Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Page 4
4 MÁNUDAGUR 27. JÚNl2005 Fréttír DV Ölvun veldur slysi Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um að bíll hefði oltið um áttaleytið í gærmorgun. Slysið átti sér stað við Sólgarð í Eyjar- fjarðarsveit. ökumaðurinn, sautján ára piltur sem fékk bflprófið í þessum mánuði, er grunaður um ölvun við akstur. Hann missti stjóm á bfl sínum, ók út af og valt nokkrar veltur. Bfllinn er talinn ónýtur og var þessi ungi ökumaður fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en áverkar liggja ekki fyrir. Myndin tengist fréttinni ekki á beinan hátt. Amfetamín í Hafnarfirði Lögreglan í Hafiiarfirði stöðvaði ungmenni við hefðbundið eftirlit aðfara- nótt sunnudags. Við leit í bflnum fannst smáræði af amfetamíni sem talið var til eigin neyslu. Einnig vom tveir stöðvaðir og grunaðir um ölvun við akstur í Hafnar- firði. Lögreglan í Kópavogi stöðvaði einn ökumann sem grunaður um ölvun við akstur. Önnur verkefrii hjá lögreglu vom hefðbundin og fólu í sér útköll vegna hávaða og ölvunar í heima- húsum. Wa'MWfg l|( Skert náms- framboð Háskólinn á Akureyri hyggst bregðast við rekstrarvanda skólans en alls skortir skólann að minnsta kosti 40 milljónir á ári til að endar nái saman. Nemendum í skólanum hefur á undanförnum ámm fjölgað mjög og rannsóknir innan hans hafa verið efld- ar. Þetta hefur leitt til um- talsverðs kostnaðarauka í rekstri skólans sem hefur að mestu leyti verið mætt með auknum framlögum ríkisins. Skólinn mun nú bregðast við vandanum með því að draga úr náms- framboði og fjölga í nem- endahópum. Ástarskandall. Bubbi Morthens birtist þjóöinni og heldur uppi vörnum fyrir kon- una sem eitt sinn átti hug hans allan. Hótar málaferlum og segist finna þörf fyrir ofbeldi. Ásgerður Guðmundsdóttir, eiginkona mannsins sem hún segir hafa fallið í faðm Brynju, segist standa við hvert orð. Sannleikurinn meiði en sé sagna bestur. Framhjáhaldsuppgjör í fjölmiðlum „Það sem ég sagði í þessu viðtali er einfaldlega satt,“ segir Ás- gerður Guðmundsdóttir, konan sem kom upp um meint fram- hjáhald Brynju Gunnarsdóttur, fyrrverandi eiginkonu Bubba Morthens. Tónlistarmaðurinn Bubbi reis til varnar Brynju í fjöl- miðlum í gær og talaði um árásir í sinn garð og bama sinna. „Hvað með bömin mín?“ spyr Ásgerður, sem horfði á eftir eigin- manni sínum í hendur Brynju. Brynju en ekki tekið upp símann. Ég hef ekkert að segja við þá konu,“ segir Ásgerður. „Mér finnst þetta siðlaust. Ég sagði einfaldlega sannleikann og svona bregst þetta fólk við," segir Ásgerður, sem á tvö böm með Gunnari Erlingssyni, sem hún segir nú hvfla í faðmi Brynju Gunnars- dóttur. Ásgerður segir að eftir að sagan öll birtist í vikuritinu Hér & Nú hafi síminn hjá henni vart stoppað; hún upplifi sig í rússíbanareið, ijöl- miðlasirkusi. Hún eigi líka böm eins og Brynja og Bubbi. „Svo hef ég séð númerið hennar Reiður Bubbi Síðustu mán- uði hefúr Bubbi Morthens verið í sjálfskipuðu fjölmiðlabanni en það bann rauf hann í gær. Reiður Bubbi birtist þjóðinni í fréttum Stöðv- ar tvö þar sem hann hótaði skaða- bótamálum og barsmíðum. Bubbi sagðist í viðtalinu þurfa að út- skýra fyrir dóttur sinni að „Brynja hefði ekki haldið framhjá." Hann sagði böm sín líða fýrir skrif Eiríks Jóns- sonar blaðamanns, sem hann efaðist um að væri „hæfur" til að ala upp eigin böm. Satt og rétt Ásgerður segir siðleysi koma fýrst upp í hugan. „Fólkið er búið að fram- kvæma þessa hluti. Bubbi tekur þetta greinilega til sín og hann um það," segir Ás- gerður, sem vill ein- faldlega að málinu Ásgerður Guðmundsdóttir Segiststanda við allt sem hún segir. ljúki. Hún sé búin að segja sitt og standi við það. Ann- að skipti hana ekki máli. Hvorki náðist í Bubba Morthens né Brynju Gunnarsdóttur í gær en Brynja mun vera í fríi úr vinnu sinni hjá Eddu miðlun. simon@dv.is Brynja Gunnarsdóttir og Bubbi Morthens Berjast I fjölmiðlum vegna opinberunar um framhjáhald. ------------------1 i ....------- „Þessi nýja blaðamennska er ofbeldi." „Ég sagði einfaldlega sannleikann og svona bregst þetta fólk við/' Viðtalið við Bubba úr fréttum Stöðvar tvö í gær Eva Bergþóra Guðbergsdóttir: „Óhætt er að segja að forslðufréttir slð- ustu tveggja tölublaða Hér ognú hafi vakið athygli I okkar litla þjóðfélagi. I þessari viku birtist forsíðufréttin Brynja hélt framhjá Bubba og fannst mörgum sem blaðamennska á Islandi hefði náð nýrri lægð í umfjöllun um einkallffólks. Vikunni á undan hafði hins vegar birst fyrirsögnin Bubbi fallinn, sem þegar blaðið var lesið átti að skiljast: Fallinn á reykingabindind- inu. Hópur blaöa- manna hefur mótmælt þessum vinnubrögöum opinberlega og nú er komið að Bubba sjálfum, sem segist ekki vera maður til að taka svona meðferð þegjandi." Bubbi Morthens: „Þeir vita alveg hvað þeir eru að gera. Þeir vita alveg hvað þeir eru að setja upp, sko. Ætlunin er að selja þetta: Bubbi er byrjaðurað dópa. Síðan hafa þeir svona öryggisventil á, sko... að reykja. Ég er búinn að reykja í eitt og hálft ár! Ég er búinn að vera að hætta að reykja út og inn í tuttugu og fímm ár! Ég meina, hvaða bull erþetta? En tilgangurinn er fyrst og fremst þessi að skaða mig. Afkoma min og trúverð- ugleiki og ímynd mín. Þetta byggist allt á því að ég sé edrú. Að, semsagt... allt sem ég geri I dag byggist á því. Efég fell þá hrynur allt I kringum mig. Það er alveg borðliggjandi. Og samn- ingar sem ég hef verið að gera við stór fyrirtæki úti í bæ. Þeir byggjast á því að ég sé edrú. Þetta er at- vinnurógur af verstu tegund." Eva: „Bubbi Morthens segist hafa lifað sem opinber persóna í aldarfjórðung og sætt sig við ýmiss konar umfjöllun sem fylgir því aðhafaat- vinnu afþví að vera frægur. Þegar hann og eiginkona hans til nítján ára skildu nýverið hafí hann hins vegar talið best að taka hlé frá viðtölum. Ákvörðun sem hann taldi á slnu valdi að taka." Bubbi: „Ég veit ekki hvað þetta er. Ég heyrði viðtal utan afmér við Eirík þar sem hann sagði:„Bubbi er búinn að mis- nota fjölmiðla í tuttugu og fimm ár. Nota þá sér til framdráttar. Svo fer hann í fjölmiðlabann. Heldurðu bara að hann geti farið i fjölmiðlabann?" I rauninni mátti lesa milli línanna:„Við þvingum hann I viðtal. Hvernig sem við ætlum að fara að þvíþvingum við hann í viðtal." Það er það sem þeir eru að gera við fyrrverandi konuna mína. Það er ein- hver Slmon sem hringir I hana dag og nótt eftir forsiðuna á Hér og nú. Með því að setja hana á forsíðuna þá telja þeirsig geta þvingað hana I viðtal. Þessi nýja blaðamennska erofbeldi. Ég get alveg sagt (horfir I vélinaj: Gunnar Smári, Mikki Torfa, Eirikur. Hittið mig niðri i Faxafeni. Ég skal boxa við ykkur alla. Löglega. Inni í Hlf HL hringnum. Þetta er ekkert ósvipað." Eva: „Þú ert greinilega rosalega reiður." Bubbi: „Já, ég er gifurtega reiður og er að reyna að hemja mig. Fyrir tíu árum síð- an heföi ég farið heim til allra þeirra. Allra þeirra og lamið þá. En, hérna, ég geri það ekki i dag. Ég á mikið undir mér. Já, auðvitað er ég reiður. Hver er til- gangurinn með því að taka mig, eða réttara sagt fjölskyldu mína? Ég á börn, þrjú börn. Mikki Torfa á börn. Ég held að EiríkurJónsson eigi börn. Ég veit ekkert hvort hann hugsar um þau en ég held hann eigi börn. Og hérna... Hver er tilgangurinn? Hver er tilgangurinn með þvi að ég þurfi að verja móöur barna minna? Og segja þeim að hafa ekki áhyggjur. Mamma þeirra sé ekki vond. Hafi ekki haldið framhjá mér. Og ég sé ekki byrjaður að dópa. Dóttir mín segir: „Pabbi, pabbi. Ekki dópa, þá deyrðu." Og svo sjá þau þetta í búð- um og gluggum og annað, sko." Eva: „GunnarSmári Egils- son, forstjóri 365 fjöl- miðla, ber á endan- um ábyrgð á þessu öllu. SegirBubbi, sem í viðtalinu vandar. ekki blaðamönnum fyrirtækisins kveðj- urnar." Bubbi: „Mér þykir líka alveg ferlega skrýtið að ég sé að vinna hjá fyrirtæki sem er að rústa æru minni. Hvernig get ég unnið hjá fyrirtæki, lýsa boxi og framvegis, Idolið og allt þetta? Og þessir menn eru á meðan að tæta af méræruna." Viðtal Evu viö Bubba verður birt i heild sinni í Islandi í dag í kvöld. Leikræn tilþrif í héraðsdómi Á föstudaginn mætti heymarskert spákona í Héraðsdóm Reykjavíkur. Hún hafði smyglað kókaíni í sérútbú- inni hárkollu og hágrét í héraðsdómi þegar hún sagði raunasögu sina. Þetta var víst einhverjum Albert að kenna. Afríkubúa sem hafði vélað spákonuna í þennan gjöming. Svarthöfði veit að lífið er leikhús. Sú staðreynd verður sjaldan jafn augljós og í lokuðum dómsölum héraðsdóma landsins. Þangað mæta jafnt forhertustu glæpamenn og veikburða fómarlömb; segja sögu sína á dramatískan hátt meðan lög- fræðingar leikstýra sýningunni með tilvitnunum í gamla dóma og lag- anna bókstaf. Heyrnarlausa spákonuamman er gott efni í bíómynd. Málsvörn Hákonar Eydal er nánast bók- menntalegt meistaraverk. Fall Land- símadrengjanna, fjölskyldudeilur afkomenda Laxness, allt em þetta skínandi perlur í annars leiðinlegum hversdagsleika. Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað rosalega gott, það erekki hægt annað,“segir Kjartan Guðbergsson, betur þekktur sem Daddi diskó, sem stendur fyrir Duran Duran-tónleikum næstkomandi fímmtudag. „Ég er búinn aö hlakka til tónleikanna lengi og finn fyrir gríðarlegri stemn- ingu hjá eiginlega öllum. Núna eru tónleikarnir númer eitt, tvö og þrjú hjá mér, en svo er maður alltafað spila. Alltaf eitthvað fólk sem nennir aö hlusta á gamla diskótekarann. Síð- an er maður í nettu sumarleyfí og eftir það tekur við feðraorlof. Lífíð brosir þvl viö manni." í síðustu viku var handbolta- hetjan Valdimar Grímsson meira að segja fyrir dómi. Maðurinn sem dældi út mörkunum í horninu fyrir landsliðið þurfti að horfast í augu við sjálfan sig og þjóðina - og segja sannleikann, ekkert nema sann- leikann. Svarthöfði veit fátt skemmtilegra en að skella sér niður í héraðsdóm með popp og kók í hönd. Flest réttarhöld em öllum opin og á góðum dögum er þetta eins og besta leiksýning eða bíómynd. Þú gætir séð Ástþór Magnússon sprauta tómatsósu frammi á gangi. Hand- rukkara með DV fyrir andlitinu. Morðingja í fylgd lögreglumanna í jámum. Frægt fólk sem er búið að missa allt eða einfaldlega nágranna þinn sem gerði eitthvað sem hann sér eftir. Og það besta við héraðsdóm er að ólíkt Þjóðleikhúsinu kostar ekkert inn. Svaithöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.