn taki
strætó og setjist svo upp í flugvél og
út á land - jafhvel þótt leið 5 gangi
úr bænum og út á Reykjavíkurflug-
völl.
Fólk kemur heldur ekki úr flugi
og sest síðan upp í rútu og fer til
Hveragerðis. Eða kemur akandi í
rútu í bæinn og tekur svo flugvél
norður til Akureyrar. Það er alla vega
fágætt.
þetta geti örugglega haldið áfram að
hafa stöðu millilandaflugvallar. Að
öðru leyti er óskiljanlegt hví Fær-
eyingar og Grænlendingar geti ekki
farið um Keflavík eins og annað fólk.
í framhaldi af því getur maður
svo spurt hvers vegna ekki er búið að
standa við loforð um að flytja
æfinga- og kennsluflug frá Reykja-
víkurflugvelli. Því var samgönguráð-
herrann sem nú situr búinn að lofa.
Óþarft mannvirki
Það er sem sé engin ástæða til að
setja þetta allt undir sama þak -
nema þá að halda dauðahaldi í flug-
völlinn, ausa peningum í mannvirki
við hann svo ekki komi lengur til
álita að færa hann. Að öðru leyti sér
maður enga röklega ástæðu fyrir því
að samgönguráðherrann hefur sótt
málið svona fast - annars hefur
maður ekki orðið var við stórkost-
legan áhuga hans á að leggja fé í
samgöngur í Reykjavík.
Fáir flugfarþegar
Flugfarþegar eru nú um það bil
1000 talsins á dag. Þeim fer örugg-
lega fækkandi þegar framkvæmdun-
um við Kárahnjúka lýkur. Sam-
kvæmt fréttum er gert ráð fyrir að
1,1 miilljón manns fari um sam-
göngumiðstöðina árið 2016. Á sama
tíma fara varla færri en 5 milljónir
um Hlemm. Meiri fjöldi mun fara
um skiptistöðina á Grensási - hví þá
ekki að byggja þar svo strætófarþeg-
um líði betur?
Staðreyndin er sú að þetta er ekk-
ert annað en flugstöð - en af því
málið er viðkvæmt er hún sett í dul-
argervi. Hún mun byggja á traffik
fárra flugfarþega utan af landi sem
er fjarska ófrklegt að fjölgi. Ástæðan
er einfaldlega sú að íbúum á lands-
byggðinni fækkar stöðugt. íbúatala
Vestmannaeyja er til dæmis komin
niður í rétt rúmlega 4000 manns á
stuttum tíma. Að maður tali ekki um
fækkun fólks á Vestfjörðum.
Hvað meinar borgarstjórnin?
Fyrir þennan fjölda er varla þörf á
Sorgarsaga í
Vatnsmýri
Því miður virðist
skipulag Vatnsmýrar-
innar vera að breytast
í sorgarsögu á stuttum tíma. Merki-
legt hvað skammsýnt fólk getur lát-
ið söguleg tækifæri ganga úr greip-
um sér. Upp við Valsvöll á að troða
niður blokkum í úr sér gengnum
Austur-Evrópustíl. Nú er allt í einu
rokið upp til handa og fóta til að
koma Háskólanum í Reykjavík fyrir
niður undir Nauthólsvík; þar verð-
ur frekar spurt um bílastæði en gott
skipulag.
Hringbrautin nýja sker svæðið
eins og skelfilegt ör í landslaginu.
Það sem maður heyrir af þekkingar-
þorpinu við Háskólann vekur ugg;
þar er hugmyndin að byggja stórhýsi
á stærð við gömlu Kringluna sem
hætt er við að hverfist meira eða
minna inn í sig. Til að tengja Kópa-
vog við hina milljón manna sam-
göngumiðstöð á svo að leggja um-
ferðarmannvirkið Hlíðarfót sem fer
fyrir neðan Fossvogskirkjugarð -
samkvæmt gömlu skipulagi átti það
reyndar að vera hluti af Fossvogs-
braut sem varla verður nokkurn
tíma lögð.
Pólitískt jarðsprengjusvæði
Flugvallarmálið var rætt á lands-
fundi Framsóknarflokksins um síð-
ustu helgi. Nokkrir flokksmenn
gerðust svo djarfhuga að leggja ffarn
tillögu um að innanlandsflugið skuli
hverfa til Keflavflcur. Það brjálaðist
allt. Menn urðu eldrauðir í framan,
æðar tútnuðu út í andlitum geð-
prúðustu framsóknarmanna. Að
lokum var tillögunni snúið algjör-
lega við. Það var samþykkt að flug-
völlur skuli vera áfram í Reykjavík og
lýst yfir stuðningi við samgöngu-
miðstöð sem myndi styrkja flugið.
Þetta er höfuðborgarsteftia forsætis-
ráðherráns sem jafhframt er þing-
maður í Reykjavík norður.
Þetta er pólitískt jarðsprengju-
svæði. Sjálfstæðisflokkurinn þorir
ekki að hafa stefnu í málinu. R-list-
inn er á flótta í allar áttir - segir eitt í
dag og annað á morgun. Flugvallar-
málið er lflca orðið bitbein í for-
mannskjöri í Samfylkingunni. Össur
Skarphéðinsson lýsti því yfir á fundi
GÍTARINN EHF.
á Akureyri um daginn að ekki kæmi
til greina annað en að hafa flugvöll-
inn áffarn í Vatnsmýri. Svo er spurn-
ing hvort þetta er djúp sannfæring
Össurar eða hvort þetta sé gambítur
í formannskjörinu í Samfylkingunni
- enginn stjórnmálamaður er jú
bendlaður jafn sterklega við hugs-
anlegt brotthvarf flugvallarins og
Ingibjörg Sólrún?
Togstreita borgar og lands-
byggðar
Flugvallarmálið er orðið helsta
táknið um togstreitu borgarinnar og
landsbyggðarinnar. Það er þægilegt
að tala um fáfarinn flugvöll í Reykja-
vík eins og eitthvað aðalatriði, beina
gremju landsbyggðarfólks í þá átt;
þá má komast hjá því að ræða
hnignun atvinnuvega og niður-
nfðslu, verðlitlar eignir, samfélög
sem standa varla undir sér, brott-
flutning fólks.
En þegar menn þora ekki að hafa
stefnu er hætt við að ffekustu hags-
munapotararnir nái sínu fram. Við
eigum ekki að Iáta bjóða okkur
þetta.
Samgöngumiðstöðin er rugl
hvort sem maður er með eða á móti
flugvelli. Það er verið að eyða skatt-
peningum í þarfleysu.
Afleiðingarnar verða svo þær að
bærinn heldur áfram að þenjast út.
Við þurfum sífellt að leggja meiri
peninga í biffeiðar, byggingu og við-
hald umferðarmannvirkja. Nú er
heimtað að Geldinganesið verði
tekið undir byggð. Hvar er það eig-
inlega? Á unga fólkið að búa þar?
Látum bisnessjónarmið ráða
Annars er þetta ekki flókið mál -
í raun alveg sáraeinfalt. Það ætti
bara að láta markaðinn um að-,
leysa þetta - leyfa viðskiptasjónar-
miðum að ráða. Það gæti verið
góður bisness. Ég væri meira að
segja tilbúinn að taka þetta að mér
sjálfur - ætti sjálfsagt auðvelt með
að fá lán fyrir því. Að byggja snotr-
an flugvöll fyrir höfúðborgarsvæð-
ið einhvers staðar fyrir utan borg-
armörkin og fá á móti lóðirnar í
Vatnsmýrinni.
Eins og húsnæðisverðið er í þess-
um bæjarhluta yrði varla próblem
að finna kaupendur að þeim. Maður
yrði lfldega milljarðamæringur.
t
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
www.gitarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 5S2 2125 gftarinn:Sgitarimus
NÝ SENDING AF MAPEX
ÞJÓÐLflQAgÍTAR:_.KR.1.4.5_QQc
seljast með
öllum
fylgihlutum.
Q 525-5
RÉTT VERÐ
kr: 79.900,-
TILBOÐSVERÐ
kr: 59.900,-
KLASSÍSKUR GÍTAR
FRÁ
KR. 10.900.-
Opið virka daga frá kl. 10-18
Opið laugardaga frá kl. 11-16
RAFMAGNSGITARSETT KR. 22.900
(Rafmagnsgítar, magnari, ól, snúra, poki, gítarneglur og stillitæki)
t
-K
•K
*
*
*
*'-s
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
★
*
*
*
*
*
*
*
*
*<>
*