Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Síða 40
Py éttíl%k Ot m rnum víð fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar 'jjnafnleyndar er gætt. «-* q *-* QQ Q SKAFTAHLfÐ24,105REYKJAVÍK [STOFNAÐ1910] SÍM!5505000 5 690710 1111171 :p • Það er alltaf líf í miðbænum þegar Eiður Smári Guðjohnsen bregð- ur sér á djammið. Um helgina var hann umvafinn fögru kvenfólki á Café Oliver en komst í hann krappann fyrir utan. Vitni segj- ast hafa séð knattspyrnugoðið með hnefana á lofti þegar nokkrir drengir úr utandeildar- liði í íslenska boltanum gerðu aðsúg að honum. Allt endaði þetta vel þótt hörð orðaskipti hafi verið á milli fótboltakapp- anna sem spila alls ekki í sömu deild. íslenski boltinn er þekktur fyrir að vera harður og greinilegt að menn vilja ekki láta í minni pokann þó að andstæðingurinn sé í dýrasta fótboltaliði heims... MvepkamaOur Natar chili 01 aö auka hárvöxt „Ég er að komast á seinna gelgjuskeiðið, eins og maður segir, og hárið farið að þynn- ast. Einn góður vinur minn er búinn að vera í þessu í tæp tvö ár og það er allt annað að sjá hann, það vex á honum hár upp á nýtt,“ segir Stefán, en hann fer einu sinni í viku í klukkustundar chili-meðferð hjá konu hér í bæ. Þar er chili-ávextinum nuddað í hár- svörðinn, sem örvast allur. Stefán segist hafa haft rosalega gott af þessu og sér líði vel. Stefán þvær sér auk þess tvisvar í viku um höfuðið með Astekasápu sem unnin er úr sítrusjurt og notar chili mikið í matargerð. „Ég fékk rosalegan áhuga á kryddum núna á síðustu árum. Það var fyrir svona fimmtán árum síðan sem ég fór að hugsa um krydd, elda sjálfur og nota gott hráefni. Ég bý einn þannig að ég get prófað mig áfram að vild,“ segir Stefán hlæjandi, en hann fékk mikinn áhuga á indíánum sem krakki. Hann bjó ungur í Bandaríkjunum og árið 1969 kynntist hann indíánum þegar hann var á laxveiðum á verndarsvæði þeirra. „Þeir buðu mér upp á bakaðan lax með chili og þá smakkaði ég það í fyrsta skipti svo ég muni," segir Stefán. Stefán nefnir dæmi um það að í Mexíkó er chili til dæmis notað við meðferð á bakverkjum, liðagigt og öllum innyflum og hefur einnig verið notað í áfengismeðferð í Arizóna, Mexíkó og Nýju- Mexíkó. í kringum 1970 var Stefán svo í veislu í London og í eftirrétt voru alls kyns ostar með sterkum sósum og sultum með chili og fleira og Stefán segist hafa orðið mjög hrif- inn. Hann fékk í kjölfarið prufusendingu hingað til lands um 1974 og kynnti í mat- vöruverslunum en það vildi enginn sjá þetta því það var svo sterkt. í dag vílar fólk hins vegar ekki fyrir sér að nudda chili í hárið enda tímarnir breyttir. Stefán Á. Magnússon kraftaverkamaður Smyr chili-pipar og Ast- ekasápu í hárið. Sungu með „Ný dönsk" Heiðar Helguson og Hermann Hreiðarsson Skemmtu sér vel á Islandi um helgina. Mikið var um dýrðir um helgina þegar fótboltakappinn Heiðar Helgu- son hélt upp á afmæli konu sinnar hér á landi. Einkaþotur flugu með tigna gesti frá Englandi sem biðu í röðum eftir herbergi á 101 hóteli - hóteli fræga fólksins hér á landi. Einn af þeim sem fögnuðu með Heiðari | og konu fý hans var Hermann Hreiðarsson, leikmaður Charlton í Englandi. „Þetta var bara frábær veisla og mjög góð stemning,“ sagði Hreiðar í gær en vildi ekkert gefa upp um hvar veislan var haldin eða hvexjir stigu þar á stokk. Eitt er þó víst að margir veislu- gestir enduðu á tónleikum hljóm- sveitarinnar Nýrrar danskrar í borg- inni þar sem Heiðar sjálfur skellti sér upp á svið og söng með Bimi Jörundi og félögum. Aðspurður sagðist Her- mann ekki hafa tekið lagið. „Nei, maður gefur ekkert upp um það," sagði fótboltakempan sem flaug aftur til Englands í dag og hefur æfingar með liði sínu á þriðjudaginn. Spunameistarar blautir bak við eyrun „Þessir svokölluðu spunameist- arar hafa aldrei starfað innan Fram- sóknarflokksins, þeir vita ekki hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá okkur sem störfum í grasrótinni," segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi framsóknarmanna í Kópavogi, í samtali við DV. Á heimasíðu sinni vakti Ómar athygli á ffétt sem birtist í Fréttablaðinu á föstudag þar sem greint var ffá því að Stein- grímur Ólafs- son, einn af þessum svoköll- uðu Ómar Stefánsson spunameist- urum forsæt- isráðherra, hefði sam- neyti við fáa framsóknar- menn og fyndist það sjálfsagt mál þar sem hann starf- aði fyrir for- sætisráðu- neytið en ekki flokkinn. Ómar telur slæmt um- tal vera helsta vandamál flokksins. „Samkvæmt skoðanakönnunum er flokkurinn að þurrkast út á lands- vísu og þetta slæma umtal á stóran þátt í því. Enginn talar t.d. um hversu vel okkur í Kópavogi gengur. Við erum frekar dæmd fyrir það sem þessir guttar, sem starfa fyrir forsæt- isráðherra, gera.“ ÖRUGGLEGA BRÚN/N MEÐ 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.