Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2005, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 Helgarblað DV Margir hafa eflaust frétt að tvær ungar konur eru komnar með sinn eigin þátt á útvarpsstöðinni KissFM 89,5 og það á besta tima, en venjan er að karlmannsraddir einoki dagskrána. Þetta eru hinar feykifjör- ugu og stórglæsilegu Ragnhildur Magnúsdóttir og Guðrún Dís Emilsdóttir. Ragnhildur Bjó í 18 ár i Bandaríkjunum. TfSKUVERSLUNIN Sm H ít Cr,msk*. Bústaðavegi S: 588 8488 **l u I I Armúla j5 S: 588 8050 Fermingardressin komin! Fyrir ömmur, mömmur, frænkur og systur. Ný sending af skóm komin var heilllengi á kvöld- og helgar- vöktum áður en mér var boðið að vera með þennan þátt,“ segir Ragn- hildur og bendir á að hluti af streð- inu hafi verið að berjast gegn þeirri mýtu að stelpur komi ekki vel út í útvarpinu, það hafi í raun verið ögrandi að afsanna þessa gömlu lummu. Farsældin liggi nefnilega ekki bara í röddinni heldur þeim karakter sem útvarpsfólk sýnir í loftinu. Tónlist í genunum Ragnhildur segir það vera grundvaUaratriði að hafa brenn- andi áhuga á tónlist til að geta unn- ið í þessum bransa. „Ég hef alltaf elskað tónlist, spilaði á píanó í mörg ár og svo kem ég ----------- líka af miklu tónlistar- heimili, pabbi er gam- all plötusnúður, spilaði á sínum tíma í Tónabæ. Bróðir minn er líka vel þekktur plötusnúður í Kali- forníu svo þetta er í genunum," segir hún. Hún tekur ffam að það hafi verið dálítið erfitt að pluma sig sem út- varpskona til að byrja með þar sem málfræðin var orðin ansi ryðguð eftir langa búsetu ytra. Ekki heyrist á henni í dag að hún hafi eytt meiri- hluta ævi sinnar í öðru landi. „Það er ekki nóg að vera með góða rödd í útvarpinu, fólk þarf að finna fyrir nærverunni og það vill heldur ekki að talað sé niður til sín. Ég reyni alltaf passa mig á því að detta ekki í þennan ofurfyndna rembingsút- varpshátt heldur.“ Þátturinn henn- ar Ragnhildar er á dagskrá á milli klukkan 18-21 alla virka daga. Vantaði tippi Gunna Dís kemur ifá Ytri-Hlíð í Vopnaflrði og bjó hún þar fýrstu 16 árin. Þaðan lá leiðin í Menntaskól- ann á Akureyri og þar steig hún sín fýrstu skref sem útvarpskona. „Ég starfaði samhhða námi á Frost- rásinni sem var útvarpsstöð þeirra Akureyringa á þeim tíma en eftir út- skrift flutti ég suður yfir heiðar þar sem ég hóf mitt háskólanám. Þá fékk ég vinnu á FM 957 þar sem ég var næstu tvö árin, en það var bara helg- ar- og kvöldvinna,“ segir Gunna Dís en ástæður þess að hún fékk aldrei að spreyta sig á dagvakt aUan þenn- an tíma segir hún aðallega vera tvær - hún var neðarlega í goggunarröð- inni og ekki með tippi. Orðin dagskrárstjóri Hún þakkar fyrir það enn í dag að snillingamir þeir Valli Sport og Siggi Hlö höfðu samband við hana og buðu henni starf í morgunþætti á Steríó. „Þeir höfðu óbilandi trú á mér og buðu mér þetta starf sem ég tók fegins hendi. Árið 2003 var Steríó síðan breytt í KissFM, en KissFM stöðvarnar eru 400 talsins um allan heim,“ segir Gunna Dís en nýlegar mannabreytingar urðu síðan til þess að hún var gerð að dagskrárstjóra stöðvarinnar þannig að boltinn hefur rúllað hratt síðastliðin misseri. Hún getur þess að hlustendahópur- inn sé sífellt að stækka, en KissFM er um allan heim númer eitt í hlustun hjá unga fólkinu. „Við erum borgar- stöð og eins og borgin erum við hröð og einbeitum okkar að því að vera alltaf með ferskustu tónlistina, þú átt alltaf að geta treyst því að heyra á KissFM þennan létta takt sem hent- ar við öll tilefni, í bflnum, ræktinni eða heima að taka til.“ Dýrkar karlmenn Gunna Dís segir þann orðróm loða við stelpur að þær séu of óör- uggar og feimnar til að vera í útvarp- inu en hún vill meina að þetta eigi alls ekki við rök að styðjast, þessi ----------1 orðrómur hafi verið bú- inn til af karlmönnum. „Þvi hefur verið hent framan í mig að það sé ekki æskilegt að hafa konur í dagdagskrá en þeir sem halda þessu fram eru lfldega kven- legri en ég, alla vega fara þeir meira í ljós og oftar í klippingu og hugsa al- mennt meira um úthtið en ég sjálf. Stór hluti af þeim sem hlusta á okkur eru ungar konur og hvers vegna ættu þær ekki að vilja hlusta á konur í útvarpinu, en við höfum vissan skilning á hvað þær hafa áhuga á að heyra," segir Gunna Dís og bætir við að lokum: „Ég er samt engin rauðsokka, ég dýrka karlmenn, en það er bara rugl að vera að meta það hvort fólk stendur sig vel í útvarpi eftir kyni, þetta er allt bundið í persónunni." Þátturinn hennar Gunnu Dísar er á dagskrá á KissFM milli klukkan 10 og 14 alla virka daga. Opnunartími virka daga 10-18 og laugardaga 10-16 NYBYLAVEGUR 12, KÓPAVOGUR SÍMI 554 4433 Ragnhildur Magnúsdóttir bjó í átján ár í Kaliforníu í Bandaríkjun- um. Hún ætlaði ekki að flytja til ís- lands en fýrir allmörgum árum kom hún hingað í heimsókn og sú heimsókn stendur enn. „Þetta gerð- ist eiginlega bara óvart, ég var allt í einu komin hingað, farin að búa og komin með vinnu. Ég fer reyndar mjög oft til Bandaríkjanna þar sem foreldrar mínir og bræður búa þar enn,“ segir Ragnhildur. Hún segir þessa tvo menningarheima vera hluta af henni sjálfri en hún lauk til dæmis háskólagráðu í alþjóða- stjórnmálum í Bandarflcjunum áður en hún flutti til íslands. Blóð, sviti og tár Ragnhildur hefur verið viðriðin útvarp í um þrjú ár en byrjaði á því að lesa inn auglýsingar. „Rödd mín er talin mjög breið og það var mér til framdráttar." segir Ragnhildur en hún er andlitið á bak við kynn- ingarrödd KissFM. Hún tekur fram að það hafi verið ákveðið streð að komast áfram í þessum bransa, þetta hafi ekki komið af sjálfu sér. „Þetta er auðvitað blóð, sviti og tár áður en maður vinnur sig upp, ég Nýjar vörur daglega Smáréttastadurínn í stórborginni Láttu þaó eftir þér, vertu frjáls, njóttu lífsins. www.tapas.is Vesturgötu3b Sími: 551 2344 #•
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.