Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1945, Síða 15

Freyr - 01.10.1945, Síða 15
149 FREYR hlutfallslega fátt fé er til, sem hefir mikinn viðnámsþrótt gegn henni. Sumir fjárglöggir bændur, sem töldu sig eiga allhrausta stofna, ýmist einstaklinga eða ákveðin kyn, gegn Borgfirzku mæði- veikinni, segja að þingeyska mæðin drepi af sumum þessara stofna að mun. Samt er ekki hægt að draga aðra ályktun af athugunum þeim, sem hér um ræðir, en að nokkurt misnæmi sé til staðarí í fjár- stofnunum fyrir báðum þessum sjúkdóm- um. Það að árlega síðustu 6 árin hefir drepist mun færra fé prósentvís í Reykholtsdal og Miðfirði úr mæðiveiki í C flokki en í B flokki og þó sérstaklega í A flokki, getur varla orsakazt af öðru en misnæmi fyrir þessum sjúkdómum. Á engum þessara bæja er féð á nokkurn hátt einangraó, það gengur saman óhindrað öllum tímum árs, nema yfir veturinn og lifir við mjög lík skilyrði bæði hvað fóður og bithaga snertir, Misnæmi fjárstofnanna, sem kemur í ljós í þessum athugunum er það mikið að það hefir verulegt hagfræðilegt gildi. Ár- iegt viðhald ánna í A flokki í Reykholtsdal er 12,8% meira að meðaltali síðustu 6 árin en ánna í C flokki, en í Miðfirðinum nemur þesssi munur 17,4%. Þótt 20—25% árlegt viðhald á ærstofni sé of hátt, þá er þó mögulegt að búa við slíkt, en til lengdar er ómögulegt að búa við 37% viðhald eða meira. Ef misnæmi gegn mæðiveiki er arfgengt, þá er augljóst að viðnámsþróttur fjársins á þeim bæjum, þar sem stofninn er mjög næmur, getur ekki vaxið, nema með ræktun og íblöndun hraustara fjár. Á mörgum bæjum er engin einasta kind það hraust, að hún nái fullum aldri, án þess að fá mæðiveiki. Árlega eru aldar upp flestar eða allar gimbrarnar undan þessum næmu og veiku ám og hrútum af sama kyni. Meðan það er gert getur ekki dregið úr veikinni, sé viönámsþróttur gegn henni arfgengur eiginleiki. Eigi að verða nokkur von til þess að. dragi úr veikinni án lækningar, þá verða bændur að keppa að því að rækta og út- breiða hraustasta féð. Slíkt er sein- legt verk og mun í ýmsum tilfellum mis- takast hvað eftir annað, því að engir fjár- stofnar eru svo hraustir og hreinræktaðir, að búast megi við því að allir einstaklingar af þeim séu ónæmir fyrir mæðiveiki og verði til kynbóta. Á bæjum þár sem mæðiveikin drepur árlega um 10% af ærstofninum, en mjög óvíða drepur hún minna, eru 50—70% af lömbunum, sem árlega fæðast, næm fyrir mæðiveiki. Séu því keyptir hrútar af slíkum stofnum, án þess að vitað sé um foreldra þeirra má ganga út frá því að þrír af hverj- um fimm þeirra séu það næmir að þeir sýkist einhvern tíma af mæðiveiki. Séu ættartölubækur haldnar og lömbin merkt, þá má fá hlutfallslega fleiri einstaklinga til kynbóta úr slíkum stofni, með því að drepa öll hrútlömb, sem vitanlega eru kom- in af næmum einstaklingum í hjörðinni. Þótt þetta sé ekki glæsilegt, þá er það betra en að ala upp hrúta af stofnum, þár sem næstum hver einasti einstaklingur er næm- ur, en svo má telja að sé, þar sem árlega drepst 20% eða meira af ánum úr mæði- veiki. Bændur gera enn of lítið til þess að auka viðnámsþrótt fjárins gegn mæðiveiki með ræktun. í Miðfirðinum hefi ég á undanförnum árum sagt öllum bændum, sem ég hefi komið til, að féð virtist nraustast á Bjargi, Litla-Hvammi og Haugi. Þetta hefir haft lítil áhrif. Ég man ekkj til þess að nokkur maður í Miðfirði hafi fengið sér líflömb, hrúta eða gimbrar á undanförnum árum

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.