Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005 Menning DV mgjj ^jjkj Myndarlegur strákur hann Gummi. ? Sá sirkusinn afog tilá laug- ardagskvöid. Fátæklegt sett og vanþróaöa persónusköpun i fyrstu þáttunum afFriends og Seinfeld - þeir fyrrnefndu voru samt talsvert meira mótaðir þó handritið gengi býsna mikið á one-linerum. Svo kom Guðmundur Steingríms- son endurtekinn frá föstudegi. Það er mikið patá piltinum, stórar og miklar handasveiflur og talsvert mikið afhonum sjálfum og einum á skjánum. Lítið að marka innslags- kafla og Einn á móti öllum verður fært I sögur sem innihaldsminnsta kjaftæði ídebattí langan tima en umsjónarkonan hefur djarft blik í auga og er afslöppuð að sjá. Lik- lega efni i góða sjón- varpskonu. Athyglisvert: hér hafa menn nú samanburð viðspjall- þætti aföllu tagi. I þeim öiiumergætt aðþviað ná megi í einu miðl- ungsskoti spyrjanda og gesti. Oft er gestur settur l set fáum senti- metrum undir seti gestgjafa. Venju- legast er I þáttum á borð við Leno og Letterman homið milli borðs og sets haft þröngt svo rétt er hand- arseiling milli sætanna. Hvert sem litið er á svona þætti má læra um sviðsmynd og innrömmun. Ekki hér. Afþessu hafa sirkusstjórar ekkert lært. Svo langt var milli Ósk- ars Jónassonar og G uðmundar að þeir þurftu að kallast á. Settið er ofvítt og hornið ofgleitt. Það vantar mikið á nálægð gests og gjafa. Sófinn er oflágt set og borð Guðmundar oflangt og kalt. Það mun þurfa mikla persónutöfra og áhuga á þeim sem við á að tala að keyra þetta sjó áfram. Það er ekki nógað vera spenntur sjálfur fyrir að vera á skjánum. En svo lærir sem lifir. Flugur Upphitun fyrir Live 8 erá fullu. Nú telja menn að fimm milljarðar horfi á útsendingar i einhverju formi þann 2.júli. Konsertarnir i Paris, London, Róm, Filadelf- íu, Tókíó,J6- hannesarborg, Toronto og Berlín fara með ýmsum leiðum til áhorfenda: netið er nýjasti ogkraftmesti miðillinn,en 140 sjónvarpsnet bera merkið auk útvarpsstöðva. Send- ingin á að ná 85%jarðarbúa. Listar listamanna eru enn i mótun. Þó er vitað að Björk verður í Tókió og verðurþað fyrsta upptroðsla henn- ar á sviði um tveggja ára skeið. Nokkrar járnrúllur vekja lukku í Bilbao. Það er bandaríski myndlistarmaðurinn Richard Serra sem á þetta gríðarstóra og dýra verk, sem verður fastur hluti af sýn- ingu Guggenheim í Baskalöndum. Handan við sundin standa stólpar eftir hann í Viðey sem fáir hafa séð og sjaldan eru nefndir. Bandaríski myndlistarmaður- inn Richard Serra, sem gaf Reyk- víkingum fyrir nokkrum árum samstæðu höggmynda sem nú standa í Viðey, ásamt verki Ólafs Elíassonar sem fyrir tveimur árum vakti hvað mesta athygli í Feneyj- um, skekur listaheiminn þessa dagana með gríðarstórum skúlpt- úrum í Guggenheim-safninu í Bil- bao í Baskalöndum. Þetta eru engin smáflikki eins og meðfylgjandi mynd sýnir og var almenningi opnaður aðgangur að þessum gripum um miðjan mán- uðinn. Mat sérfræðinga er að verð- mæti þeirra sé um 20 milljónir Bandaríkjadala og hafa myndir af verkinu prýtt öll helstu blöð Evr- ópu liðnar vikur, þó tíðindi hafi verið fyrirferðarmikil frá listastefn- um Feneyinga og í Basel. Hinn kunni gagnrýnandi Robert Hughes segir í Guardian í síðustu viku að á grundvelli þessara verka sé það ótvírætt að Serra sé helsti höggmyndasmiður nýrrar aldar. Þessar stálrúllur eru alls átta og verða til frambúðar fastur sýningar- gripur í Guggenheim í Bilbao. Hug- hes telur stærðina eina vekja með áhorfandanum slíka tilfinningu smæðar og formið geri hverjum manni ljósa einfalda snilli verksins. Því er komið fyrir í stærsta rými safnsins og stærðin er slík að að- eins ein stálmylla í heiminum gat höndlað svo stórar rúllur og er hún staðsett í Siegen í Þyskalndi. Áhorf- andi getur gengið milli bylgjandi stálsins en plöturnar standa sjálfar á gólfinu og þurfa engan stuðning. Hughes segir verkið hafa lamandi áhrif á áhorfandann. Hann kallar Serra síðasta abstrakt-expressjón- istann, þótt honum sé þvert um geð að setja merkimiða á lista- mann af slíkri stærð. Það tók mikið þrek og ríkuleg framlög frá opinberum aðilum og fyrirtækjum að ná til sín hinu fræga safni Guggenheim í Bilbao og var hinn heimskunni arkitekt Frank Gehry fenginn til að hanna bygginguna. Safnið hefur nú um nokkturra ára skeið dregið til sín hundruð þúsunda gesta og er það talið eitt besta dæmið sem fyrir- finnst í Evrópu um hvernig menn- ingartengd ferðaþjónusta getur kallað á flaum erlendra gesta. Því vaknar sú spurning hvers vegna Höfuðborgarstofu hefur ekki tekist eftir margra ára umþótt- unartíma að gera hið mikla verk Richard Serra í Viðey að kenni- marki fýrir listalíf borgarinnar? Héraðshátíðir eru orðnar fastur hluti af sumarbrag landsins. Á Seyðisfirði verða tónleikar af ýmsu tagi á dagskrá fram eftir sumri. Það er írskur söngvasveinn sem startar röðinni á miðvikudagskvöld í kirkjunni á Seyðisfirði. Hljóðfærasláttur á Seyðisfirði Hann heitir Andy Irvine og er stofiiandi og meðlimur hljóm- sveita eins og Planxty, Sweeney’s Men, Patrick Street og Mozaik. Tónleikaröðin er kennd við Bláu kirkjuna og dagskrá Irvine er sett saman af keltneskri og balkneskri tónlist, söng og spili á gítar og bouzouki, og hefst kl. 20.30 á mið- vikudagskvöld í kirkjunni. Irvine er fyrir löngu þekktur sem sönghöfúndur, tónlistarmað- ur sem elskar heimstónlist, tónlist- arvinur, ogmeölimur í mörgum hópum. Hann hefur kynnt bouzoukuna á írlandi og gætir áhrifa hans þar víða á eyjunni grænu. Hann spfiar nú í fyrsta sinn á íslandi og mun frá Seyðisfirði halda norður um: spfiar á Akureyri og Sauðárkróki áður en hann kemur til Reykjavíkur þann 4. og 5. júlí. Andy Irvine kemur tíl íslands í sambandi við tónleikaröð Sumar- tóna í Færeyjum. Hann er ekki sá eini sem mun spUa í röðinni í sumar. Reykjavík Five - Kristjana Stefánsdóttir, Hera Björk ÞórhaUsdóttir, Aðal- heiður Þorsteinsdóttír, GfsU Magnússon og Þoraldur Þorvalds- son - koma austur þann 6. júlí, en hópurinn hefúr haldið saman í hartnær ár. Aðrir listamenn sem verða í firðinum þegar líður á sumarið eru tríó Einars Braga, sálmatónleikar með EUen Krist- jánsdóttir og Eyþóri Gunnarssyni. 3. ágúst kemur óvenjtUegur hópur: Rúnar Óskarsson klarínettuleikari, Þórunn Ósk Marínósdóttír víólu- leikari og Ámi Heimir Ingólfsson píanóleikari og flytja tónlist sem er samin sérstaklega fyrir slík trfó. Á norskum dögum verða svo norskir gestir á ferð: Reidun Hor- vei, mjög velþekkt þjóðlagasöng- kona, Geir Botnen, píanóleikari, og Knut Hamre sem leikur á Hardangursfiðlu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.