Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Qupperneq 33
Menning DV MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005 33 Hinn þekkti tísku- og konseptljósmyndari David LaChapelle, ríkur hvítur hommi sem hefur gert mynd- bönd fyrir Britney og J-Lo og stillt upp efnivið sínum í lit- ríkar ljósmyndabombur, hefur snúið sér að öðru. Á föstudaginn frumsýndi hann nýja heimildarmynd í fullri lengd sem fjölmiðlar vestan- hafs segja að muni setja nýja bylgju af stað um hinn vest- ræna heim, nýja dansbylgju. - •' ' * Rize Stæltir svartir sveittir skrokkar í South Centralfetta sig í kvikmynd LaChapelle. Mfi rSouth Central annarri og óskyldri mynd við hettuklætt ofbeldi hverfisins. Hann segir dansinn og allt umhverfi hans lýsa af jákvæðri sköp- un og frelsi undan erfiðum samfélagsaðstæðum. Krump-æðið er farið að breiðast út á vesturströnd- inni og inn í land. Spænsk- ættuð og asísk gengi eru að taka dansinn upp víða um Los Angeles-svæðið austur til Las Vegas og norður í Oakland þar sem hann er kallaður Hyphy. Krakkar sem hafa staðið sig best í dansinum eru famir að sjást í mynd- böndum helstu poppara fjöldamenningarinnar sem sprottin er úr hiphoppinu og skyldum leikjum. Kvikmynd sína kallar hann Rize og efniviðinn sækir hann ekki í taumlausan lífsstíl og ofboðsleg- an auð eins og ljósmyndir sínar fyrir Vogue og tísicuheiminn. Þegar hann frumsýndi myndina í Washington á föstudag dvaldi hann í hinu fræga Chateau Mar- mont-hóteli á Sunset Boulavarð- anum. Það er ekki nema steinsnar niður í South Central þar sem kvikmynd hans er tekin að mestu leyti. Myndin fjalar úm „krump“, eldhraðan dans sem sprottinn er upp úr hiphoppinu með rætur sínar í breikinu og enn eldri og dýpri rætur í svörtum tribaldöns- um. Hamskiptadansar vúdúdýrk- enda og transdansar kom helst til í samlíkingum. LaChapelle hefur unnið að myndinni í þrjú löng ár. Um hverja helgi hefur hann farið með tökulið sitt í heimsókn þangað sem eng- inn hvítur maður vogar sér nema í annarlegum tilgangi, inn f hverfið sem er heimsfrægt orðið fyrir fá- tækt, vesöld og gengjastríðin. Byrja í barnaafmælum Það var Tommi trúður, dæmd- ur dópsali sem fór í gegnum end- urhæfingu og frelsaðist, sem er upphafsmaður þessarar bylgju. Hann sat inni fyrir krakksölu en losnaði 1992 og var þá beðinn um að koma fram sem trúður í barna- afmæli. Hans leið til að skemmta börnum í þann tíma var að taka gömul breikspor og hiphopptakta og skopstæla svo úr varð eldhrað- ur trúðleikur sem börn og full- orðnir höfðu gaman af. Hann dró að sér aðdáendur sem klæddu sig upp og úr varð fjöldi dansflokka sem keppti sín á milli. Attitjúd -krumpitjúd Tight Eyez, ein af stjörnum myndarinnar og dansari, talar um „krumpitude“ - dansinn losi úr læðingi krafta stríðsmannsins. í umsögnum er talað um dansinn sem ballett gettósins eða trúða- dans en öllum lýsingum ber sam- an um eitt: dansinn fer fram með ógnarhraða, tekur á sig líki hana- ats og nektardans og virðist því sækja formeinkenni sín í hreina eftirlíkingu við kunn fyrirbæri í daglegu lífi hverfisins. Áköfustu iðkendur krumpsins tóku dansinn á göturnar: Ýfingar og hrindingar, föll og hnykkir urðu meira áberandi. Dragon, einn af dönsurum í myndinni segir krumpið hafa þróast í þá átt að vera einungis fýrir fyrir eldri áhorfendur. Kynferðislegur og of- beldiskenndur dansinn fór að gera vart við sig á götuhornum þar sem menn mættust af tilviljun og stæltu mátt sinn í kappi. Hröð útbreiðsla LaChapelle er að stilla upp Rokk og Cha Cha í eina tíð voru dansskólarnir innflutningsleiðin fyrir nýja dansa. Nú taka ákafir dansarar stíla og stæla eftir myndböndun- um. Krumpið kann að eiga leið hingað en af lýsingum má ráða að það krefst mikilla líkamlegra burða og eldmóðs sem kann að vera fjarlægur okk- ar köldu ströndum. Mynd LaChapelle var frum- sýrrd á Sundance-hátíðinni fyrr í vetur og er nú í dreifingu um Bandaríkin. Það er Lions Gate sem dreifir svo líklegt er að hún komi hingað fyrr en síðar. Dragon, einn af dönsurum í myndinni, segir krumpið hafa þróast í þá átt að vera einung- is fyrir eldri áhorfendur. Kynferðislegur og ofbeldiskenndur dansinn fór að gera vart við sig á götuhornum þar sem menn mætt- ust aftilviljun og stæltu mátt sinn íkappi. Franski höfundurinn Michel Houellebecq er kominn til Ameríku og fæst í fram- komu hans og skoðunum passar alveg í kórrétt umhverfi Kaliforníu. Ný skáldsaga hans er væntanleg í haust. Þrefaldur expresso eftir miðnætti „Lífið er fullt af sársauka og vonbrigðum." Svo hljóðar upphaf- ið að fýrsta útgefna texta hins kunna franska rithöfundar Michel Houellebecq. Textinn var að koma út í Bandaríkjunum enda efnið sótt þangað: H.P. Lovecraft, hinn umdeildi en virti höfundur, er efniviður þeirrar studíu. í enskri þýðingu kallast verkið Against the World, Against Life. Houellebecq er kominn til Ameríku en hann hefur um árabil búið á írlandi og notið þar sérstakra skattfríðinda sem margir höfundar hafa notfært sér. öreindirnar og Áform hafa báðar komið út hér á landi og vakið athygli sem þó hefur ekki farið hátt. Efnivið sinn sækir skáldið í nánast hversdagslega lifnaðarhætti sem leiðast síðan út í öfgar: í öreindunum gætti harka- legrar fordæmingar á afleiðingum hinnar evrópsku kynlífsbyltingar og í Árformum tók hann fyrir kyn- lífstúrismann. Það voru hins vegar ummæli skáldsins um íslam sem ollu hon- um mestum vandræðum. Það er bæði trúin og trúleysið sem heillar hann. Honum er tíðrætt um hvernig trúleysið breiðir um sig á Irlandi og hvernig samfélagið bregst við þeirri breytingu. Heimsókn skáldsins til Amer- tku var merkt þeirri frægð sem hann hefur umlukið í Evrópu. Fræga fólkið hefur setið um hann. Margrædd fangelsun Olivers Sto- ne fýrir fáum vikum átti sér stað í kjölfar kvöldverðar þeirra Houellebecqs á Hvítu liljunni, frægum asiskum veitingastað í Los Angeles. En frétmæmast er að skáldið er að ganga frá útgáfu á nýrri skáldsögu sem er til í enskri þýð- ingu þegar. Efni hennar er klónun. Ef af líkum má ráða verður sú saga frek til fjörsins í umræðu haustisns. Skáldið var ekkert of áhuga- samt um dvöl sína vestanhafs og bandarískum pistlahöfundum sem sátu um hann vestra ofbauð ýmislegt í fari hans. Sjálfur lýsti hann því yfir þegar ekki var hægt að fá espresso-bolla í Hollywood eftir kl. 1 að nóttu að þessi staður væri eins og verstu skítabæli í austantjaldslöndunum. Það þótti gestgjöfrtm hans ekki þægilegt að heyra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.